Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › 38" breyting á Landcruiser 100
This topic contains 11 replies, has 1 voice, and was last updated by Hrannar Jón Emilsson 15 years, 9 months ago.
-
CreatorTopic
-
01.01.2010 at 23:37 #209473
Sælir félagar
Ég er að velta fyrir mér hvernig Landcruiser 100 á 38″ dekkjum virkar snjó?
Kveðja, Fastur
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
01.01.2010 at 23:52 #673888
Á að fara að uppfæra?
02.01.2010 at 00:31 #673890hmm, þetta er athyglivert.
02.01.2010 at 01:27 #673892Hljóma þannig lagað rökrétt framhald…
[img:1ov76xud]http://www.uppsveitir.is/knarrarholt/myndir/jan2007-/slides/10feb2007%20104.jpg[/img:1ov76xud]
held ég…
[img:1ov76xud]http://www.trigger.is/gallery2/d/179125-2/IMG_8848.jpg[/img:1ov76xud]
Hmmm, hallar toyotan kanski of mikið til vinstri, m.v. amríska klámmyndastjörnubílinn?

02.01.2010 at 02:06 #673894[url:ma3iod1h]http://www.f4x4.is/index.php?option=com_jfusion&Itemid=228&jfile=viewtopic.php&f=6&t=17800&p=119874#p119874[/url:ma3iod1h]
02.01.2010 at 10:57 #673896Ég held að þessi bíll sé of þungur fyrir 38" til þess að drífa eitthvað. En hann er flottur svona á 38", og örugglega frábærferðabíll.
Veit það bara að í þungum færum er 120 bíllinn allveg á mörkum, og er það nú töluvert minni og léttari bíll. [color=#0000FF:1lvcjm1c]Eða eins og sagt er það eru ekki fyrstu tvö tonnin sem sökkva þér heldur öll kílóin þar á eftir.[/color:1lvcjm1c]
Kv Bjarki
02.01.2010 at 15:00 #673898Hef nú reyndar grun um að þessi bíll sé ætlaður öðrum en Birki sjálfum.
Get ímyndað mér að þetta sé ekki bíll sem leiðir velbúinn hóp í verstu færð.
Enn hann er örugglega í flestum tilfellum nóg og góður til að vera ekki eftirbátur, eða hvað?
Er þetta ekki bara svona í svipuðum standart og LC80 og nýji Patrol á 38"?Kv. Atli E.
02.01.2010 at 16:38 #673900Þessi bíll (disel útgáfan) er ca 300 kg þyngri en patrol og 80-cruiser (ca 2.7 tonn). Segir allt sem segja þarf:) Bensín bíllinn er hinsvegar mikið léttari og nær hinum bílunum.
Örugglega geðveikur ferðabíll meðan færið er frábært, sem og á sumrin. Sennilega álíka drifmikill og Wrangler á 31" á vetrum.kveðja
Rúnar.
02.01.2010 at 20:37 #673902Ég er búinn að greina þetta. Það komst einhver fyndinn vinur hans inn á F4x4.is aðganginn hans og er að gera grín.
Jeppi er ekki Jeppi nema á honum Standi JEEP. . . . Amen.
03.01.2010 at 01:30 #673904Ég myndi tala við man sem heitir Hlynur. Hann var á þorablóti fyrir nokrum árum á patról á 33 tommu dekkjum og var að rústa öllum í drifgetu. Þetta eru líklega svipað þungir jeppar. Líklega er 33 tommur bara nóg.
Kveðja Magnús.
03.01.2010 at 01:52 #673906Ég hef það frá mjög góðum heimildar manni að þessi umræddi Hlynur hafi verið á Toyota og á 31" ekki 33" og hann setti aldrei í lágadrifið í þessari ferð sem farin var.
03.01.2010 at 02:50 #673908ég hef heyrt margt um þessa bíla, t.d. það að þeir komast ekki neitt og svo að þeir fari allt sem þeir vilja innan marka geðveikinar, en ég er búinn að keyra svona bíl á 35" svoldið mikið og viktaði hann uppá kjalarnesi full tankaður og með snjóbrettapakka fyrir helgarferð norður 2.540 kg sem er minna en patrol sem er með sömu breytingu. nýr patrol með 38" breytingu viktar um 3 tonn þegar kemur að fjallaferð,(björgunarsveitarbíll). það á ekkert að stöðva þig í að breyta þessum bíl ef þú lærir að keyra hann, þá er hann alveg djöfull duglegur, allavega á 35"
Kv. Hrannar
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.
