FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

4 hólfa blöndungar.

by

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › 4 hólfa blöndungar.

This topic contains 7 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of  Anonymous 20 years, 6 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 08.11.2004 at 16:29 #194809
    Profile photo of
    Anonymous

    Halló

    Ég er á ´77 Bronco með 302 orginal blöndung.
    Málið er að ég ætla að fara að fá mér 4 hólfa blöndung og reyna að ná einhverju meira afli úr kvikindinu, en þarf ég að fá mér nýtt millihedd líka??

    Hvað mæla menn annars með að ég geri til að ,,tjúna“ hann aðeins til, hann er orginal þessi mótor.

    Er einhver ákveðinn staður sem menn mæla með að ég athugi til að fá mér blöndung, millihedd og jafnvel einhverja fleiri hluti til að hjálpa honum aðeins.

    kv. Stefán

  • Creator
    Topic
Viewing 7 replies - 1 through 7 (of 7 total)
  • Author
    Replies
  • 08.11.2004 at 17:00 #508314
    Profile photo of Hjörleifur Helgi Stefánss
    Hjörleifur Helgi Stefánss
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 665

    Sæll Stefán.

    Nú veit ég svosem ekki hvað þú vilt ganga langt í að breyta hjá þér mótornum, en ég reikna með því að þú ætlir ekki út í meiriháttar breytingar? Eftirfarandi eru þó þeir hlutir sem ég myndi fara í til að sprækja þessa skemmtilegu vél.

    Langar flækjur ættu að ná út torkinu sem til er í mótornum, það er jú það sem maður saknar svo oft í bensínjeppum.
    Gott millihedd er gulli betra, Edelbrock eru að mínu mati leiðandi á því sviðinu, þó eru margir fleiri sem framleiða þessi millihedd, bara að leita og spyrjast fyrir.
    Þar ofaná myndi svo fara vel eins og eitt stykki Holley, 4 hólfa tor eitthvað í kringum 650-700 myndi duga vel.
    K&N sía er síðan ekki fjarri lagi, hún gerir í það minnsta ekki ógagn held ég.
    Svo er bara að passa að vera með kveikjukerfi sem skilar sínu og vel það og gamli ætti að hneggja af gleði!

    Svo er náttúrulega skógur af hlutum sem þú getur farið útí ofan í orkubúinu, álhedd, volga ása, útboranir, en þetta er líklega ágætis pakki til að byrja á.

    Á kvartmíluspjallinu, kvartmila.is er náungi sem auglýsir alltaf öðru hvoru Ford grams ýmiskonar, Einar Möller heitir hann og virðist eiga ýmislegt sem viðkemur Ford, þú gætir kannað það.

    Bestu kveðjur, Hjölli.





    08.11.2004 at 17:28 #508316
    Profile photo of Ásgeir Halldórsson
    Ásgeir Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 848

    Sæll Stefán,

    Ég er nú ekki alveg sammála 66bronco, þú átt alls ekki að fara út í stærra en 600 blöndung, þá er edelbrockinn minn virkað helv*** vel. Og ég mæli líka með að þú fáir þér edelbrock millihedd. Heitur ás virkar líka, allavega í mínum.

    bensínkveðaja, Ásgeir





    08.11.2004 at 17:33 #508318
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Þetta er einmitt það sem ég hafði hug á að gera og takk kærlega fyrir svörin.

    En hvar fær maður flækjur á góðu verði?

    kv. Stefán





    08.11.2004 at 17:33 #508320
    Profile photo of Páll Arnarsson
    Páll Arnarsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 494

    Sæll. Ég er með 302 sjálfur sem er að virka bara vel. Ég er með orginal Carter/Holley 2 hólfa blöndung en það er búið að eiga talsvert við mótorinn, stimplar, ás, hedd og annað eftir því. Ég er líka með oppnar greinar, sem ég held að skifti talsverðu máli, og síðan 2" tvöfalt pústkerfi með túpum ( ekki venjulegum hljóðkútum )Bíllin hefur verið mældur í bekk og átti hann að skila á milli 295 og 305 hö. En svo er líka hægt að vera með NO5 kitt ( nítró ) Það er frekar auðvelt í uppsetningu en vélin er nokkuð fljót að klárast á því. Ég hef sjálfur notað það með góðum árangri en er hættur því vegna þess að vélin er farin að slappast talsvert.





    08.11.2004 at 17:33 #508322
    Profile photo of Hjörleifur Helgi Stefánss
    Hjörleifur Helgi Stefánss
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 665

    Kannski að 700 sé fullstórt en 650 hefur dugað þessari samsetningu vel. Förum bil beggja og skjótum á 600. En ég fer aldrei ofan af því að Edelbrock millihedd og Holley blöndungur er draumacomboið.

    Blöndungskveðjur, Hjölli.





    08.11.2004 at 17:40 #508324
    Profile photo of Hjörleifur Helgi Stefánss
    Hjörleifur Helgi Stefánss
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 665

    Sæll Páll.

    Varstu með nitrobúnað í Landbúnaðartækinu? Það er aldrei… Þú talar um opnar greinar, áttu við að pústgreinarnar séu hohnaðar að innan og engar flækjur? Afsakaðu forvitnina en ég er bölvaður skussi í pústpælingum fyrir utan flækjur, en túpur, er þá átt við svokallaða opna kúta?

    (út)blásturskveðja.. Hjölli





    08.11.2004 at 18:19 #508326
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Þetta er spurning um eftir hverju þú ert að sækjast. Þ.e. á hvaða snúning viltu fá vinnsluna. Oftast er talað um að togið sé það sem öllu máli skipti í jeppum og þá er kannski miklu betra að vera með 2 hólfa blöndung því að í honum verður meiri hraði á loftinu og blandast bensínið því betur þannig. Varðandi flækjur þá nenni ég ekki að fara út í þau mál en hinsvegar var mér einhverntíma sagt að það fengist aldrei neitt af viti út úr 302 (nema þá 302 chevy) vegna þess að heddin næðu aldrei að anda nægu lofti í gegnum sig, en það var mér bara sagt og fullyrði ekkert um. Spurning hvort þú finnir ekki bara 351 á góðu verði einhverstaðar.





  • Author
    Replies
Viewing 7 replies - 1 through 7 (of 7 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.