This topic contains 23 replies, has 1 voice, and was last updated by  Jón G Snæland 17 years, 7 months ago.
- 
		
		Topic
- 
		Af textavarpi sjónvarpsins 
 Ákveðnir hópar fá ódýrara bensín
 Þeir sem eru í Ferðaklúbbnum 4×4 fá 12
 króna afslátt af bensínlítranum hjá
 Skeljungi. Formaður klúbbsins segir
 engin inntökuskilyrði – ekki þurfi einu
 sinni að eiga bíl. Runólfur Ólafsson,
 framkvæmdastjóri Félags íslenskra
 bifreiðaeigenda, telur að olíufélögin
 leggi meira á eldsneytisverð svo þau
 geti boðið ákveðnum hópum vænan
 afslátt.Félagar í 4×4 eru um 6000 talsins, 
 segir Agnes Karen Sigurðardóttir,
 formaður. Árgjaldið er 6000 krónur en
 hver félagi getur boðið einum vini eða
 fjölskyldumeðlimi ókeypis aukaaðild með
 tilheyrandi fríðindum.Hvernig og hver fær félagsmenn á skrá klúbbsins í 6000 og af hverju. Samkvæmt mínum heimildum eru félagsmann milli 2500-2600 þ.a.s tölur frá því í janúar. 6000x 6000 í félagsgjöld = 36000000 
You must be logged in to reply to this topic.
