FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

35″ L200

by

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › 35″ L200

This topic contains 3 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of  Anonymous 20 years, 4 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 23.01.2005 at 16:35 #195327
    Profile photo of
    Anonymous

    Sælir
    Mig vantar upplýsingar um dekkin,. var á 32? grófmynstruðu á 8? felgum þar til fyrir 3 vikum Ég er fór á 33? fínmynstruð. á 10? En ég var að fara mun meira á þessum 32? heldur en á 33? og er mjög óánægður með þessi 33?. Ég hef verið að pæla hvort ég eigi að fara í góð 33 grófmynstruð og negld dekk eða fara í 35?. Svo mig langar að spyrja ykkur með hvoru mælið þið með 33? eða 35? og hvaða mynstri. Hvað hefur 35? fram yfir 33? (ef svo er) Bíllinn minn er L 200 held að hann sé 1800 kg en gæti haldið að hann vigti 2200 kg með öllu. Þykist vita að ég ætti að vera á lámark 36 miða við þyngd og þess vegna er ég kannski líka að spyrja hvort það breyti einhverju hvort maður fer af 33 yfir í 35? Er einhver munur að keyra á 33? eða 35? hef nefnilega heyrt að bílar séu leiðinnlegir í akstri á 35? ??? Ég held að ég sleppi frekar billega frá breytingum fyrir 35 ég þarf bara að taka úr innribrettunum, er kominn með gúmmíkant á plastkantana og held að ég sleppi með það til að byrja með. En þá er annað sem ég hef smá áhyggjur af og spyr þá sem eiga L200 og eða sambærilega bíla. Þarf ég hlutföll fyrir 35. Ég spyr því þegar ég var að móast í sumar og fara yfir smá ár fannst mér þá hann fara full hratt yfir á engri gjöf og þykist ég vita að ekki fer hann hægar yfir þegar komið er á 35? Hvað segið þið um þetta (var í lága drifinu )
    Hvað gera microskorin dekk ???
    Kv H.R.

  • Creator
    Topic
Viewing 3 replies - 1 through 3 (of 3 total)
  • Author
    Replies
  • 23.01.2005 at 18:40 #514480
    Profile photo of Einar Elí Magnússon
    Einar Elí Magnússon
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 942

    Sæll Lúsifer.

    Ætli það liggi ekki í augum uppi að í þessu tilfelli er það mynstrið sem var að stríða þér – ég mundi a.m.k. skjóta á það. Það er sjaldgæft að bílar drífi minna við það að fara á stærri dekk, nema þeir séu algjörlega vélarvana.

    35" hefur það fram yfir 33" (eins og öll stærri dekk hafa fram yfir öll minni dekk) að fljóta betur. Auðvitað verður "klírans" frá jörðu örlítið meiri líka, en aðalmálið er stækkaður snertiflötur við jörðu og möguleikinn á að stækka hann enn meira með úrhleypingum.

    Bíllinn þinn er ekki svo ósvipaður Hilux í þyngd og það hefur verið mjög vinsælt að setja þá á 38" dekk. Það þýðir auðvitað ekki að þeir fari hvað sem er (fjandi nærri því samt) og þannig eru til rök fyrir því að 38" sé ekki "nógu" stór undir bílinn hjá þér.

    Það sem ég er að fara með þessu er að þú finnur aldrei "réttu" stærðina undir neinn bíl. Hinsvegar er sennilega til eitthvað sem er "rétt" stærð fyrir þig. Þetta er bara spurning um hvað þú vilt komast. Kannski dugar fyrir þig að vera á 33" dekkjum miðað við þína ferðamennsku á meðan einhver annar vill fara beint í 49" á samskonar bíl af því að hann vill geta flotið á vatni líka (efast reyndar um að L200 beri 49" dekk en það er allt annað mál).

    Það er eiginlega samasemmerki á milli aukinnar dekkjastærð og aukins viðhalds. Því stærri sem dekkin eru, því meira álag á legur og annað í drifrásinni (ef öllu er vel breytt þarf munurinn reyndar ekkert að vera svakalegur). Það sem skiptir þó meira máli er að ef þú ert á stórum dekkjum þá er líklegra að þú hjakkir á honum upp um fjöll og firnindi og þá getur alltaf eitthvað klikkað.

    Að þessu öllu sögðu… ég hef ferðast með svipað þungum bílum og þínum á 33", 35", 36" og 38". Ef þú ert að spá í vetrarferðamennsku mundi ég fara beint í 38". Ef þú ert að spá í sumardól mundi ég vera í 33". Svo ákveður þú bara – 35" fer t.d. ansi mikið í snjó, en verður alltaf aðeins þyngri á sér en 38". Hvaða ferðamennska heillar þig og hvað viltu eyða miklum pening og mikilli vinnu í bílinn.

    Míkróskurður gerir (samkvæmt því sem mér hefur verið sagt) aðallega þrennt:
    -Fleiri snertifletir minnka veghljóð.
    -Fleiri snertifletur auka grip í hálku.
    -Fleiri snertifletir þýða aukna kælingu (vegna loftrása á milli kubba) og auka því endingu dekkja.

    Ég átti bíl á míkróskornum dekkjum. Prófaði aldrei samskonar dekk án skurðar, en hann var yfirleitt fínn í hálku og veghljóð var vel innan þolanlegra marka. Ystu kubbarnir í skurðinum eyddust með tímanum en mér sýndist á öllu að þau myndu endast ca. 40.000 km. Ég veit ekkert hvort það er gott eða vont miðað við þessa dekkjategund (38" GH II).

    Vona að þetta komi eitthvað að gagni.

    Kv.
    Einar Elí





    24.01.2005 at 14:33 #514482
    Profile photo of Elvar Níelsson
    Elvar Níelsson
    Participant
    • Umræður: 16
    • Svör: 649

    Granigaml segir svo til allt sem segja þarf, en sértu að spá í vetrarferðir og ert á 35" þá þarftu að vera tilbúinn að nota spotta nokkuð reglulega.

    Elvar





    24.01.2005 at 17:05 #514484
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    ég er með L200 96 árg á 35 " . ‘Eg finn ekki að það vanti aflið fyrir þessi dekk en ég væri til í að komast hægar í snjónum . Þær ferðir sem ég hef farið hefur bíllin bara virkað vel á 35" samanborið 38" en ég ætla samt að fara í 38" svo ég geti farið lengra óg verið fljótari á leiðinni. Ég bíst við að ég fái mér hlutföll fyrir næsta vetur vegna stærri dekkja , en mér finnst það ekki borga sig fyrir 35" ,hlutföll í L200 eru mjög dýr.





  • Author
    Replies
Viewing 3 replies - 1 through 3 (of 3 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.