This topic contains 54 replies, has 1 voice, and was last updated by Arnór Magnússon 20 years, 11 months ago.
-
Topic
-
Sælir félagar.
Eins og mörgum er kunnugt um þá hef ég verið í smá dekkjaprufum á 120 Landcruiser eða frá því í sumar (á jöklum þá) og er ég búinn að taka út Mudder GH og Trxus 39.5″.
Til að gera þetta mjög einfalt þá er Trxus að virka lang best undir þessum bíl í öllum gerðum að færi og er einnig að fljóta mjög vel, mun betur en á Mudder.
Um síðustu helgi fórum við eins og svo oft áður upp í fjall að spóla og var færið mjög erfitt, nýfallinn leiðindasnjór og við hliðina á bæði Dobblara og Cherokee þá var Cruiserinn á Trxus að fljóta mun betur.
Einnig höfum við farið 2 saman á DC-44″ Patrol sem er einn af betri bílum sem ég hef ekið í snjó hvað varðar drifgetu (gamli 1986 modelið)og þá var ekið í svona eins og við köllum það stundum, ekta 44″ færi, og stakk Cruiserinn Patta af í orðsins fyllstu merkingu. Þess má þó geta að Patti flaut aðeins betur (ca 2-3 cm að jafnaði) en hafði ekki þetta skemmtilega grip sem Trxus hefur á hliðunum, Cruiser dró Patta 3 í þessari ferð.
Þrýstingur í dekkjum, þessi dekk eru að virka best fyrir neðan 3 pund. Í lausum snjó eru þau að virka best í tæpum 2 pundum og er ég að fara alveg niður í 1,5 pund.
Sem sagt það er ekki svo galin fjárfesting í þessum dekkjum undir þennan bíl. Þau henta honum mjög vel hvað varðar flot og drifgetu.
Best er að taka það fram að ég hef ekki mikla trú á að þessi dekk henti léttari bílum, þ.e. undir 2000 kg.
Annað, á malbiki þar sem skorur koma í það (slit) á hann til að leita og er ekki neitt sérstaklega spennandi þar. Hins vegar á langkeyrslu eru þau alveg frábær og liggur dollan eins og klessa á veginum, mun betur en á Mudder eða GH.Vona að þetta innlegg er varðar aðallega dekk gagnist einhverjum.
Kv.
BenniBÞV.
Allt gott að frétta, var að láta setja undir hlutföll (4:88) finn engan sérstakan mun svo sem. Erum að skoða milligír frá Marlin Crawler hann er mjög spennandi 4:7 hlutföll. Ætlar þú ekki að skipulegja einhverja spennandi ferð fyrir okkur í mars.
You must be logged in to reply to this topic.