FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

4×4 vandræði

by Ólafur Ragnar Birgisson

Forsíða › Forums › Spjallið › Vefsíðan › 4×4 vandræði

This topic contains 6 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Þórarinn Þórarinsson Þórarinn Þórarinsson 18 years, 6 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 19.11.2006 at 22:53 #198998
    Profile photo of Ólafur Ragnar Birgisson
    Ólafur Ragnar Birgisson
    Member

    Ég er í vandræðum með cheeroke árg ´04, en málið er það að hann á að vera fulltime 4×4 en það virkar ekki 4×4 þegar hann er í fulltime. Þegar ég set hann í lo þá virkar allt eðlilega… Hefur einhver hugmynd hvað gæti verið að?????

  • Creator
    Topic
Viewing 6 replies - 1 through 6 (of 6 total)
  • Author
    Replies
  • 19.11.2006 at 23:11 #568774
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Ertu með QuadraTrac eða SelecTrac millikassann í honum?’

    kv. Kristnn





    19.11.2006 at 23:48 #568776
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Þessi lýsing hljómar mjög svipað og hvernig millikassinn í gamla wagganum mínum hljómaði. það var reyndar 1970 módel af kassa en dugði ágætlega en ég gat valið milli þess að keyra í afturdrifinu, sídrifi (sem virkar eins og mismunadrif milli fram og aftur úttakana og þá keyrði ég bílinn með átaki á öllum hjólum en algerlega átakalaust) og ef ég stakk honum í lágadrifið þá læsti hann millikassanum og þá varð hann eins og aðrir 4×4 jeppar.

    Þetta er í sjálfu sér bráðsniðugur búnaður en maður þarf að geta stjórnað þessu betur t.d. notað sídrifið með lágadrifinu og læst kassanum í hágadrifinu.

    Kv Izan





    19.11.2006 at 23:56 #568778
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    QuadraTrac (og QuadraDrive) millikassinn í 1999-2004 er þannig að undir venjulegum kringumstæðum fer meirihlutinn af aflinu í afturdrifið, en ef framhjólin og afturdekkin fara ekki jafnhratt sér vökvadæla í millikassanum um að tengja framdrifið. Pabbi er með svona í sínum og mér finnst þetta ekki virka alveg nógu vel þegar það á að fara að taka eitthvað á þessu, eins og í drullu eða snjó, en þá er ég fljótur að detta í spól og þá set ég bara í lágadrifið.
    .
    SelecTrac er síðan með venjulegt mismunadrif þegar hann er í ólæstu fjórhjóladrifi.
    .
    kv. Kristinn





    20.11.2006 at 00:57 #568780
    Profile photo of Ólafur Ragnar Birgisson
    Ólafur Ragnar Birgisson
    Member
    • Umræður: 7
    • Svör: 48

    já þetta getur semsagt verið tengt því að það vanti jafnvel meiri vökva á millikass?? Ég veit ekki hvað kassinn heitir en þetta er sá sem er ekki með val milli 4wheel og 2wheel, aðeins fulltime og low. En hann spólar aðeins að aftan og í litlu álagi, alveg einsog að keyra afturdrifinn bíl..





    20.11.2006 at 09:25 #568782
    Profile photo of Gunnar Ingi Arnarson
    Gunnar Ingi Arnarson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1378

    Eins og sagt var áður er kúpling eða dæla í millikassanum sem sér um að tengja framdrifið. Þessi búnaður er mjög góður undir original bíla og virkar í öllum þeim bílum sem ég hef komið nálægt.. eða sirka 5 … kannski ekki of margir. En allt getur þetta nú bilað og það eru dæmi um það að dælan eða kúplingin sé einfaldlega biluð og þá virkar þetta ekki neitt. En þessi full time stilling er ekki ætluð til að notast á fjöllum og auðvelt er að eyðileggja svona kúplingu ef mikið er um spól og hjakk en lága drifið á að sinna því hlutverki. Farðu með bílinn til Bíljöfur ef þú vilt láta kanna þetta fyrir þig. Þeir eru með mestu reynsluna á viðgerðum í grand cherokee. Ef að millikassinn er ónýtur er líklegast ódýrast að panta hann beint frá usa. Mig minnir að dæla í svona kassa kosti nálægt 100 þús krónur.. svipað og nýr kassi frá usa.

    kv Gunnar





    20.11.2006 at 14:21 #568784
    Profile photo of Þórarinn Þórarinsson
    Þórarinn Þórarinsson
    Participant
    • Umræður: 6
    • Svör: 186

    Hef lent í þessu sjálfur ef það vantar bara smá á millikassan í grandinum þá virkar ekki framdrifið nema í lága





  • Author
    Replies
Viewing 6 replies - 1 through 6 (of 6 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.