Forsíða › Forums › Spjallið › Allt annað › að bakka 2 kerrum í einu
This topic contains 33 replies, has 1 voice, and was last updated by Markús B. Jósefsson 15 years, 6 months ago.
-
CreatorTopic
-
03.05.2009 at 22:59 #204343
hvernig er það… er ekkert flókið að bakka svona kombó? 2 kerrur og brummi
þetta eykur allavega skott-plássið töluvert
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
03.05.2009 at 23:33 #647082
Ekki séns því um leið og þú snýrð fremri kerrunni þá beygir hin akkúrat í hina áttina…..
04.05.2009 at 00:02 #647084Hingað til þá hefur það alveg verið talið mögulegt að bakka beislisvagni… ég get ekki séð að þetta sé neitt öðruvísi!!
04.05.2009 at 00:09 #647086Teiknaðu á blað 3 vegasölt sem eru samtengd.
Skoðaðu svo hvað gerist þegar þú hreyfir annan endann???
Annars má svosem alveg reyna þetta, og má sá endilega taka það uppá video.
04.05.2009 at 00:19 #647088Þú veist vonandi hvað beislisvagn er?
04.05.2009 at 00:33 #647090Nei veit ekki hvað beislisvagn er,
Til þess að hægt væri að líkja þessu við beislisvagn þyrfti dráttarkúlan á fremri kerrunni að vera staðsett beint fyrir ofan hásinguna, hef ekki séð svoleiðis kerrusmíði.
Ég hef séð ekki séð marga sem ná tökum á beislisvagna-bakki og því óþarfi að vera flækja þetta meira..Annars nenni ég ekki að þrasa lengur um þetta, það er allt hægt… s.s. , t.d. get ég núna farið að sofa með góða samvisku.
Góða nótt
04.05.2009 at 00:39 #647092Vagnarnir sem þeir hengja aftan í landflutningabílana eru kallaðir beislisvagnar, fremri öxullinn á þeim er festur beint á beislið og snýst á lið sem er einmitt beint fyrir ofan öxulinn.
04.05.2009 at 01:20 #647094Sé ekki betur en að þetta sé kerran hans Simma og hugsanlega pattinn hans Hlyns hangandi fremstur í þessu… Treysti þessum herramönnum báðum til að bakka með tvær, og jafnvel fleiri kerrur…
En spáiði í að draga tvær kerrur á Patrol… Hann á nógu erfitt með að snúa hjólunum undir sjálfum sér,tómur ! En með tvær kerrur… EIns gott að vera með ástralíuhlutfall í logírnum til að ná að taka af stað….
Benni
04.05.2009 at 06:57 #647096og þar finna menn upp á ýmsu til að flýta fyrir sér og auka afköst t.d. að hengja saman tvo sturtuvagna til að flytja rúllur á sumrin, og það lítur þá eins út og kerrurnar á myndinni, þettað gengur svosem stór slysa laust fyrir sig að bakka þessu er dálítil kúnst, traktorinn stjórnar því í hvaða átt fremri fer og fremri í hvaða átt aftari fer, kemur bara með æfingunni eins og margt annað.
04.05.2009 at 08:43 #647098[img:16nrsz6w]http://www.f4x4.is/new/files/photoalbums/3830/25434.jpg[/img:16nrsz6w]
Þetta er svo sem ekkert mál.
Við sem ólumst upp í sveitinni og bundum bagga með bagga-vél sem var með V-vagni aftan í sem safnaði í sig böggunum, fengm þessa "náðar-gáfu" í vöggugjöf :-).
.
Skal reyndar viðurkenna að vera með 3 kerrur aftan í er aðeins meiri kúnst.
Þess má geta að 4Runner bæti persónlegt met í eyðslu með þessa hersingu fyrir aftan sig.
.
Hér eru fl. myndir:
[url=http://www.uppsveitir.is/knarrarholt/Myndir/april2004-juli2004/slides/9juli2004%20029.html:16nrsz6w][b:16nrsz6w]Mynd 1[/b:16nrsz6w][/url:16nrsz6w][url=http://www.uppsveitir.is/knarrarholt/Myndir/agust2004-okt2004/slides/11sept2004%20001.html:16nrsz6w][b:16nrsz6w]Mynd 2[/b:16nrsz6w][/url:16nrsz6w]
[url=http://www.uppsveitir.is/knarrarholt/Myndir/april2005-mai2005/slides/3juni2005%20008.html:16nrsz6w][b:16nrsz6w]Mynd 3[/b:16nrsz6w][/url:16nrsz6w]
[url=http://www.uppsveitir.is/knarrarholt/myndir/juli2006-/slides/28juni2006%20035.html:16nrsz6w][b:16nrsz6w]Ekið yfir Þjórsá (Sóleyjarhöfða vað) með 2 kerrur[/b:16nrsz6w][/url:16nrsz6w]
[url=http://www.uppsveitir.is/knarrarholt/myndir/juli2006-/slides/28juni2006%20026.html:16nrsz6w][b:16nrsz6w]Ekið yfir Kisu með 2 kerrur[/b:16nrsz6w][/url:16nrsz6w]
Kv. Atli E.
04.05.2009 at 09:13 #647100Er þetta ekki alveg upplagt sem keppnisgrein á einhverju sumarmóti jeppakarla eða annarra bílakeppnigaura?
Ég sé fyrir mér braut með nokkrum hliðum sem þarf að bakka bíl með kerru gegn um, tímatöku og svoleiðis. Svo má hafa sérstakan flokk fyrir þá sem segjast kunna að bakka með tvær kerrur.
Þekkir einhver til svona keppna hér heima eða erlendis ?Ágúst
04.05.2009 at 09:52 #647102Ég veit ekki betur en að þetta sé keppnisgrein hjá UMFÍ eða einhverjum álíka samtökum. Þar er líka keppt í pönnuköku bakstri og mörgum öðrum gefandi íþróttagreinum.
04.05.2009 at 12:42 #647104Ég myndi treista mér til að bakka svona dóti þó ég hafi aldrei prufað það áður. Bara snúa stýrinu lítið og fara hægt yfir. Þegar ég var í meiraprófinu á sínum tíma talaði kennarinn um það að snúa stýrinu ekki meir en 1/4 úr hring þegar bakkað sé með beislisvagn. Ég held að það sama eigi við hér.
Mbk. Ingi Bjöss.
04.05.2009 at 12:46 #647106Hvernig er það veit einhver hvernig þetta kemur út þegar það er horf á þetta frá sjónarhlóli umferðarlaga?
Það er að segja má setja fleiri en eina kerru aftan í hvern bíl?
04.05.2009 at 13:28 #647108Var að kanna þetta og fann ekkert um þetta.
Leitaði á althingi.is ug us.is
en það eru góðar og miklar uplýsingar um aftanívagna á us.isKveðja
Árni F.
04.05.2009 at 13:52 #647110veit ég ekki betur en að þetta sé aðalega bara bannað.
En það er án efa töluvert erfiðara að bakka með tvær kerrur heldur en svona beislisvagn. Allar hreyfingar með kerrurnar verða miklu öfgafengnari vegna þess að krókurinn aftaná fremri kerrunni liggur langt fyrir aftan hjólin á henni.
Rúnar.
04.05.2009 at 14:33 #647112Þegar Palli Halldórs var að trukka hjá Ármanni Leifs í gamla daga, þá bakkaði hann svona vagni eins og ekkert væri, jafnvel fyrir horn á planinu hjá VM í Borgartúni, gott ef hann bakkaði ekki hraðar en sendibíllinn kemst áfram…
kv,
Eiki
04.05.2009 at 16:57 #647114Síðast þegar ég vissi þá var ekki leifilegt að vera með 2 kerrur í afturdragi á almennun ökutækjum(sel það ekki dýrara en ég keypti það) en í sveitinni þá hefur verið mikið um að þetta sé gert og hef ég reinslu af því sjálfur menn eru þar oft að draga samstæður af rúlluvélum og pökkunarvélum þar sem ansi oft reinir á þessa færni, einnig gerði ég það mikið þegar við vorum að flytja rúllurnar að ég var með tvo sturtuvagna í afturdragi til að nýta ferðirnar betur þar sem það þurfti að fara oft á tíðum langar leiðir með þetta og það í almennri umferð, það var aldrei gerð athugasemd við þetta hjá mér nema einu sinni þar sem vegagerðarmenn höfðu áhyggjur af einni brú sem ég var alltaf að fara yfir, eina athugasemdin sem ég fékk var að traktorinn var of léttur á framhjólum og vildu að ég setti um 600-800kg á trínið á honum til að hafa betri stjórn.
Að bakka með svona er ekki mikið mál og þrftu ég ávalt að bakka svotil nánast hringin í kringum hlöðuna á bænum svo að það var hægt að losa.
Ef menn vilja reina eitthvað sem ég tel vera ógerlegt að þá ættur þeir að reina að bakka með tvo eða fleirri beislisvagna í afturdragi svona til skemmtunar að þá er mitt personulega met er um 30 metrar þegar við vorum að reina þetta þegar ég vann hjá Icelandair, flestir voru búnir að koma sér í ógöngu við að bakka með svona á innan við 5 metra.
Kveðja
Addikr
R-1435
04.05.2009 at 17:43 #647116Eftir því sem mér skylst þá erþetta ekki leyfilegt. En samt er SMÁ vafi á því, ég skil ekki reglurnar allveg á köflum. Ef á að draga kerru með annari kerra þarf að vera skráður tengibúnaður þeirri sem dregur, og ég get ekki séð að það sé leyfilegt. Svo get ekki betur séð en að hámarks lengd ækis taki á þessu líka, svo að ekki sé talað um leyfilega hámrks heildarþyngd.
En það sem menn gera síðan á túni uppí sveit er síðan talsvert allt annað. Þar virðast ekki almennar umferðar reglur gilda
04.05.2009 at 18:11 #647118Reyndar gilda sömu umferðarreglur á túnum sveitabæja landsins, og reyndar um allt land; sama hvort maður er á fjöllum eða á almennum vegum. En það eru hins vegar til undanþágur og reglugerðir sem segja "nákvæmlega" (og ekki alveg nógu nákvæmlega) hvernig hlutum skal háttað. Til dæmis má 13 ára krakki keyra trakktor í sveitinni, en ekki á almennum vegi og ekki nema hann sé ákveðið úbúinn. Svo er annað hvort menn fari í öllu eftir þeim, einkum þegar yfirvaldið er ekki að fylgjast með.
Svo er það líka í sjálfu sér ekkert mál að bakka með svona klónaða kerru. Bara byrja rétt og fylgja því vel eftir og fara RÓLEGA. Það er einmitt stressið sem gerir út við að menn nái að bakka með hinn og þennan búnað aftan í bílunum hjá sér. Eitthvað vilja menn fara að flýta sér þegar margir standa og horfa á og þá vilja menn fara að sýna hvað þeir eru klárir og fara að flýta sér allt of mikið.Haffi
04.05.2009 at 22:43 #647120Að einhverjir öfundsjukir borgarstrakar sem halda að þetta se ekki ´hægt þyrftu þa að fara að röfla
um að þetta se Olöglegt, ma ekki gera svona,
skamm skamm. Farið bara ut að æfa 😉
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.