Ferðaklúbburinn 4x4 » All Posts https://old.f4x4.is/spjallbord/svaedi/ahugaefni-felagsmanna/getraunir/feed/ Thu, 01 Oct 2026 13:28:00 +0000 http://bbpress.org/?v=2.5.10-6063 is-IS https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/brandarar-vid-allra-haefi-nyjir-og-gamlir/page/3/#post-941105 <![CDATA[Reply To: Brandarar við hæfi. Nýir og notaðir.]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/brandarar-vid-allra-haefi-nyjir-og-gamlir/page/3/#post-941105 Thu, 24 Nov 2016 16:08:05 +0000 Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060 Kalli kemur að innskráningarborðinu á Kef flugvelli og segir hátt og snjallt; 
Ég vil að þessi taska fari til Belgíu, 
þessi fari til Kaupmannahafnar,
Já og þessi rauða fari til Perú. 
Afgreiðslukonan er nokkuð hissa og segir nokkuð höst.
Þetta er bara alls ekki hægt. 
Víst, segir Kalli, Ykkur tókst það seinast þegar ég flaug héðan…..

]]>
https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/brandarar-vid-allra-haefi-nyjir-og-gamlir/page/3/#post-941045 <![CDATA[Reply To: Brandarar við hæfi. Nýir og notaðir.]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/brandarar-vid-allra-haefi-nyjir-og-gamlir/page/3/#post-941045 Tue, 15 Nov 2016 22:35:31 +0000 Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060 Nonni var bráðmyndarlegur maður og hafði borið út póstinn í Hlíðunum á annan áratug og því orðinn vel kunnugur flestum þar.

Einn mánudaginn sem oftar gekk Nonni um hverfið með póstinn og kom að þar sem Gisli hafsteinn, einn íbúanna í hverfinu, var að bera út fjölda plastpoka sem voru fullir af tómum bjór- og áfengisflöskum.

Nonni stoppaði og gaf sig á tal við Gisli Hafsteinn og spurði hvort hann hefði verið með veislu um helgina.

Gísli hafsteinn hélt það nú heldur betur, þau hjónin hefðu boðið 15 hjónum úr hverfinu í veislu á laugardagskvöldinu og úr hefði orðið allsherjar fyllerí.

Nonni hló og spurði hvort þetta hefði ekki bara verið gaman.

Jú, jú! sagði Gísli Hafsteinn, við fórum til dæmis í leikinn „Hver er maðurinn“ og þá fór nú gamanið næstum úr böndunum.

Hvaða leikur er það? spurði Nonni.

Þá fórum við karlarnir inn í svefnherbergi, klæddum okkur allir úr fötunum og skiptumst síðan á að koma út einn í einu, sveipaðir laki, með „fermingarbróðurinn“ einan sýnilegan og konurnar áttu að giska á hver þetta væri.

Nonni hló og sagði að það væri ekki nógu gott að hafa misst af þessu.

Kannski eins gott að þú komst ekki! sagði Gísli Hafsteinn Þær giskuðu sjö sinnum á þig!

]]>
https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/brandarar-vid-allra-haefi-nyjir-og-gamlir/page/3/#post-940928 <![CDATA[Reply To: Brandarar við hæfi. Nýir og notaðir.]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/brandarar-vid-allra-haefi-nyjir-og-gamlir/page/3/#post-940928 Sat, 15 Oct 2016 19:33:25 +0000 Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060 Gummi var með 2 í takinu á elliheimilinu, Siggu og Jónu.
Eitt kvöldið sem hann var hjá Siggu sagði hann að hann vildi hætta með henni.
Hvers vegna ertu að segja mér upp, spurði Sigga.
Sko hún Jóna heldur svo vel umm’ann á nóttinni.
En það geri ég líka hrópaði Sigga.
Já ég veit en Jóna er með PARKINSON

]]>
https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/brandarar-vid-allra-haefi-nyjir-og-gamlir/page/3/#post-940830 <![CDATA[Reply To: Brandarar við hæfi. Nýir og notaðir.]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/brandarar-vid-allra-haefi-nyjir-og-gamlir/page/3/#post-940830 Thu, 22 Sep 2016 09:32:01 +0000 Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060 Sverrir var eitt sinn á gangi á Laugaveginum þegar hann sá Berg vin sinn koma akandi á splunkunýjum jeppa. Bergur stoppaði að sjálfsögðu hjá honum og veifaði glottandi til hans. Sverrir gekk upp að bílnum. „Hvar í ósköpunum fékkstu eiginlega þennan jeppa?“ spurði hann hissa. „Hún Stína gaf mér hann“ svaraði Bergur glaðbeittur. „Gaf hún þér nýjan jeppa?“ át Sverrir upp eftir honum. „Hvers vegna í ó…sköpunum?“
„Ég skal bara segja þér hvað gerðist,“sagði Bergur. „Við vorum í bíltúr um daginn, einhvers staðar uppi sveit . Allt í einu ók Stína út af veginum, setti jeppan í fjórhjóladrifið og keyrði eitthvað langt út í móa. Þegar hún var búinn að skröltast yfir hóla og hæðir stoppaði hún bílinn, fór út og klæddi sig úr öllum fötunum, lagðist á jörðina og sagði: „Beggi minn taktu það sem þú vilt!“ „Svo ég tók jeppann.“ „Þú ert bráðsnjall,“ sagði Sverrir og kinkaði kolli. „Fötin hefðu hvort sem er aldrei passað á þig.

]]>
https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/brandarar-vid-allra-haefi-nyjir-og-gamlir/page/3/#post-937931 <![CDATA[Reply To: Brandarar við hæfi. Nýir og notaðir.]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/brandarar-vid-allra-haefi-nyjir-og-gamlir/page/3/#post-937931 Mon, 18 Apr 2016 20:44:19 +0000 Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060 Lenti í fáránlegu dæmi í nótt, einn nágranninn bankaði hjá mér um klukkan half þrjú, ég endurtek um miðja f&%king nótt, HÁLF ÞRJÚ, hann var í raun heppinn að ég var ennþá vakandi að spila á trommurnar…. Annars hefði ég orðið band brjál….

]]>
https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/brandarar-vid-allra-haefi-nyjir-og-gamlir/page/3/#post-937769 <![CDATA[Reply To: Brandarar við hæfi. Nýir og notaðir.]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/brandarar-vid-allra-haefi-nyjir-og-gamlir/page/3/#post-937769 Sun, 10 Apr 2016 22:39:28 +0000 Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060 Jón og Jóna eru að halda upp á 50 ára brúðkaupsafmæli sitt. Jón segir við Jónu. “Hefurðu nokkurn tíma haldið fram hjá mér?” Jóna svarar: “Jón! Hvers vegna ertu að spyrja svona spurningar núna”? “Jú, Jóna, ég verð að vita það,” svarar Jón. Jóna segir: “Allt í lagi, ég hef haldið þrisvar fram hjá þér.”“Þrisvar, hvenær var það?” spyr Jón.
Jóna segir: “Manstu Jón þegar þú varðst 25 ára og vildir stofna fyrirtækið og bankastjórinn neitaði þér um lán? Svo kom bankastjórinn sjálfur einn daginn með lánspappírana svo þú gætir skrifað undir.” Jón svarar: “Ó, Jóna, þú gerðir þetta fyrir mig, ég virði þig bara meira en áður. Hvenær var svo annað skiptið?”
Jóna segir: “Manstu þegar þú fékkst hjartaáfallið og enginn læknir vildi skera þig vegna þess að aðgerðin var svo hættuleg? Svo kom allt í einu dr. Bjarni yfirlæknir og framkvæmdi aðgerðina sjálfur og þú náðir þér alveg.”
“Ég trúi þessu ekki,” sagði Jón, “þú gerðir þetta til að bjarga lífi mínu. Ég gæti ekki átt betri konu. Þú hlýtur að elska mig mjög mikið fyrst þú gerir allt þetta fyrir mig. Hvenær var svo þriðja og síðasta skiptið?”
“Jón, þú manst að fyrir nokkrum árum langaði þig til að verða formaður í golfklúbbnum og þig vantaði 18 atkvæði til að ná kjöri..?”

]]>
https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/ahugaefni-felagsmanna/#post-936844 <![CDATA[Áhugaefni félagsmanna.]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/ahugaefni-felagsmanna/#post-936844 Sat, 12 Mar 2016 00:00:50 +0000 Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060 Á fyrri vefsíðu var gerð tilraun til að finna áhugavert efni sem félagsmönnum líkaði og gætu tekið þátt í. Þar sem þessi vefsíða er skammt á veg komin ætla ég að endurvekja þræði sem þar voru. Þessir þræðir voru í kassa á forsíðu eins og Virkar umræður.

Kv. SBS

Videómyndasafn Félagsmanna
Ferðaáætlun – Gerast ferðafélagar
Brandarar við hæfi. Nýir og notaðir
Umræða um breitingar og viðgerðir
Ljósmyndakeppni
Myndagetraun
Hópkaup
Almennar Getraunir
Hugmyndir

]]>
https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/ferdast-a-svipudum-slodum-gerast-ferdafelagi/#post-936817 <![CDATA[Reply To: Ferðaáætlun – Gerast ferðafélagar.]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/ferdast-a-svipudum-slodum-gerast-ferdafelagi/#post-936817 Wed, 09 Mar 2016 20:44:03 +0000 Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060 Sæl/ir.

Hér er verið að kanna áhuga félagsmanna á þessu spjalli á því að fá með sér ferðafélaga eða að láta vita af sér á ákveðnu svæði upp á að hittast þar og eiga samlreið.

Kv. SBS.

]]>
https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/brandarar-vid-allra-haefi-nyjir-og-gamlir/page/3/#post-936777 <![CDATA[Reply To: Brandarar við hæfi. Nýir og notaðir.]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/brandarar-vid-allra-haefi-nyjir-og-gamlir/page/3/#post-936777 Sat, 05 Mar 2016 22:17:19 +0000 Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060 Sæl/ir.

Þessi þráður er töluvert leitaður uppi og lesin.

Ég endurvek hann því hér á forsíðunni.

Kv. SBS.

]]>
https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/brandarar-vid-allra-haefi-nyjir-og-gamlir/page/3/#post-934075 <![CDATA[Reply To: Brandarar við hæfi. Nýir og notaðir.]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/brandarar-vid-allra-haefi-nyjir-og-gamlir/page/3/#post-934075 Tue, 03 Nov 2015 23:28:12 +0000 Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060 Waggi á stórum túttum. Tengill FaceBook

Viðhengi:
  1. Wagginn
]]>