This topic contains 0 replies, has 1 voice, and was last updated by Magnús Hallur Norðdahl 12 years, 10 months ago.
-
Topic
-
Já nú var kominn tími til að setja Móra í gang , með öllum þeim tilfæringum til heira þessum bíl . Það er fyrst að opna húddið og setja straum rafana í samband í réttri röð annars slær hann út .Þegar ég lokaði húddinu kom í ljós að það leiddi út og neistaði aðeins , það breitti engu í gang skall bíllinn . Þá er að komast innn í bílinn ,með öllum þeim tilfæringum sem á við þennan bíl . Ekki fer maður innum bílstjóra hurðin hún er úr sambandi og ekki um farþega hurð hún opnast bara innan frá , þá er að eina leiðinn , og hún er í lagi . Þá er opna lifta efri hlera upp og neðri til hliðar , síðan er að skríða inn og setjasi í bílstjóra sætið , setja bílinn í gang en hvar eru lyklarnir . Þeir eru í hleranum á aftann þá er fara út um farþega hurð en hvað er þetta hún líka farinn úr sambandi þá bara brölta aftur í , en við það skellist efri hlerinn og ég sitt fastur inní bílnum , og ekki með síman á mér þá er bara flauta á hjálp , já já á bílinn slær út . Hvað skal nú gera ekki fer maður að kalla á hjálp fastur inní sínum eiginn bíl og ekki þýðir að skrúa niður rúður þær eru báðar bilaðar og fastar uppi . Þá er bara bíða eftir einhverjum sem tæki eftir manni , ekki var biðinn löng þar kom lítil stelpa og bað ég hana sækja hjálp , hún kom með mömmu sína og hún spurði hvað væri að . Og ég sagði henni það ,hún fór að hlæga og tók upp símann og tók nokkrar myndir á síman og svo hló hún mikið og hjálpaði mér út úr bílnum .Þá er að setja aftur ramagn á bílinn og festa efri hleran betur og brölta inní bílinn og setja í gang , en hvað var þetta bílinn fór að flauta eins og hann gat enda ekki furða ég lamdi of fast á flautuna áðan og þar með sat hún föst , ég brölti út úr bílnum og tók straumin af honum þá þagnaði flautann , þá er best að skoða hvað var af og togaði nokkra víra svo að ég fékk nokkur stuð í mig . Ekki veit ég hvort bílinn leiði meira út en ég sjálfur með tilheirandi neista flugi , svo það er best að loka hoddinu og læsa skottinu og fara bara aftur inn . Ég er vissum ef bílinn fengi málið þá mundi hann hlæga og gera grín af mínum bíla viðgerðum . Já bílinn er búinn að standa í 3 vikur , fjanda kornið mér sínist hann brosa af mér hver sinn sem ég fer út með ruslið skrattin sá.. ( Einn sem er sár út í bílinn sinn )
MHN
You must be logged in to reply to this topic.