FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

4-Runner bilun

by Hjörvar Orri Arason

Forsíða › Forums › Spjallið › Allt annað › 4-Runner bilun

This topic contains 9 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Hjörvar Orri Arason Hjörvar Orri Arason 14 years, 1 month ago.

  • Creator
    Topic
  • 13.05.2011 at 20:59 #219013
    Profile photo of Hjörvar Orri Arason
    Hjörvar Orri Arason
    Participant

    Ég var að versla mér diesel runner fyrir c.a. mánuði. Á fimmtudaginn síðastliðin reddaði ég félaga mínum og dróg patrolinn hans 1-2 k.m. og allt var í góðu. þegar því var lokið ákvað ég að prófa aukatankin, þar sem ég var að verða olíulaus á aðaltanknum. Ég hafði nokkru áður bætt 20 lítrum af olíu á aukatankin, og fyrir var c.a. 20-25 lítrar á honum. Ég keyrði heim og allt var í góðu. Þegar ég fór út í morgun og ætlaði að keyra, Þá fór hann ekki yfir 1000 sn. og það kom hvítur reykur aftan úr honum þegar ég gaf inn. Hvað getur verið að? Getur verið að það hafi verið svona mikill raki eða jafnvel bensín í aukatanknum? Ég ætla að prufa að skipta út olíunni á aðaltanknum og vona að það sé það sem er að hrjá hann!
    Góð hugmyndir óskast
    K.v. Hjörvar

  • Creator
    Topic
Viewing 9 replies - 1 through 9 (of 9 total)
  • Author
    Replies
  • 14.05.2011 at 09:38 #730207
    Profile photo of Atli Eggertsson
    Atli Eggertsson
    Participant
    • Umræður: 220
    • Svör: 1627

    Hæ.

    Hvítur reykur = ekki næg olía.

    Mjög líklega stífluð hráolíusía.

    Ef þú hefur grun um að það sé einhvað annað enn olía á auka tanknum, þá er bara að fylla hann af olíu og splæsa í smá ísvara til öryggis. – svo lengi sem þú ert viss um að það sé ekki nokkrir lítrar af vatni á tanknum, enn þá hefði hann væntanlega steindrepið á sér.

    Kv. Atli E.





    16.05.2011 at 22:36 #730209
    Profile photo of Hjörvar Orri Arason
    Hjörvar Orri Arason
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 166

    Jæja, gamanið heldur áfram. Ég tappaði olíunni af aðaltankinum, setti nýja á, bætti ísvara útí skipti um hráolíusíu (bara til vara, bíllinn var smurður fyrir tæpum tveimur vikum), og ekkert breyttist. Hann gekk hægan lausagang ef það er hægt að orða það þannig, og hvítur reykur gekk aftanúr honum þegar ég gaf inn, hann fór ekki yfir 1000 sn. Hann er ekki að tapa vatni af vatnskassa, olían er svört og fín, það er ekki hvít skán á olíu tappanum(mér var bent á að tjekka á því) Þannig nú spyr ég aftur hvað getur verið að hrjá blessaðan bílinn?

    Mér datt í hug olíuverk eða spíssar!

    K.v.Hjörvar Orri





    16.05.2011 at 23:05 #730211
    Profile photo of Sigurþór Þórsson
    Sigurþór Þórsson
    Participant
    • Umræður: 45
    • Svör: 557

    Spurning hvort Runnerinn sé með fínsíu í olíuverkinu sem er stífluð? Það er allavega algengt í sumum tegundum og hún er þá væntanlega undir banjóboltanum þar sem olían kemur inn á verkið. Man ekki alveg hvernig þetta er á Runnernum en það er vert að tékka á þessu áður en þú ferð í stærri aðgerðir.

    Kv. Sigurþór





    16.05.2011 at 23:36 #730213
    Profile photo of Sigurður Egill Stefánsson
    Sigurður Egill Stefánsson
    Member
    • Umræður: 16
    • Svör: 647

    minir að vinur minn hefði lend í þessu á disel runner það er það var gróf sía í tanknum sem var stífluð
    +





    16.05.2011 at 23:38 #730215
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    4-Runner og bilun hljómar einhvern veginn þversagnakennt :-)

    Það er örugglega síukvikindi í olíuverks-inntakinu. Bazzi lenti í svoleiðis ævintýri á Toyotu, ég hef prófað það sama á Galloper.

    kv

    Grímur





    17.05.2011 at 08:56 #730217
    Profile photo of Arngrímur Kristjánsson
    Arngrímur Kristjánsson
    Participant
    • Umræður: 14
    • Svör: 403

    hljómar líka eins og olíuverkið sé ekki á réttum tíma!!!





    17.05.2011 at 20:51 #730219
    Profile photo of Hilmar Örn Smárason
    Hilmar Örn Smárason
    Participant
    • Umræður: 22
    • Svör: 493

    Ég hef lent í svipuðu á disel 4runner. þá hafi komist smá bútur á bréfi ofan í tankinn sem sogaðist alltaf upp í rörið og stíflaði olíuflæðið að olíusíu. Ef blásið var í slönguna frá olíusíu og aftur í tank þá lagaðist þetta í smá stund eða þangað til að bréfið sogaðist aftur í rörið.

    þú getur prófað að blása aftur í tank og séð hvort það losni um einhverja stíflu, ef svo er þá þarftu að taka tankinn undan hreinsa hann.





    17.05.2011 at 22:36 #730221
    Profile photo of Hjörvar Orri Arason
    Hjörvar Orri Arason
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 166

    Sælir félagar. Þannig er mál með vexti að vinur minn vinnur hjá frammtak, hann fékk vinnufélaga sinn, til að kíkja á þetta hjá mér. Hann sérhæfir sig í olíuverkum og spíssum. Hann fann það út að aðaltankurinn væri líklegast stíflaður. Þegar bíllinn var í gangi, þá var pumpan fyrir hráolísíuna niðri, en þegar ég drap á honum seig hún hægt og rólega upp. Aukatankurinn hefur ekki verið notaður í 1 og 1/2 ár, þannig það hefur líklagast farið einhver drulla með yfir í aðaltankin. Ég get ekki tappað af aukatankinum því það er engin drentappi á honum. En ég tak þá báða undan næstu helgi og hreinsa þá.

    k.V.Hjörvar Orri





    21.05.2011 at 15:09 #730223
    Profile photo of Hjörvar Orri Arason
    Hjörvar Orri Arason
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 166

    Sælir félagar.
    Bíllinn er komin í gang. Ég tek það fram að ég er nýbúin að eignast bílinn og er að læra inn á hann. Í rauninni ætti ég ekki að setja þetta inn því mér finnst þetta of kjánalegt til að segja frá þessu, en geri það samt. Þannig var að ég prófaði að losa upp á leiðsluna frá hráolíusíunni og blása, eins og Hilmar gerði á sínum, og það var eins og það væri steypa í lögninni. Ég setti litla loftdælu á og bólgnaði gúmmílögnin út. Það er sveif undir bílstjórasætinu til að láta leka úr aukatank yfir í aðaltank, ég prófaði að snúa henni og blása í aukatankinn, það bubblaði allt sem var inní honum. Lokaði ég þá fyrir og blés í aðaltankinn, það sama gerðist. Þá fattaði ég að ég hafði lokað fyrir allt flæði frá aðaltank og fram í síuna, þannig þetta var ekki meira en þetta :)





  • Author
    Replies
Viewing 9 replies - 1 through 9 (of 9 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.