Forsíða › Forums › Spjallið › Allt annað › 1 Apríl
This topic contains 61 replies, has 1 voice, and was last updated by Hjörtur Sævar Steinason 16 years, 8 months ago.
-
CreatorTopic
-
28.03.2008 at 21:41 #202205
Jæja nú er loksins komið plan fyrir 1. Apríl mótmælin. sjá forsíðu.
Nú er tækifærðið að sýna samstöðu og mæta……
allir að dunda um helgina við að búa til spjöld og eitthvað skemmtilegt til að halda á eða hengja á bílanna.
Spurning hvort einhver taki að sér námskeið í svona föndri……
Kveðja Lella -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
31.03.2008 at 21:59 #618784
Töluverður fjöldi manns er mættur hér á Eirhöfðann (skemmu f4x4) og hefur tekið þátt í því að setja saman slagorð sem að verða prentuð á límmiða til að merkja bílana á morgun. Einnig er búið að setja saman yfirlýsing með kröfu okkar til að afhenda hæstvirtum forsætisráðherra Geir H. Haarde á tröppum alþingis klukkan 16:00.
–
Skorum við á deildir f4x4 út á landi til að standa fyrir hópaakstir og vera sýnilegir til stuðnings við þessa kröfur okkar.Kv. Stefanía
–
P.s. Ég mæti á morgun
31.03.2008 at 22:07 #618786Austfirðingar ætla að fara mótmæla rúnt um Egilsstaði á morgun kl. 16 til að sýna samstöðu með félögum okkar, enda er eldsneytið ekki ódýrara á austurlandi.
Vörubílstjórar munu verða með okkur.
31.03.2008 at 22:08 #618788Rekið nú af ykkur slyðruorðið og skrifið: "Ég mæti á morgun".
Kv. Magnús G.
R-2136
31.03.2008 at 22:11 #618790Rekið nú af ykkur slyðruorðið og skrifið: "Ég mæti á morgun".
Kv. Magnús G.
R-2136
31.03.2008 at 22:31 #618792Styð friðsamleg mótmæli heilshugar.
Eldsneitisálögur eru skammarlega háar og draga þrótt úr atvinnulífinu og þungur baggi fyrir fjölskildurnar í landinu.
Ég mun mæta á morgun
kveðja Dagur
31.03.2008 at 22:42 #618794ég veit ekki með ykkur en ég er búinn að mótmæla síðan 1 febrúar og ekki búinn að setja jeppan í gang síðan þá og hann er ekkert bilaður enda snilldar patrol
kveðja bæbæ
01.04.2008 at 00:30 #618796sýndu nú styrk bæbæ og settu pattann í gang og mættu í mótmælin, því fleiri því betra. við verðum að sýna þessum köllum að við meinum það sem við segjum.
01.04.2008 at 08:15 #618798Ég mæti alveg örugglega.
Kv
Peve.
01.04.2008 at 09:47 #618800Góðan daginn,
mig langar í fána á bílinn minn eitthvað sem er nógu áberandi.
Hvernig útbý ég það eða hvar nálgast ég það?
Ef einhver er með gott svar geti þá sá hinn sami hringt í mig í síma 8951961, ég er ekkert viss um að vera í nálægt neinni tölvu það sem eftir lifir dags.
Kveðja Hjörtur og JAKINN
01.04.2008 at 13:25 #618802við erum með NOKKRA límmiða til að setja á bílanna.
svo mæta tímanlega
kveðja Lella
Vér mótmælum allir
01.04.2008 at 14:18 #618804Hvar a að hittast? eg ætla að taka þatt
01.04.2008 at 15:44 #618806Var útá Austurvelli fyrir 10mín – það er búið að strengja gula borða utanum Alþingishúsið og fjórir prúðbúnir lögregluþjónar standa á snakkinu.
01.04.2008 at 15:54 #618808Er að fylgjast með ykkur úr stúkusæti hérna úr vinnunni og í heilt kortér er röðin búin að liðast hérna eftir Sæbrautinni og það sér ekki fyrir endann á henni…
:o)
Svona á að gera þetta.
Baráttukveðja,
Soffía
01.04.2008 at 17:44 #618810Hæ ég er stoltur af Glanna og Lellu og öðrum sem þorðu. Mótmælin tókust í allastaði vel. Og tók lestina tæpa klukkustund að sniglast Sæbrautina.
Formaðurinn var mættu hjá R-Sigmundssyni og deildi út fjandi flottum merkjum sem við skreyttum bílanna með.
Reyni að setja inn myndir á eftir ef álagið á f4x4.is minkar aðeins.Ps ég sá að Glanni, Agnes og Lella voru leidd inn í alþingishúsið og rétt sá ég lampa á handjárn í sömu andrá. Það þarf þó ekki að tákna neitt alvarlegt. Kannski að þeim hafi bara verið boðið í kaffi. Hjá Sturlu
01.04.2008 at 18:45 #618812Þetta var allveg frábært frammtak, og dróg fjöldann af stað. Ég var frekar aftarlega í röðinni og var um 2 tíma að komast að allþingishúsinu, og flautan þá orðin úrbrædd!
Fjöldi bíla var tæplega áætlaður af Lögreglu að mínu mati.
01.04.2008 at 18:45 #6188142svar
01.04.2008 at 19:52 #618816Þakka kærlega fyrir mig og kærar þakkir til ykkar allra sem komu með okkur í þetta í Reykjavík,Akureyri og Egilsstöðum.
Kveðja,
Glanni
01.04.2008 at 19:56 #618818þetta er áskorunin sem við afhentum í dag á Austurvelli:
Reykjavík, 1. apríl 2008
Til forsætisráðherra
ÁSKORUN TIL RÍKISSTJÓRNARINNAR
Síhækkandi eldsneytisverð undanfarið hefur bein áhrif á afkomu heimilanna og er farið að íþyngja mörgum fjölskyldum allverulega sem og atvinnulífinu.
Afleiðingar þessa gífurlega háa eldsneytisverðs má víða sjá í samfélaginu. Ljóst er að það hefur bein áhrif á vísitölu neysluverðs og er verðbólgumyndandi. Það snertir pyngju landsmanna svo um munar. Jafnframt eru nýgerðir kjarasamningar í hættu þar sem hækkandi verðlag hefur nú þegar gleypt þá hækkun sem um var samið. Ótvírætt spilar eldsneytisverð þar stóran sess.
Fólkinu í landinu misbýður sú framganga olíufélaganna að verðlagning eldsneytis virðist aðeins fylgja hækkun á heimsmarkaði en ekki lækkun.
Í tilefni af hinu gengdarlausa og síhækkandi eldsneytisverði skorum við landsmenn allir á stjórnvöld að bregðast strax við og lækka álögur ríkisins á eldsneytisverð umtalsvert. Það mun hafa bein áhrif á alla.
Ferðaklúbburinn 4×4 – fyrir fólkið í landinu
01.04.2008 at 20:39 #618820Mér finnst þessi [url=http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/04/01/motmaelt_vid_austurvoll/:vk0gr9ng][b:vk0gr9ng]Hjörtur[/b:vk0gr9ng][/url:vk0gr9ng] Nú bara langflottastur….
01.04.2008 at 21:45 #618822Ég vil þakka fyrir daginn.
Til hamingju með daginn og takk allir sem mættu.
Flott hjá atvinnubílstjórum á Akureyri og 4×4 Austurland þið eruð flottastir.
Sameinaðir stöndum vér.
Það lýsir líka ágætlega hvað almenningur er gjörsamlega búin að fá nóg að nokkrir eru búnir að hafa samband við mig bláókunnugt fólk út í bæ og vill fá okkur með í mótmæli sem það er að undirbúa
Því þetta var svo flott í dag
Vér mótmælum allir
kveðja Lella
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.