FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

46″ – 49″ 4 tonna för !

by Gunnar Ingi Arnarson

Forsíða › Forums › Spjallið › Færð á fjöllum › 46″ – 49″ 4 tonna för !

This topic contains 66 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Benedikt Sigurgeirsson Benedikt Sigurgeirsson 18 years, 2 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 21.03.2007 at 21:38 #199974
    Profile photo of Gunnar Ingi Arnarson
    Gunnar Ingi Arnarson
    Participant

    Ég hef tekið eftir því hér á myndasíðunni okkar að menn tala oft um mikla drifgetu hjá þessum nýju tröllafélögum okkar. Menn séu í sífellu að festa sig í förunum eftir þá meðan þeir lulla bara áfram.

    Auðvitað er glórulaust fyrir 38″ breyttan fjallabíl að keyra í förum eftir 4 tonna 46″ – 49″ breyttan fjallabíl. Þar sem bæði hjólför og síðan dýpt eiga engan veginn samleið hjá þessum tveimur jeppum. Förin eru einfaldlega það djúp að vonlaust er fyrir litlu jeppana okkar að ná niður þar sem tröllin hafa farið á undan.

    Ég lenti í svipuðum aðstæðum þegar ég var á 36″ dekkjum og lenti í förum eftir 44″ bíla og oftar en ekki var bíllinn á kviðnum með öll 4 hjól á lofti.

    Menn verða að velja sér sambærilega ferðafélaga á svipuðum tækjum, bara svona til að flýta yfirferðinni.

    Það var einn Ram með okkur í hóp á fjöllum. Hópurinn okkar samanstendur af Wrangler og Cherokee á 38″ börðum. Raminn var á 44″ og síðan var hann það breiður að förin á milli okkar og hans pössuðu engan veginn saman. Ef raminn var fremstur drifum við illa í förum eftir hann og ef við vorum fremstir þá þurfti hann hvort eð er að ryðja ný för þar sem hjólförin eftir okkur voru mun mjórri. Í dag er hann (faðir minn) kominn á Grand v8 á 39.5 Irok og yfirferðin er mun auðveldari fyrir okkar hóp.

    kv
    Gunnar
    Hjólfaradýptarpælingarmaður (3 lengsta orð á Íslandi)

  • Creator
    Topic
Viewing 6 replies - 61 through 66 (of 66 total)
← 1 … 3 4
  • Author
    Replies
  • 25.03.2007 at 01:11 #585682
    Profile photo of Georg Þór Steindórsson
    Georg Þór Steindórsson
    Participant
    • Umræður: 46
    • Svör: 474

    þig vantar 3" uppá í trukkaflokkinn 😉





    25.03.2007 at 01:35 #585684
    Profile photo of Gunnar Ingi Arnarson
    Gunnar Ingi Arnarson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1378

    Bæbæ… þú hefur greinilega aldrei ferðast með mér….. eða mínum ferðafélögum

    Jæja ég fæ allavega lægri þyngdarstuðul heldur en Benni á stóru túttunum.. þar sem mín "blikkdós" fær 1.49 í flotstuðul tómur samkv Gummij.

    En já, benni þú ert loksins kominn á farartæki sem er á nógu stórum hjólum til að farartækið drífi nóg á fjöllum. Og það er gaman að sjá að menn eru farnir að gera einhverja almennilega hluti… þá meina ég annað en að eyða milljónum í japanskt dótarí sem síðan drífur ekkert betra en 1 millj króna ódýr amerískur jeppi… óþarfi að taka fram tegund.

    Varðandi hjólabil…. þá er það ekkert sem virðist skipta sköpum…. t.d. er mín blikkdós töluvert styttri heldur en t.d Cherokee sem er svipað þungur og minn og þessir tveir eru að drífa svipað mikið.

    Jú auðvitað er mikilvægt að 90% af þyngdinni sé ekki öll á framhjólunum, en lengdin á milli hjólana skiptir allavega ekki sköpum, ég skal sanna það með því að skora á alla 38" jeppa og drífa ekki minna en þeir með mína stuttu blikkdós. (síðast þegar ég gáði var þykkari í boddýi á usa bílum en Japönskum) ok núna heitir usa… hlunkurinn og japanska blikkdósin.

    Taflan sem ég gerði, er ekki villulaus, en hún segir nokkurn veginn drifgetu bíla, og þótt að sumir segja að 90 cruser sem vigtar 2.7 t tilbúinn á fjöll drífi eh… þá eru viðmiðiðin ekki rétt. Minn vigtar 1600 tómur, og sirka 2 t tilbúinn á fjöll…. úff mig langar ekki í 700 kg auka … ég veðja ekki á það hlutfall.

    en ford á 49" er með svipuð hlutföll og minn hlunkur, eina sem mig hlakkar til er að hitta slík tröll á fjöllum og taka smá snúning í þungu færi , því væntanlega drífa þeir jafn mikið samkvæmt minni pælingu og Gummij töflunni.

    kv Gunni hlunkur… sífellt í þyngdarpælingum.





    25.03.2007 at 01:38 #585686
    Profile photo of Hrönn Sigurðardóttir
    Hrönn Sigurðardóttir
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 285

    Goggi þetta heitir víst Sértrúarsöfnuður :) Benni er laginn
    að keyra og Fordinn hans klárlega einn sá öflugasti á landinu svo ekki sé nú talað um dótastuðulinn :) hehe en ég held samt að ég ná nú að hanga helvíti vel í honum.það vantar vissulega 3" tommur uppá á hæðina
    en ég er með 1 tommu breiðari felgur og að mig minnir
    allavega 300 kílóum léttari bíl :) En svo hefur hann auðvita lóló og Banks :) sem hjálpar honum örugglega við einhverjar aðstæður :) Þannig að hver veit ??
    við höfum nú ferðast soldið saman og eigum eftir að ferðast helling saman þannig að það styttist þá væntanlega í það að ég verði honum til trafala :) En hann hefur aldrei þurft að hjálpa mér neitt hingað til
    og ég alltaf komist það sem ég hef reynt að komast vandræðalaust :)

    Kveðja Sæmi sem má vera með 5 farþega og er með burðargetu uppá 1590 Kíló :)))





    25.03.2007 at 01:42 #585688
    Profile photo of Gunnar Ingi Arnarson
    Gunnar Ingi Arnarson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1378

    Ég tek það fram að taflan mín hér að ofan… er gerð miðað við tóma bíla… ekki tilbúna á fjöll.

    Menn hlaða bílana sína mismikið, en ég tel að 400 kg, sé nóg fyrir 2 daga ferð. allavega dugir það fyrir mig. 1 x 80 kg ökumaður, 60 kg kóari, 170 lítrar bensín, nesti plús búnaður 30 kg. … Verkfæri, 10 kg. ok þetta eru sirka 360… en sirka 400 kg já…

    auðvitað er hægt að hlaða bíla með 800 kg af drasli en það er á vilja hvers og eins.

    En drifgetan sem ég áætla er miðuð við tóma þyngd bíla.

    kv
    Gunnar…

    Ég viðurkenni að 46" og yfir drifgetan hjá mér gæti skakkast um einhver kíló , þar sem ekki mikil eftirtekt hefur verið hjá mér hjá þeim bílum þar sem þeir eru tiltölulega nýjir í bransanum. En annars er þessi tafla í flestum tilfellum mjög rétt.





    25.03.2007 at 03:15 #585690
    Profile photo of Kristján Krossdal
    Kristján Krossdal
    Member
    • Umræður: 9
    • Svör: 58

    Þar sem menn eru nú óðir í að segja frá stuðlunum sínum þá verð ég nú bara að koma mínum að… Ég fæ stuðulinn 1,31 miðað við bílinn fullan af olíu 200L. Þannig að það segir mér að ég ætti nú að komast, tja, allavega eitthvað. Bíllinn er nú reyndar ekki ökuhæfur sem stendur en það kemur nú allt með kalda vatninu, smá tíma og vinnu.
    Kv. Krossdal (stuðuls spekúlant) 😉





    25.03.2007 at 03:36 #585692
    Profile photo of Benedikt Sigurgeirsson
    Benedikt Sigurgeirsson
    Participant
    • Umræður: 171
    • Svör: 3595

    Iss… ég jarða ykkur alla 4.xx gerið betur.

    Eftir breytingu 1.36 tómur ca 2800kg





  • Author
    Replies
Viewing 6 replies - 61 through 66 (of 66 total)
← 1 … 3 4

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.