FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

44″+ ferðin

by Hlynur Snæland Lárusson

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › 44″+ ferðin

This topic contains 68 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Bjarki Clausen Bjarki Clausen 18 years, 8 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 10.09.2006 at 18:12 #198514
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant

    Helgina 30/9 til 1/10 verður farin 44″ ferð á vegum 4×4. Gjaldgengir í þessa ferð eru þeir félagar í 4×4 sem eru á 44″ dekkjum og stærri, og með VHF stöð. Ferðin byrjar á laugardagsmorgni við Hrauneyjar og verður farið um víðan völl og síðan gist í Hvanngili. Sunnudagurinn verður notaður í að gera eitthvað skemmtilegt og komið á skikkanlegum tíma í bæinn. Skráning byrjar á fimmtudagskvöldið (14/9) kl 21 í mörkinni og á tölvupósti hlynur(hjá)snaeland,is. Ekki er búið að reikna út þátttökugjald, en reiknimeistarar Hagstofunar eru að vinna í þessum málum núna.

    Hlynur

  • Creator
    Topic
Viewing 20 replies - 21 through 40 (of 68 total)
← 1 2 3 4 →
  • Author
    Replies
  • 12.09.2006 at 14:32 #559722
    Profile photo of Lúther Gestsson
    Lúther Gestsson
    Member
    • Umræður: 101
    • Svör: 1860

    Enn er það ekki rétt hjá mér Hlynur að ég eigi mestu möguleikana þarna útí?

    Lúther





    12.09.2006 at 21:26 #559724
    Profile photo of Árni Alfreðsson
    Árni Alfreðsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 280

    Á meðan lítil lömb og veikburða rollur fara þarna yfir þá eru menn á 44+ ofurtækjum eitthvað að mikla þetta fyrir sér. Já það er margt skrýtið í kýrhausnum.
    Eins gott að menn verði ekki of lengi á vaðinu ef einhver sauðurinn þarf að komast þarna yfir. Eða kannski eru þetta kannski allt saman sauðir?

    Kv. Árni Alf.





    13.09.2006 at 20:51 #559726
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Var að tala við mann að nafni Jón sem hefur farið Bjallavað 2 sinnum annað skiftið um miðjan ágúst og hitt um miðjan oktober.Hann sagði að það væri minna grjót við Maríufossa en aðeins grýttar ofar,hann er á land-rover á 38" þar sem er fullkomin fjöðrun svo hann taldi að þetta væri of mikið brölt fyrir 44" patta þar sem fjöðrunin á honum mundi ekki þola það ——– hahahahaha :)
    Kv:matti





    13.09.2006 at 22:35 #559728
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Maríufoss er ekki við Bjallarvað, heldur rétt fyrir neðan Hófsvað.

    Bara minna á að skráning byrjar annað kvöld kl 21.00 í Mörkinni og á tölvupóstinum.

    Góðar stundir





    13.09.2006 at 23:57 #559730
    Profile photo of Árni Alfreðsson
    Árni Alfreðsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 280

    Vaðið er kennt við Bjalla og skrifast líklega réttilega Bjallavað Hlynur ekki Bjallarvað með ri.

    Bjallar
    um Bjalla
    frá Bjöllum
    til Bjalla

    Bjöllusauður
    um bjöllusauð
    frá bjöllusauði
    til bjöllusauðs (sbr. sauðsháttur)

    Eins gott að forystusauðurinn hafi þetta á hreinu.

    Kv. Árni Alf.





    14.09.2006 at 00:03 #559732
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Vertu ekki að rífa þig þarna sveitavargur. Við gætum átt það til að míga í bæjarlækinn þinn á heimleið og þá er sko eins gott að dráttarvélar og rollur séu ekki að þvælast fyrir okkur.

    Góðar stundir





    14.09.2006 at 00:11 #559734
    Profile photo of Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Participant
    • Umræður: 124
    • Svör: 2697

    Til að gæta allrar varúðar legg ég til að Árni verði hafður með og leiði hópinn. Það er spurning hvort hann eigi ennþá rauðu Löduna 1200 frá því snemma á tíunda áratugnum. Lödur Árna hafa sennilega farið oftar yfir Krossá en flestir jeppar… :)
    -haffi





    14.09.2006 at 12:47 #559736
    Profile photo of Óskar Ingi Þorgrímsson
    Óskar Ingi Þorgrímsson
    Member
    • Umræður: 1
    • Svör: 26

    Er litludeildinni þá velkomin með. hvernig væri að fara ferð sem væri eingöngu fyrir -44.





    14.09.2006 at 16:19 #559738
    Profile photo of Baldvin
    Baldvin
    Participant
    • Umræður: 45
    • Svör: 524

    Svona fyrir smælki á minni dekkjum?? Virðist angra einhverja að við eigum svona stóra bíla. Er ekki til eitthvað t.d. [url=http://www.minni.is:2slgj3ne][b:2slgj3ne]www.minni.is[/b:2slgj3ne][/url:2slgj3ne] ??

    Kv. Baddi (sem langar að æsa menn meira)





    14.09.2006 at 20:38 #559740
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Bjallanafnið er nokkuð algengt á Suðurlandi en líklega ekki eins annarsstaðar .Bjallavaðið er vestan undir Vesturbjöllunum og á korti Máls og menningar er sýnd reiðleið þar yfir og um Dyngjuskarð og Landmannahelli. Syðst á Veiðivatnasvæðinu eru Austurbjallar á móti Kýlingum . Ég skil ekki alveg innslagið hjá Marteini og ekki hvað Maríufossar hafa með Bjallavað að gera nema þá að sjá vatnsmagnið í ánni. Gaman væri að frétta nánar af þessum ökuferðum Jóns sem hann talar um . Bergur á Lyngási fór 2. sept. yfir Hófsvað og þá var rennslið 88 rúmmetrar og sagði hann að mikið af grjóti hafi borist í vaðið í vatnavöxtum .Hann þekkir Hófsvað afar vel síðan hann var að keyra hjá Jarðborunum á sínum tíma. Kv. Olgeir





    14.09.2006 at 21:45 #559742
    Profile photo of Gísli Gíslason
    Gísli Gíslason
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 244

    Sæll Hlynur
    Hvar á maður að skrá sig hér á vefnum, reikna með mér ef pláss er.
    Kv. – Gísli





    14.09.2006 at 22:22 #559744
    Profile photo of Árni Alfreðsson
    Árni Alfreðsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 280

    Saup aðeins úr bæjarlæknum (Markarfljótinu) í dag. Lét mig fljóta neðst úr Krossá og niður að Stóru-Mörk. Talsvert mikið vatn í Fljótinu og mjög drullugt. Þó smalaprikið næði oftast til botns þá var þetta stundum eins og að vera út á rúmsjó. Maður hafði þó Stóru-Dímon oftast sem mið. Ekki óvitlaust að bæði renna og míga yfir bæjarlækinn í lok ferðar.

    Kv. Árni Alf.





    14.09.2006 at 22:45 #559746
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Skrái þig Gísli. Skráning byrjaði í kvöld og núna eru 5 eða 6 bíla skráðir. Stefnan er að þetta verði 20 til 25 44"+ trukkar. Best er að senda mér póst á hlynur(hjá)snaeland,is til að skrá sig.

    Góðar stundir

    ps: rennslismælirinn er flottur núna, Rennsli hefur aukist út 87(m3/s) í 130(m3/s). Vonandi verður rennsli ekki undir 100(m3/s) þegar við förum þarna.





    15.09.2006 at 19:43 #559748
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Núna eru ca 10 trukkar skráðir í ferðina og Patrolar eru í miklum meirihluta, að sjálfsögðu. Menn eru víst farnir að fjárfesta í flotgöllum og öðru dóti og snorkel eru víst uppseld í landinu.

    Góðar stundir





    15.09.2006 at 21:20 #559750
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Það dugir 38" land-rover til þess að sækja hann :)
    Kv:Matti





    15.09.2006 at 22:07 #559752
    Profile photo of HELGI JÓNAS HELGASSON
    HELGI JÓNAS HELGASSON
    Participant
    • Umræður: 26
    • Svör: 518

    Hi Hlynur hvenar veistu plan?
    Fartegar spyrdu eg hafdi hugsad mer
    ad taka syni mina med ef tad er i lagi
    kvedja Helgi





    15.09.2006 at 22:30 #559754
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Gróft plan verður sent á maili seinna. Um að gera að taka smáfólkið með. Verð sjálfur með barn og buru





    16.09.2006 at 00:49 #559756
    Profile photo of Baldur Gunnarsson
    Baldur Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 43
    • Svör: 821

    En Matti minn, þarf þá ekki fagur gulan Benz 1928 sérútbúinn í landrover björgun til að sækja roverinn? Það er allavega oft þannig 😉





    16.09.2006 at 10:53 #559758
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Um næstu helgi (23/9) mun Jöklarannsóknafélagið standa fyrir ferð yfir Hófsvað. Þeir sem hafa áhuga á Hófsvaði, en fá ekki að fara með Hlyn, geta haft samband við Björn Oddsson (bjornod@hi.is) í síma 869-3432. Samkvæmt fréttabréfi Jorfi er Hófsvað að jafnaði fært 38" bílum. Nú er spáð norðanátt og kólnandi veðri, því má búiast við að það sjatni mikið í vatnsföllum á suðurlandi í vikunni.

    -Einar





    16.09.2006 at 11:31 #559760
    Profile photo of Lúther Gestsson
    Lúther Gestsson
    Member
    • Umræður: 101
    • Svör: 1860

    Það ætla sem sagt 38" bílar að fara þetta allt saman helgina á undan, líklega verður Eik þar líka á sínum 36" jeppa.

    Hlynur………….??





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 21 through 40 (of 68 total)
← 1 2 3 4 →

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.