Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Bestu kaupin í breyttum jeppa › Notaðir jeppar
26.07.2003 at 02:32
#475052
Fyrir 3-4 árum var gríðarlega mikið selt af nýjum Trooperum. Þetta var m.a. vegna þess að Isuzu var á undan Toyota og Nissan með "common-rail" díselvélar. Ef maður ber saman ’99 árgerð að Trooper og Toyota Barbí (LC-90), þá var Trooperinn á mun betra verði og með miklu aflmeiri vél. Á þeim tíma var tiltölulega morgum barbí krúserum breytt fyrir 38" dekk, þó þeir bílar hafi reynst veikbygðir. Meðal annars hafa framdrif, millikassar og fjöðrunarkerfið að framan, gefið sig. Ég veit um svona bíl þar sem allt þetta fór.
Aftur á móti hefur heyrst lítið af bilunum í Trooperum. Það eina sem ég man eftir er að glóðarkerti hafa farið.
