Forsíða › Forums › Áhugaefni félagsmanna › Getraunir › Almennar Getraunir. › Reply To: Almennar Getraunir.
Sælir.
Fossinn á hvítsvörtu myndinni heitir Búrfoss. Breiðholtið var nú mitt leiksvæði áður en nokkur bygging var reyst þar og Elliðaárnar þekkti ég nánast eins og handabakið. Margt breitist á 55 árum eða frá 1900. Þetta er fossinn í litlu ánni á móti Sprengisandi. Ég hef að vísu aldrei séð hann svona vatnsmikinn og breiðan. Fyrir neðan fossinn var nokkuð djúpur hylur og var þar oft sjáanlegur silungur.
Fossinn á litmyndinni heitir tveimur nöfnum Skorarhylsfoss Kermóafoss. Lengst af var gilið kallað Indjánagil en það er ekki upphaflegt nafn þess. Þar var ágætis hellisskúti sem passaði fyrir krakka að skríða inn í í leikjum og ævintýrum.