Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › 41", 42", 44"
This topic contains 7 replies, has 5 voices, and was last updated by Agnar Benónýsson 12 years ago.
-
CreatorTopic
-
20.01.2014 at 20:56 #444456
Lengst til vinstri er 42″ Good year, 41″ Irok í miðju, og 44″ DC
Viðhengi:
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
20.01.2014 at 21:04 #444469
skrúfaðu 44dc undan og gerðu síðan samanburð. þetta er ekki alveg að marka.
flott samtkv Gunnar
20.01.2014 at 21:04 #444471er 41″ á felgu ? og með lofti í
20.01.2014 at 22:08 #444530Öll á felgu með lofti í, en þessi mynd gefur grófa mynd af stærðunum. Best að hafa öll frístandandi með sama loftþrýsting.
21.01.2014 at 10:20 #444647Ekki hissa á hæðarmismuninum. 44″ dekkið er hálfslitið og óslitin hafa þau aldrei verið meira en rúmlega 42″ á hæð. Þá stendur bíllinn á því og bælir það niður sem þyngd bílsins nemur. Það er hinsvegar mikið breiðara en hin dekkin, og gefur meira flot, úrhleypt.
24.01.2014 at 15:00 #444895Sælir, vildi aðeins pota mínum 2 sentum inn í þetta…
41-42″ Irok gefur reyndar mun meira grip úrhleypt, þar sem hliðarkubbarnir veita ca. 4-5″ meira mynstur.
Satt er að flotið er meira í 44″ DCII en gripið á móti er takmarkað. Það eru minni líkur á að festa sig og verra að komast upp úr ám/krapa (sérstaklega háir bakkar).
46″ MT aftur á móti veitir bæði meira flot og mun meira grip en 44″ eða um 4-6″ meira mynstur úrhleypt (ca. 25″ breiður gripflötur).
Ég myndi ekki veðja á 42″ GY sem vetrardekk, þar sem beltið er úr Kevlar, ekki stáli. Þau eru hins vegar sterkari og eru örugglega frábær sumar og keyrsludekk. Fyrri reynsla manna á Kevlardekkjum (Armstrong Norseman ofl.) er sú að þau hafa ekki reynst vel í miklu frosti (ca.-10°C og neðar).41″ Irok (radial) hentar líklega best í allt, þ.e. ef menn vilja ekki fara í 42″ og stærra. Mín reynsla af þeim er alla vega mjög góð og mæli ég hiklaust með þeim.
Þau eru góð í hálku, bleytu, snjó, hvort sem er á möl eða malbiki, í hita eða kulda ónegld, enda einu M+S mudderdekkin (sem ég veit um).
Ég veit sama og ekkert um Pit-Bull og nefni þau því ekkert. Hef heyrt misjafnar sögur, af Rocker aðallega en 47″ Growler er klárlega verklegasta dekkið á markaðnum að mínu mati en það er kannski komið aðeins út fyrir „skóp“ þessa þráðar.
24.01.2014 at 23:55 #444910Kevlar dekk voru dekkin sem súkku gúruarnir elskuðu fyrir graut af árum síðan, 33″ Maxi Track ef ég man rétt

Hvað var að bögga menn í miklum kulda?
Radial dekk virkar betur en diagonal dekk. Það er staðreynd, plús það að það er allt annað að keyra á þeim.
Hef alla trú á að þessi GY dekk muni reynast frábærlega, þótt þau séu væntanlega ekki betri í verstu færum heldur en 44″/46″, enda mikið belgminni. En verða yfirburða í öllum öðrum aðstæðum.
Eina spurningin er hvað það þarf þungann bíl til að þau bælist sæmilega…
25.01.2014 at 02:01 #44491242″ GY eru að koma mjög vel út undir Pajero sem ég hef ferðast mikið með. Þetta eru dekk sem standa vel 42″, virka mjög vel í snjó (betur en ég bjóst við) og eru frábær keyrsludekk. Ég held þessi dekk séu komin til að vera en það eru líklega fáir sem eru á þessu !
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.
