Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › 4,2 Nissan
This topic contains 49 replies, has 1 voice, and was last updated by Ólafur A. Hallgrímsson 19 years, 9 months ago.
-
CreatorTopic
-
21.10.2004 at 20:03 #194707
Sælir.
Í mars 2003 var hér þráður sem fjallaði um 4,2 Nissan Patrol vélar. Þá voru einhverjir nýlega búnir að setja túrbó og intercooler við vélarnar.
Nú væri gaman að frétta af því hvort vélarnar hafi ekki reynst vel og eins um eyðslutölur?
Hefur afl vélana staðið undir væntingum?
Hafa verið erfiðleika í bifreiðaskoðun vegna mengunarmælingar??Er sjálfur að hugsa um að fara þessa leið, 4,2 í stað 2,8.
Kv
Óli Hall. -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
21.10.2004 at 20:52 #506650
Kunningi minn hringdi í mig og sagðist hafa heyrt að 4,2 Nissan væru alveg steindauðar í samanburði við 4,2 Landcruser.
Hann sagðist ekki hafa reynslu sjálfur getur þetta staðist??Endilega segið frá ykkar reynslu.
kv
Óli Hall
21.10.2004 at 21:56 #506652Það hefur greinilega einhver öfundsjúkur Toyota eigandi mixað þessar upplýsingar.,2 Nissan túrbínulaus er kannski slappari en 4,2 Toyota með Túrbó cúler og öllu, en ég er semsé nýlega búinn að setja þarna niður 4,2 Nissan og fann mér túrbó/Cúler kit með og mágur minn á 80 krúsernum sínum er ekkert allt of brosmildur stundum, samt þokkalega geðgott kvikindi alveg þangað til kemur að Landcrúser veirunni. Í fáum orðum…. Þetta er ekki sami bíllinn á eftir, eyðslan datt niður um 3-5 lítra og maður tekur hann bara úr 5 gír þegar maður þarf að bakka (sem er ekki oft)(( Toyoturnar eru alltaf fyrir aftan sko)) Þetta með mengunina. Í skoðuninni síðast spurðu þeir hvort olíverkið væri skrúfað upp úr öllu, en hann var samt innan marka. Svo er ég líka búinn að fara margar ferðir í þungum snjó og alltaf á sama kúplingsdisknum sem er mikil framför.
Kveðja
Pétur B Gíslason
21.10.2004 at 23:31 #506654Hvað vigtar pattinn með 4.2 á 38? Þarf hann 44" með 4.2?
-haffi
21.10.2004 at 23:44 #506656Ég hef ekki vigtað græjuna eftir breytinguna, en ég er enn á 38" og er ekkert mikið að spá í að stækka við mig, kemst allt sem mig langar með þessum útbúnaði. Einhver sagði mér að þetta munaði ekki nema 30-40 kg. Sel það ekki dýrar en ég keypti.
Kveðja
Pétur
21.10.2004 at 23:52 #506658Hvaðan fluttirðu hana inn?
-haffi (forvitni)
21.10.2004 at 23:59 #506660Frá Bretlandi
22.10.2004 at 00:23 #506662Elsku kallarnir mínir hafið þið aldrey heyrt um annað en ljósavélar eða? .
Bara kaupa bensín v8 með hestöflum hættið þessum grútarpælingum:-)
22.10.2004 at 00:26 #506664Var mikið mál að skipta um vél. Ég gef mér að þú hafir verið með 2.8l vélina fyrir. Skiptirðu ekki um gírkassa líka?
Kveðja
Sveinn G
22.10.2004 at 00:31 #506666Þetta passar í allar festingar. Það er smá lagnavinna, olígjafir púst og þessháttar. Jú ég fékk vél með öllu klabbinu, kassa millikassa og öllu utaná. Annars gengur sami millikassi á báðar þessar vélar.
kveðja
Pétur
22.10.2004 at 00:36 #506668Þakka PBG fyrir svarið.
4,2 er nokkru þyngrien 2,8 en aðal munurinn er í gírkassanum. Það verður að skipta um gírkassa. Veit um einn sem notaði Nissan kassan við 6,5 disel, það voru nýar legur á 1þ km fresti.
Óli Hall
22.10.2004 at 00:42 #506670Sæll Óli
Nokkuð þyngri segirðu. Veistu nokkuð hvað þetta "nokkuð" er í kílóum?
kv
Pétur
22.10.2004 at 11:35 #506672daginn
ég veit um 2 svona patta með 4,2 vélinni annar er túrbínulaus er á 38" og hann er að virka ágætlega svoleiðis ekker búið að lækka drif eða neitt hann viktar um 2 og hálft tonn
hinn er með turbó og intercooler og á 38" krafturinn í þeim bíl er skuggalegur mig minn að hann sé líka 2,5 tonn
Torkið í þessum vélum er skuggalegt þú þarft ekkert að gefa inn þegaru þú sleppir kupplingunni í vædni brekku svo
ég sé ekki að það sé mikill munur á cruiser vélinni og þessari hvað kraftinn varðar
22.10.2004 at 13:11 #506674…passar þetta í hilux? 😛
…maður er alveg með stjörnurnar í augunum eftir allar þessar lýsingar á hestöflum og torki 😛
p.s. úr hvaða bílum koma þessar vélar?
22.10.2004 at 13:15 #506676Þetta eru gamlir úreldir grútarbrennarar sem Nissan gafst upp á að selja í Evrópu fyrir 10 árum síðan.
kv
Rúnar.
22.10.2004 at 16:54 #506678sælir
Nú sprakk heddið hjá pabba gamla í vikunni á 2.8 lítra vélinni í Kollafirðinum, smurolían út allt og líklega þarf að plana blokkina með tilheyrandi kostnaði. Erum við því formlega að hugsa um að gefast um á þessari vél enda tvær heddupptektir að baki og gripurinn varla kominn í 200 þús.
Nú er bara spurningin hvaða díselrokk á að setja í, maður hefur helst heyrt um 4.2 Nissan eða 6.5 GM. Auðvitað er verð faktor í þessu.
Veit að Nissan 4.2 virkar en hana þarf líklega að flytja inn með kassa (giska á 600 þús kr). Hver og hvaðan hafa menn verið að flytja þetta inn? Ef einhver getur ýtt manni í rétta átt, annað hvort á netinu eða annars staðar þá væri það gott.
Er einhver þarna úti sem hefur persónulega reynslu af rekstri 6.5 GM, er þetta eintómt vinna að reka þetta svona mixað í Patrol ?? Einnig hef ég heyrt að erfitt sé að fá svona vélar hér heima. Hvaða skiptingar eru menn að nota við hana??
kveðja
Agnar
22.10.2004 at 19:00 #506680Í þessari stöðu er allt dýrt umþb. 1miljón +. Síðan er spurning hvað hægt er að selja af gamladótinu. 6,5 er nær ófáanleg nema eknar 150-200 þkm síðan er 4,2 Nissan sem er frekar dýr kostur yfir 800 kallinum m. túrbó & intercooler. Það hefur verið sett 4,2 Toyota í svona bíla með góðum árangri.
PBG nei ég veit ekki hver munurinn er í kílóum.
22.10.2004 at 21:10 #506682það er rétt, 4.2 toyota hefur verið sett í svona bíl og virkar ljómandi vel. Ég myndi allavega ekki hugsa mig um ef ég ætlaði að skipta um vél í patta, myndi fara beint 24 ventla 4.2 toyotu, enda með skemmtilegri díselvélum sem ég hef prófað. Sú vél er allavega með orginal túrbó og ég hef ekki heyrt að neitt hafi verið að fara í þeim.
hvað eru þessar 4.2 nissan annars að eyða? einhver sagði 3-5 lítrum minna en 2.8? þýðir það ekki yfir 20 lítra/100km? Ég myndi allavega halda það miðað við eysluna á 44" 3.0 patta…
Baldur
23.10.2004 at 09:41 #5066844,2 á 38" er að eyða 16-18 lítrum hjá mér í blönduðum akstri. 3 lítra vélin er hákur það er rétt, en 4,2 er að fara með svipað og 4,2 Toyota.
kveðja
Pétur
23.10.2004 at 15:01 #506686Ég er búin að eiga LC-80 með 4.2 og 24 ventla vél í ca 3 ár og hefur þessi bíll aldrey eytt meira en 14 lítrum á hundraði svo að 4.2 TOY og 4.2 Nissan eru ekki að eyða svipuðu. Þá er ég að bera saman beinskipta bíla. Kveðja Runar Sv
23.10.2004 at 15:40 #506688Ég er nú gallharður Toyota maður en ég læt ekki ljúga hverju sem er að mér, og þá síst af öllu um hábjartan dag. Var hann þá beinskiptur á bílakerru þegar hann eyddi þessu?
Hvað er næst? Fara þá allir 351 Econoline trukkarnir að eyða 12L í ferð í þungu færi. En það er svosem ekki von að þessir bensínhausar sjái ljósið fyrir koltvísýringseitrun því að þeir eiga enga ljósavél.
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.