Forsíða › Forums › Spjallið › Allt annað › Göngufatnaður í frosti og kulda › Re: Göngufatnaður í frosti og kulda
Ef það er þurrt í veðri sleppi ég Goritex skelinni (eða Sympatex sem mér sýnist að gefi orginalinum ekkert eftir) og er þá bara í góðum wind-stop fatnaði, polartec held ég það heiti hjá 66N sem dæmi. Slíkt efni andar mun betur en vatnsheld skel en er fljótt að þorna og hrindir aðeins frá sér. Ágætlega hlýtt líka og dugar í kulda allavega upp að vissu marki. Í mjög miklum kulda og vindi getur náttúrulega þurft dúnúlpuna yfir eða Goritex úlpu, en þá er hægt að renna frá eða henda þessu í bakpokann ef manni fer að hitna. Það er hins vegar málið að ef þér er þokkalega hlýtt þegar þú gengur af stað kemurðu til með að svitna, betra að vera aðeins á mörkunum að vera kalt í upphafi, manni hitnar fljótt á göngu og hafa svo viðbótarfatnað í bakpokanum. Í alvöru úrkomu er svo auðvitað Goritex eða Sympatex eiginlega eina vitið.
Kv – Skúli
