FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

49″ Irok

by Gunnar Ingi Arnarson

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › 49″ Irok

This topic contains 4 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Gunnar Ingi Arnarson Gunnar Ingi Arnarson 18 years, 6 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 06.12.2006 at 17:49 #199102
    Profile photo of Gunnar Ingi Arnarson
    Gunnar Ingi Arnarson
    Participant

    Sælir fjallageitur

    Jæja nú er nú komin 2 ár síðan menn fóru að notast við ofurstóra hjólbarða og þá á ég við 49″ Irokinn og 46″ mickey T.

    Nú ætti að vera komin ágæt reynsla á bæði þessi dekk og nokkrir risar farnir að nota þetta.

    Hvernig eru þessi dekk að koma út varðandi aksturseiginleika og drifgetu… ef við miðum við dc 44″ t.d. (kannski ekki sambærilegt… en þau voru nú á toppinum fyrir stærstu nothæfu jeppadekkinn hér í mörg ár.)

    Með von um góð svör frá mönnum sem eru að nota þetta… (ekki spekinga sem telja hitt og þetta)

    kv
    Gunnar Ingi

  • Creator
    Topic
Viewing 4 replies - 1 through 4 (of 4 total)
  • Author
    Replies
  • 07.12.2006 at 10:01 #570492
    Profile photo of Gunnar Ingi Arnarson
    Gunnar Ingi Arnarson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1378

    Það er nú eh lítið af þessum trukkamönnum sem eru virkir í spjallinu greinilega…..

    En þið hinir sem hafði ferðast með svona tröllum.. eru þeir að stinga ykkur af..

    kv

    Gunnar forvitinn um ofurstærðir..





    07.12.2006 at 10:25 #570494
    Profile photo of Benedikt Magnússon
    Benedikt Magnússon
    Participant
    • Umræður: 88
    • Svör: 3004

    Ég get svo sem ekki talað af mikilli eigin reynslu – enda bara búinn að vera á þessum hjólum í 3 mánuði og þar á undan á 46“ í 3 eða 4.

    Ef við byrjum á aksturseiginleikum – 49“ dekkin bera af í samanburði við 44“ DC – og í raun finnst mér aksturseiginleikarnir á Ford á 49" vera svipaðir og voru á gamla Pajeró á 38". Ekkert hopp sem heitið getur nema svona rétt eftir að farið er af stað eftir langa stöðu, bíllinn rásar ekkert og hjólför í malbiki trufla ekki.

    Á 46" voru aksturseiginleikarnir líka miklu betri en á 44" DC en samt ekki jafn góðir og á 49". Hann rásaði örlítið og hoppaði helling. En hoppið skýrðist svo síðar þegar dekkin voru tekin af felgunum, en þá hafði fínn salli losnað innan úr dekkjunum og var á fullri ferð inni í þeim og truflaði balanseringu.

    Hvað hávaða varðar þá steinþegja negld 49" Irok í samanburði við Mikróskorin 46" MT – hávaðinn í 46" fannst mér gjörsamlega óþolandi. En hljóðið í 49" er ekki meira en í 38" GH eða Mudder.

    Hvað drifgetuna varðar þá hefur nú ekki mikið reynt á það hjá mér. Þó hef ég farið aðeins í krapa á 46" og þá var ég enþá í afturdrifinu þegar 38" bílar voru komnir á kaf.

    Á 49" þá hefur bíllinn virkað frábærlega – ég var kominn í krapa upp að stuðara um daginn (1 – 1,2 m) og fann ekki fyrir því. Síðan var ég í leiðinda færi á langjökli um daginn, skel og púður undir. Þar gekk mér ekki vel fyrr en ég hleypti úr niður fyrir 2 pund – en þá fór líka allt að gerast og ég bara keyrði. Með mér voru þar 44" og 38" bílar og þeir áttu í meira basli með þetta færi.

    Síðan þekki ég eiginlega drifgetuna betur frá því í fyrra þegar ég var á 44" Pajeró og ferðaðist nokkuð með tveimur 49" Ford. Sú reynsla var einfaldlega þannig að ég varð að eignast svona bíl !!! Það var nokk sama hvaða færi var – þeir drifu alltaf meira heldur en 44" bílarnir – og oft þegar við vorum í basli þá bara keyrðu þeir eins og ekkert væri fyrir. Síðan lentum við í aðstæðum þar sem 44" bílarnir komust einfaldlega ekki – þar ruddust trukkarnir áfram á stærðinni og aflinu og drógu svo "smábílana" yfir…

    Þannig að 49" dekkin eru að virka frábærlega undir 350 Ford, bæði hvað drifgetu og aksturseiginleika varðar. Hvort þau virki eins vel undir léttari eða aflminni bíl veit ég ekki.

    Benni





    07.12.2006 at 10:54 #570496
    Profile photo of Magnús Hallur Norðdahl
    Magnús Hallur Norðdahl
    Participant
    • Umræður: 713
    • Svör: 2671

    ER 49 t ekki að verða of lítið fyrir bíla sem eru komnir yfir
    3,5 ton eða meira mér skilst að sumir af þessum stóru
    séu ná 5a tonninu breittir hvenar sér maður Ford 650
    á 52 t eða 53 t og kannski stæra.

    [img:31uxvupg]http://i4.ebayimg.com/03/i/08/62/33/95_1.JPG[/img:31uxvupg]
    52T

    kv,,,MHN





    07.12.2006 at 13:39 #570498
    Profile photo of Gunnar Ingi Arnarson
    Gunnar Ingi Arnarson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1378

    Þakka þér fyrir góð og upplýsandi svör Benedikt. Það vantaði einmitt umræðu um þessi dekk og ég er viss um að margir eru forvitnir um hvernig þið á tröllabílunum gengur. Gaman að heyra hvað irokinn er að standa sig vel varðandi aksturseiginleikana, hljóðmyndun og drifgetuna. Þetta eru greinilega byltingardekk .. ef svo má að orði komast.

    kv
    gunnar





  • Author
    Replies
Viewing 4 replies - 1 through 4 (of 4 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.