FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

35″ hækkun á pajero 96″

by Ólafur J. Stefánsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › 35″ hækkun á pajero 96″

This topic contains 5 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Stefán Stefánsson Stefán Stefánsson 17 years, 5 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 21.12.2007 at 10:39 #201426
    Profile photo of Ólafur J. Stefánsson
    Ólafur J. Stefánsson
    Member

    Daginn

    Er með 33″ breyttan pajero og er að velta fyrir mér að skella honum á 35″ hvað þarf ég að gera til að koma dekkjunum vel undir? Er nóg að skrúfa klafadótið meira upp?

    Bíllinn er 96 árgerð. lengri týpan með 2,8 díselvél

  • Creator
    Topic
Viewing 5 replies - 1 through 5 (of 5 total)
  • Author
    Replies
  • 21.12.2007 at 10:48 #607446
    Profile photo of Sigurður Ásmundsson
    Sigurður Ásmundsson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 949

    þegar ég setti 35" undir pajeroinn minn, skrúfaði ég upp um nokkra hringi að framan, setti klossa frá málmsteipunni Hellu að aftan kostuðu 8000 kall. lamdi nokkrum höggum með slaghamri í frambrettið að neðst ca. 3 cm, mæli þó með að klippa þessa 3 cm burt, kom svolítil spenna í brettið þegar ég var búinn að lemja það til. klippti ca. 3 cm úr stuðarahorninu að framan og that´s it. tók ca. 4 klukkutíma.





    21.12.2007 at 11:04 #607448
    Profile photo of Ólafur J. Stefánsson
    Ólafur J. Stefánsson
    Member
    • Umræður: 8
    • Svör: 48

    Sæll

    Takk fyrir þetta, ertu nokkuð með í kollinum hvað klossinn er mikil hækkun?





    21.12.2007 at 12:05 #607450
    Profile photo of Sigurður Ásmundsson
    Sigurður Ásmundsson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 949

    mig minnir að þeir séu 1 1/2 tomma
    reyndar eru til nokkrir pajeroar, aðalega þó eldri bílar 91 til 95 sem eru lægri á boddý þas. að sumir bílar og flestir nýrri voru fluttir inn með boddýlift frá verksmiðju. minn bíll er svoleiðis, athugaðu það áður en þú ferð eftir mínum ráðleggingum





    21.12.2007 at 17:35 #607452
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Ég er langt frá því að vera viss um hversu sambærilegir þessir bílar eru, en það sem ég valdi að gera til að klína 35" undir Galloperinn minn var eftirfarandi:

    a) Flexitorarnir óhreyfðir til að fá ekki leiðinda álag á stýrisgang og ómögulega fjöðrun.
    b) 50mm boddílift.
    c) Klippt úr frambrettum og faldað uppá nýtt, ca 6 cm að aftanverðu, festingar og framstellsblikkið snyrt til að framanverðu.
    d) Original kantarnir klipptir til, hitaðir og faldaðir uppá nýtt.
    e) 4mm þykkur plastrenningur frá málmtækni skrúfaður innaná allt saman til að breikka, skagar 2-3 cm út að ofanverðu sem sleppur fyrir 35" á 12" felgum.
    f) Vatnskassamöndl, man ekki nákvæmlega hvernig ég leysti það, víxlaði eitthvað festingum og setti á hvolf…smekksatriði hvernig það er gert, en nauðsynlegt og tekur smá stund.

    Bremsurör sleppa alveg í þessum bíl, eru á grind aftur í hásingu, vafin að framan sem leyfir hækkun.
    Stýrisgangurinn er nánast láréttur að framan og þarf ekki lengingu fyrir 50mm hækkun, dragliðurinn leyfir þetta vel.

    Slöngurnar í Intercoolerinn fá bara betra pláss.

    Loftsíubarkann þarf að laga aðeins til, sleppur með góðu.

    Að aftan er bara ágætis pláss fyrir 35", sleppur nokkuð vel án úrklippinga ef hækkað er og breikkað á þennan hátt.

    Eg vil taka það fram að til að tryggja lágmarks nart slakaði ég bílnum alveg niður á flexitorunum(á samsláttarpúða) og lagði á borð-í-borð. Að öðrum kosti hefði maður freistast til að klippa eitthvað minna.
    Hitt er annað mál að þetta boddí býður upp á meiriháttar úrklippingar með minniháttar vinnu ef skipt er alveg um plastruslið.
    Þannig held ég að væri hægt að koma 38" með sömu eða hugsanlega minni hækkun og fá lágbyggðan og skemmtilegan bíl algerlega nuddfrían.
    (Eins og Hiluxinn er skemmtilegur að flestu leyti, þá er algerlega hundleiðinlegt að þurfa að skera í sílsinn og möndla boddífestingu fyrir 38")

    kv
    Grímur





    21.12.2007 at 20:51 #607454
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Þú þarft að skera úr brettakanti að framan við hurð og aðeins úr stuðara. Allir 2.8 bílarnir eru hærri en 2.5 bílar af sömu árgerð uppað seinni árs ’97 bílum. Munar 1 tommu.





  • Author
    Replies
Viewing 5 replies - 1 through 5 (of 5 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.