This topic contains 1 reply, has 1 voice, and was last updated by Halldór Sveinsson 20 years, 1 month ago.
-
Topic
-
Sælir Félagar,
mig langar bara að benda ykkur sem keyptuð dekk 44″ dekkin úr gáminum góða sem A/T flutti inn fyrir okkur að ath vel verksmiðjuballenseringuna sem er inni í sumum dekkjunum.
Það verður að reyna að fjarlægja hana áður en dekkin eru sett á felgur, annars þarf að taka dekkin af aftur þegar búið er að hleypa einu sinn eða tvisvar úr þeim, því þegar þau hitna þá losnar þessi „ballnsering“ af og bíllinn verður með öllu ókeyrandi.
Þetta eru einhverskonar gúmmí sem er brætt inni í dekkið ca.2-400 gramma pjatla, reyndar svolítð erfitt að koma auga á það en ég myndi veðja á að það sé hægt að taka þetta úr með hitabyssu með vægum hita.Þetta var í þremur af fjórum dekkjum sem ég keypti og þurfti ég að láta taka dekkin af aftur með tilheyrandi kostnaði og bíllinn var algjörlega ókeyrandi með þetta laust inni í dekkjunum hoppaði bæði upp og niður og til hliðar.
Kveðja,
Glanni.
You must be logged in to reply to this topic.