Forsíða › Forums › Spjallið › Innanfélagsmál › 4×4 / Skeljungur
This topic contains 64 replies, has 1 voice, and was last updated by Eygló Sesselja Aradóttir 16 years, 8 months ago.
-
CreatorTopic
-
04.12.2007 at 09:16 #201312
Góðan daginn félagar.
Mig langar að nota þetta tækifæri til þess að óska mönnum til hamingju með nýjan samning við Skeljung, sem kynntur var á félagsfundi í gærkvöldi.
Það er greinilegt að þeir Skeljungsmenn hafa mikla trú á félaginu okkar og vilja með góðum hætti styðja okkur í því mikla starfi sem fram fer.
Vona að ég fari rétt með tölur, en við fáum allt að 12 kr/ lítr afslátt frá hæsta verði, auk annara afslátta / tilboða. En höfðinglegur stuðningur beint til félagsins er uppá 10.000.000 kr á ári í 5 ár = 50.000.000 kr takk fyrir.
kv
Palli -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
04.12.2007 at 18:39 #605440
Sigþór hringdi í mig og bað mig um að láta vita að hann hefði aðeins hlaupið á sig þegar hann setti þessa fyrirspurn inn á vefinn. Við ræddum saman og gerðum gott úr þessu okkar á milli
Kv.
Barbara Ósk
04.12.2007 at 18:45 #605442Þetta er flott mál – gott að hægt var að fá enn betri kjör fyrir félagsmenn. Til hamingju með þetta Agnes
Feginn er ég að ekki var farið að skipta yfir í viðskipti við N1 – það er svo vont kaffið þar.
Ég nennti ekki á fundinn – var eitthvað rætt um húsnæðismál ? Er klúbburinn að fara að flytja og þá hvert er stefnt ?
Benni
04.12.2007 at 18:46 #605444Viðskiptakortið.
Senda þarf á f4x4@f4x4.is til að fá viðskiptakortið.
Húsnæðismál eru í vinnslu.
kv
Agnes karen Sig
Formaður f4x4
04.12.2007 at 20:07 #605446"Sendið fyrirspurn til boi@skeljungur.is og hann hefur síðan samband við klúbbin og fær upplýsingar um það hvort viðkomandi félagsmaður sé greiddur."
En þeir sem alltaf eru um hausinn eins og hænurass í vindi; fá þeir engan afslátt? Og fá þá túperaðir meiri afslátt 😉
04.12.2007 at 20:11 #605448Það er nýlega komið í lög klúbbsins að félagsmenn geti bara verið þeir sem séu með flottar greiðslur 😉
Það er enn verið að ræða um hvoru megin línunnar skalli sé… lagabreytinganefnd situr yfir því máli fram að aðalfundi.
Forsprakinn að þessu er Eyþór varamaður enda þekktur sem maðurinn með flottasta hárið eftir árshátíð 2006…
05.12.2007 at 14:35 #605450Hvernig er það ef að við ætlum að sækja um svona kort sem er ekki tengt við kredidkort heldur bara reikningur, sæki ég þá um það á síðunni þeirra eða með því að senda e-mail á f4x4? Og ef að það á að senda á ykkar, hvaða upplýsingar er það þá sem maður á að senda?
Kv, Ásta
05.12.2007 at 14:39 #605452Það á eftir að batna en núna er best að senda email á f4x4@f4x4.is til að fá viðskiptakortið. Hafa nafn, kennitölu, félagsnr, GSM síma og heimilisfang í póstinum ásamt nafni aukafélaga ef þið viljið fá tvö kort (hans og hennar… voða voða sætt).
Þetta er svo sent til Skeljungs sem gera kortið og þegar þú færð það í hendurnar er best að þú setjir þig í samband við Þjónustuverið þeirra og annað hvort tengir við kreditkort eða látir senda reikning (sama kortið, bara tveir greiðslumöguleikar). Einnig gott að vita að sjálfgefin úttektarheimild á mánuði eru 50.000kr en því má breyta þegar haft er samband við Skeljung til að ákveða greiðslufyrirkomulag.
05.12.2007 at 14:48 #605454Takk æðislega fyrir þessar upplýsingar Tryggvi, þær koma að miklum notum.
Kv, Ásta
05.12.2007 at 20:39 #605456Til hamingju með þennan samning. Þetta er glæsilegt. Kærar þakkir.
05.12.2007 at 21:21 #605458Flottur samningur Og ég sem var að hóta því að hætta að versla við shell. Nú ét ég bara hattinn minn með bestu list og fer og sæki kort hjá shell, : )
05.12.2007 at 21:52 #605460Fyrst ég er að tjá mig hérna þá vil ég nota tækifærið til að óska stjórninni til hamingju með [b:1ai7t3km]50.000.000 [/b:1ai7t3km] (lenti í smá vandræðum með hvar ég ætti að setja punktana… svo mörg 0, en þetta eru liðlega fimmtíumilljónir í einu orði), sem að munu skila sér til klúbbsins á næstu 5 árum. Ef þið eruð í vandræðum með að eyða þessu þá er ég alveg ágætlega liðtæk í því ;->
Nú er ég að spöglera…
Hvernig er með þau afsláttarkjör sem að hafa verið hjá N1 (bílanaust) eru þau enn í gildi s.s. þjónusta við talstöðvar o.þ.h. enda eru þeir annálaðir fyrir gott viðmót og góða þjónustulund… þó að verðlagningin sé ekki sú hagstæðasta…kv. Stef… ekki sú skarpasta.
05.12.2007 at 22:11 #605462Það væri allavega ekki vel grundað hjá N1 að fara í fýlu og klippa á alla afslætti akkúrat núna. Frekar tækifæri til að reyna að halda í horfinu.
Við skulum vona það besta og búast við því versta
Mér líður samt hálf kjánalega með að framvísa klúbbskírteini merktu Shell í bak og fyrir þegar ég versla í Bílanaust (N1).
Hefur eitthvað heyrst frá þeim?
05.12.2007 at 23:57 #605464Ég og kærastan búum uppá Kjalarnesi og vinnum bæði í Reykjavík. Gerum út Terrano II á 36" og Subaru Forrester og þessi afsláttur er að spara okkur hart nær 10.000 á mánuði.
Ég fagna þessum aukna afslætti, yndislegt að eitthvað annað hækka en bara afborganir og gjöld.
Viðskiftakortið er ótrúlega þæginlegt og ég hvet alla félagsmenn til að níta það svo við fáum kanski hærri afslátt næst 😉
06.12.2007 at 09:25 #605466N1 hefur ekki í hyggju mér vitanlega að hætta að gefa félagsmönnum afslátt í gamla Bílanaust.
Kv.
Barbara Ósk
06.12.2007 at 09:43 #605468Eitthvað hlýtur klúbburinn að þurfa að "gefa" í staðinn fyrir þetta framlag. Þurfum við félagsmenn kannski að afhenda Skeljungi okkar elsta barn eða hvað? Ég komst ekki á fundinn, kannski var þetta rætt þar?
–
Bjarni G.
06.12.2007 at 09:54 #605470Frábær frammistaða að lenda þetta góðum samningi. Þarf ekki að koma samningnum í heild sinni á vefinn svo félagsmenn geti kynnt sér hann.
06.12.2007 at 10:04 #605472Þeir voru mjöööööög fastir á því að taka bara við elsta barni ef það væri strákur. Við sáum svo sem ekkert að því 😉
En að gríni slepptu þá eru forsendur samningsins mjög svipaðar og hefur verið, stefna að sýnilegra og meira samstarfi, auglýsingar á vefsíðu og útgefnum ritum, hefja ferðir þar sem það hentar hjá Skeljungi (hugsanlega með einhverjum tilboðum í gangi í tengslum við það) og bjóða Skeljungi að vera með kynningar á félagsfundum og á vefsíðu. Þetta er helstu verkefni og skyldur F4x4, eftir besta minni. Þetta samkomulag takmarkar heldur ekki möguleika klúbbsins á að leita eftir öðrum styrkjum og auglýsingum.
06.12.2007 at 14:12 #605474Tryggvi… ég er um það bil að setja mig í samband við feminista félagið…. (bara ef einhver gæti gefið mér númerið).
Það er ekki nóg með það að um leið og klippt er á naflastrenginn að þá eru börn litgreind í kyn og þar með er búið að móta stúlkur sem undirmálsþegna fyrir lífstíð… Sem betur fer er verið að taka á þessu mikilvæga málefni hjá okkar hæstvirtu þingkonukörlum (vildi ekki gera upp á milli kynjanna).. Ekki myndum við vilja að þau eyddu tímanum í einhverja vitleysu eins og lækkun á olíugjöldum, ó nei.
Kemur ekki svo í ljós að stúlkur duga ekki einu sinni sem skiptimynt í jafn einföldum samningum og upp á 50.000.000 við eitthvað olíufélag… Skilum peningunum strax…Þetta er greinilega mál sem á að fara inn á borð hjá feministunum… Mér finnst að það eigi að starfa feministaráð innan f4x4 Dramaklúbbsins til að taka á svona málum…Kv. stef… ;-> feiministi ..hm
06.12.2007 at 14:20 #605476Þetta segir okkur að það dugar ekkert klink í viðskiptum við olíufélög, eitt og eitt rifbein er bara ekki nóg (úppps, er ég að grafa mér eigin gröf núna).
Gangið á guðs vegum – Skúli
06.12.2007 at 14:29 #605478S.s. á næsta aðalfundi kemur lagabreytingatillaga frá Stefaníu um að stofna Feministanefnd innan F4x4? Við erum nú komin langleiðina í það nú þegar, kvennaferð… paraferð (kvennaferð II). Í leiðinni legg ég til að það verði sérstök 46+ nefnd og sérstök 35- nefnd og svo verði sérstök nefnd fyrir sídrifsbíla fyrir okkur Skúla og svo önnur fyrir rauða bíla (fyrir okkur Skúla og Stefaníu) og svo verði þvernefndarlegt ráð til að ráða ráðum sínum til að það sé nú örugglega hægt að ráðskast með alla með mismunandi hætti…
Er þetta kannski að fara út í einhverjar ógöngur? 😉
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.