FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

37″ Mickey Thompson „Baja Claw“

by

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › 37″ Mickey Thompson „Baja Claw“

This topic contains 13 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of  Anonymous 21 years, 3 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 12.10.2003 at 13:35 #192995
    Profile photo of
    Anonymous

    Sælir, eru einhverjir hér sem hafa prófað og geta sagt mér hvernig þessi dekk eru að koma út í snjó og hvernig þau krumpast úrhleypt? Stærðin á þeim er 37×13,5-15, load range C.

  • Creator
    Topic
Viewing 13 replies - 1 through 13 (of 13 total)
  • Author
    Replies
  • 06.11.2003 at 18:20 #477808
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Er enginn sem vill miðla úr viskubrunni sínum?





    07.11.2003 at 10:45 #477810
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Eftir nafninu að dæma eru þetta diagonal dekk. Diagoal dekk henta yfirleitt mun verr til notkunar úrhleypt í snjó þar sem hliðarnar eru stífari en á samsvarandi radíal dekkjum. Þetta veldur því að meiri orka fer í að hita dekkin sem m.a. bitnar á eldsneytiseyðslu og endingu dekkjanna. Auk þessa fljóta þau ver þar sem hliðarnar skera niður í snjóinn.

    -Einar





    07.11.2003 at 12:09 #477812
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Sæll Gaggi,
    þessi dekk eru frekar stíf, af minni reynslu af þeim dekkjum sem eru á markaðnum í dag myndi ég ráðleggja þér Mudder 38 eða Ground Hawg. Ef þú ert ekki þegar búinn að festa þér dekk þá hugsaðu þig vel um. Þetta er mitt innlegg til þín félagi.
    Kveðja, Frikki.





    07.11.2003 at 18:23 #477814
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Bestu þakkir fyrir svörin félagar. Þessi dekk eru radial, ég gleymdi bara að setja R ið með. Þau hafa fengist diagonal í einhvern tíma en eru nýkomin sem radialdekk í þessari stærð. Mynstrið er "Directional" og nokkuð gróft, ég fór að horfa á þau því verðið er nokkuð gott á þeim og útlitið alls ekki slæmt !





    26.01.2004 at 19:21 #477816
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Jæja, ég tók bara sénsinn og skellti mér á einn gang. Nú er bara að biðja um meiri snjó til að geta prufað nýju skóna!!!





    26.01.2004 at 20:28 #477818
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    ………….. og nú um Nitto Mud Grappler, sem virðast vera að gera sig í USA. Sjá m.a. mynd á bls. 70 í mars hefti Four Wheeler. Er einhver að flytja þetta inn hér?
    kv.





    26.01.2004 at 21:19 #477820
    Profile photo of Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Participant
    • Umræður: 124
    • Svör: 2697

    M.v. http://www.nittotire.com/tires_mudgrappler.asp þá virðast þau bara vera til LT38x15 R18. Kannski ágæt sumardekk, en mig svimar yfir verðinu á felgunum :)

    -haffi





    01.02.2004 at 20:39 #477822
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Well það kom skemmtilega á óvart hvað þau eru hljóðlát!





    21.02.2004 at 01:07 #477824
    Profile photo of Arnór Magnússon
    Arnór Magnússon
    Participant
    • Umræður: 14
    • Svör: 640

    Sæll Gaggi.

    Hvernig eru dekkin nú að koma út hjá þér í snjó? Eru þau að fletjast almennilega út?
    Mér lýst ofboðslega vel á þessi dekk og hvað þá ef þau eru á skikkanlegu verði þessa dagana.
    Reyndar myndi ég þá vilja fara í aðeins stærra.
    Ég sá í albúminu hjá XJcheroke að hann væri með 38,5" Baja Claw.
    Ætli þau séu líka Radial?
    Hver er að selja þessi dekk?

    Kveðja
    Izeman





    01.03.2004 at 13:04 #477826
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Sæll Izeman.

    Þau eru að koma mjög vel út í snjónum og krumpast bara nokkuð vel, aðeins stífari en Mudder. Eftir því sem ég veit best er 38,5" ekki Radial en mynstrið er eins. Fjallasport er að selja þessi dekk. Kv. Gaggi





    01.03.2004 at 15:46 #477828
    Profile photo of Arnór Magnússon
    Arnór Magnússon
    Participant
    • Umræður: 14
    • Svör: 640

    Sæll Gaggi

    Takk fyrir þessar upplýsingar. Ekki alveg víst að þau henti ef þau eru ekki radial. En ég kem til með að skoða þetta nánar.

    Kveðja
    Izeman





    01.03.2004 at 22:57 #477830
    Profile photo of Ingi Björnsson
    Ingi Björnsson
    Participant
    • Umræður: 73
    • Svör: 1022

    Heyrðu Gaggi Langaði til að spyrja þig nokkra
    spurninga…?

    Hvernig koma þessi dekk út á malbikinu?
    Er þetta málið í sumardekkjum??
    Hvernig er veghljóð á þurru malbiki???

    Ég er nebblega að pæla hvort maður ætti að fá sér þessi
    dekk eða Dick Cepek 37" fyrir sumarið.

    Ingi R-3073





    01.03.2004 at 23:10 #477832
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Sæll Ingi,

    Það kom mér verulega á óvart hversu hljóðlát þau eru. Það heyrist nánast ekki neitt í þeim, ekki einu sinni naglahljóð.

    Reyndar er Benz jeppi kannski meira hljóðeinangraður en gengur og gerist, en ég er með Super Swamper sem sumardekk og það er rosalegur hávaði í þeim.

    Það er gott að keyra á þeim á malbiki, bíllinn er rásfastur og þau þurftu ekki mikla ballanseringu.

    Eyðslan er aðeins meiri á þeim heldur en sumardekkjunum, en það er væntanlega bara eðlilegt, þau eru bæði hærri og breiðari en 36"x12,5" Super Swamper.

    kv., Gaggi





  • Author
    Replies
Viewing 13 replies - 1 through 13 (of 13 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.