Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Hilux D/C v.s. Cruiser eða Patrol › Hvaða jeppa?
Mig langar að leggja hér orð í belg (sem er orðinn stór). Áður en ég byrja er rétt að taka fram að alltaf er þetta spurning um ákveðinn smekk að lokum. Það sem einn vill hentar ekki öðrum, jafnvel þó að báðir ferðist saman.
Ég er nýbúinn að fara í gegnum þetta val. Átti alltaf öfluga jeppa, flutti út ’93, kom aftur ’01 og gat byrjað með hreinan sjó. Tók mig eitt ár að velja áður en ég tók stökkið. Markmiðið var að byggja verulega öflugan ferðajeppa sem ég gæti átt í 8-10 ár. Ég spáði í 90Cruiser, 100Cruiser, "Ljóta"Cruiser, Chevrolet TrailBlazerEXT, Duramax pickupa, ToyotaDoubleCab, Musso, Rexton, Patrol o.m.fl.
Hikaði lengi við Patrolinn vegna þess að almennar kjaftastögur gera lítið úr aflinu í honum. En leist alltaf vel á undirvagninn og boddíið. Fann þó út að lokum að það væri jafnbesti bíllinn fyrir mig. Ég fékk mér nýjan sjálfskiptan tuskubíl. Þegar ég fór að keyra kom aflið mikið á óvart. Nú er ég að komast á 44" með öllu (öðru en showoff dótinu)og gaman verður að sjá hvað hægt verður að koma honum áfram í snjó.
Lét breyta hjá Breyti, einn af kostunum við Patrol er að búið er að þróa vel breytingar á honum og því auðvelt að kaupa þá vinnu. Sérstaklega fyrir þá sem eru vanir að breyta sjálfir, hafa ekki lengur til þess tíma, en telja sig vita nákvæmlega hvernig þetta á að vera. Ég tók nokkuð staðlaða breytingu með mörgum nýjum afbrigðum. Breytir hefur staðið sig frábærlega í þessu verki.
Þetta gæti líka átt við um fleiri tegundir, Musso og Rexton eru í góðum höndum, bara örlítið of litlir fyrir mig, því miður. Þjónusta við Toyota bíla er margrómuð, ég vildi bara ekki 90Cruiser, vitandi af 110Cruiser á leiðinni og 100 Cruiser fannst mér of viðamikill í breytingu, ekki er til nægilega þróuð 44" breyting að mínu mati til að kaupa út þá breytingu sem ég þarf (með framhásingu og öllu). Aðrir fást ekki sjálfskiptir, sem er skilyrði hjá mér. Semsagt, endaði á Patrol.
Þetta er mitt val og ég ætla ekki að segja öðrum að velja eins, þetta er bara til upplýsingar. Val á jeppa er mörgum álíka krítískt og val á eiginkonu og ekki veit á gott að skipta sér um of af vali félaganna á eiginkonum, hvað þá að sama konan henti öllum.
Ég bendi mönnum á að verða sér úti um bókina "Jeppar á Fjöllum" til að kynna sér "eðlisfræði" jeppa og það mun hjálpa mönnum að velja rétta jeppann fyrir sig.
Varðandi ameriska jeppa, þá hafa þeir breyst ofboðslega frá ’74 Bronco. Ég vil reyndar ekki hallmæla þeim bíl, í honum var að mörgu leyti lagður grunnurinn að nútíma jeppabreytingum. Nýir amerískir standa þeim asísku ekkert að baki. Þetta snýst mikið um markaðssetningu og hvað við erum vanir að sjá. Hins vegar hafa umboðin fyrir ameríska bíla staðið sig hörmulega svo ekki sé meira sagt. En það er vert umhugsunar að hægt er að fá nýjan framöxul í Dana60 hásingu á ca 5-10 sinnum lægra verði en nýr framöxull kostar hjá umboðinu í Patrol.
