Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › 38″ Ground hawk eða AT dekk
This topic contains 9 replies, has 1 voice, and was last updated by Rúnar Sigurjónsson 17 years, 11 months ago.
-
CreatorTopic
-
07.11.2007 at 20:42 #201128
Ég loksins hætti við að selja bílinn og ætla að launa sjálfum mér það með nýjum dekkjum undir hann

Núna hef ég bara heyrt góðar sögur af báðum þessum tegundum, 38″ground hawk og 38″AT dekk fra artic trucks.
Það munar um 40þúsundum á heildarverði á 4 dekkjum (ground hawk ódýrari)
Getiði ekki frætt mig aðeins um þessi dekk ?

-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
07.11.2007 at 21:23 #602462
hvaða felgu stærð ertu með? get útvegað mtz 38" negld notuð ca 1000km fyrir 16" felgu á 170þús kostuðu ný 250þús
07.11.2007 at 21:46 #602464Ég hef enga reinslu af þessum dekkjum en hef heirt að AT dekkin passi ekki á hvaða felgu sem er, maður getur þurt að skifta um felgur annað ekker nema gott um þau .Ground hawk hafa reinst vell að mestu það þarf að setja soldið af blígi til fá þau rétt í jafvægi stilt og vilja að setjast ef bílin er látin standa í lengri tíma . Svo líka gott að skoða Toyo dekkin þau er jafnari en G H svipað verð .þau eru með breiðari banna en G H en eru líka soldið stífari kemur ekki að sökk undir þingri bílum. það hljóta fþeiri tjá sig um þessi dekk
kv,,, MHN
07.11.2007 at 22:14 #602466Á 36" Ground Hawk nelgd og mícróskorin. Eru bara að virka. Veit ekki um eða hef ekki vit á göllum á þessum dekkjum ennþá. Fyrir utan þó nátturulega að þau eru gróf ef einhverjum finnst það vera galli á snjódekkjum. Það gróf að þau hljóta að vera tæp í hálku nema nelgd og helst skorin.
07.11.2007 at 22:22 #602468Hef heyrt að AT séu þrusugóð keyrslu- og snjódekk. Bælast vel og hafa reynst mönnum ágætlega. Flestir af þessum bílum hafa verið í kringum 2-2,5t svo að ég veit ekki hvernig þau eru undir þyngri bílum.
Held að næstu dekk sem ég fengi mér væru AT ef ég ætlaði að vera á 38" á annað borð. (stefni á gleðigúmmíið).Félagi minn á GH og hafa þau reynst ágætlega, svolítið veghljóð í þeim og virðast vera stífari en t.d. Mödderinn. (gumbo monster mudder)
kkv, Úlfr.
07.11.2007 at 22:56 #602470AT-dekk: frábær malbiksdekk, gott að keyra á þeim og lítið veghlóð. Drífa illa í snjó.
GH-dekk: Allt í lagi dekk, soldið veghljóð, drífa alltílagi í snjó, mættu vera opnari en eyðast alltof mikið á köntunum
Mudder: Bestu dekkin, mikið veghljóð, frábær í snjó, tæma sig vel, drífa mikið og eyðist jafnt af þeim. Minn kostur nr.1Tek það fram að þetta eru mína persónulegar skoðanir en ég hef átt öll þessu dekk.
08.11.2007 at 01:27 #602472Ég hef átt í vandræðum með AT dekkin í snjó þ.e.a.s þau eiga það til að "glasserast" (munstrið tæmir sig ekki) og því ekki að reynast vel í snjó en gott að keyra á þeim á malbiki. kv Steini
08.11.2007 at 10:18 #602474Ég hef ekki keyrt jeppa á AT dekkjunum en nokkrum sinnum séð þau í notkun eða verið í ferð með mönnum á þeim og ég hef ekki enn séð þau gera góða hluti þegar reynt hefur á drifgetu í snjó, þau fyllast af snjó og spóla, ekki ósvipað og Fun-Country sem ég er lítið hrifin af.
.
Hinsvegar hef ég notað bæði mudder og ground-hawk með mjög góðum árangri þó þau væru töluvert slitin, grípa vel og gefa gott flot.
.
Ek núna á 38" super swamper og hef farið í einn snjótúr á þeim, þau grípa mjög vel en ég er ekki viss um að þau gefi mér jafn gott flot og mudder eða ground-hawk.
.
Þau dekk sem ég er hvað hrifnastur af er MTZ, þau grípa vel við allar aðstæður og gefa einnig gott flot.
.
Ef ég ætlaði að kaupa mér dekk í dag og eyða í það fullt af pening fengi ég mér MTZ en ef ég ætlaði að sleppa ódýrt og kaupa hálfslitin dekk fengi ég mér mudder eða ground hawk (geri ekki upp á milli þeirra- jafn góð)
.
Freyr
08.11.2007 at 10:50 #602476Alltaf gaman að þessu þegar einhver spyr um dekk ;o) Hér eru komnar svo margar góðar kenningar að ég læt vera að bæta við þær. Þekki bæði GH og MTZ af góðu, en kemur á óvart sem sagt er hér um AT dekkin.
Hins vegar af því einhver nefndi hér að ofan að GH slitni mikið á köntunum að þá er yfirleitt skýringin á því að dekk slitni þannig sú að það er of lítið loft í þeim að staðaldri. Lausnin getur verið einfaldlega að bæta vel í dekkin þar til slit hefur jafnað sig. Dekk sem slitna mest í miðju eru með of miklum þrýstingi, en of litlum ef þau slitna mest í köntunum.
Felgubreidd getur hugsanlega líka haft einhver áhrif, þó ég ætli ekki að fullyrða um það.
Kv – Skúli
08.11.2007 at 11:11 #602478Þessi dekk slitna alltaf meira í köntunum en miðjunni, þegar þau eru sett á nothæft breiðar felgur. Þó svo að þú setjir yfir 35 pund í þau, þá gerist það bara samt. Mér hefur sýnst mödderinn gera það sama, þó kannski ekki alveg jafn mikið.
Ég reyndi að leiðrétta þetta á mínum gömlu dekkjum með því að skera hliðarkubbana frá miðjunni, og er ekki frá því að það hafi gert jákvæða hluti.
Hliðarnar fóru svo á þessum dekkjum mínum þegar þau náðu 5 ára aldri, rétt um hálf slitin. Hávaðasöm og soltið sporeskjulaga en gripmikil og bælast þrusu vel.kv
Rúnar.
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.
