FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Sögustund Slóðavina

09.02.2010 by Ásgeir J. Sigurðsson

Næstkomandi miðvikudagskvöld, 10. febrúar, stendur Ferða- og útivistafélagið Slóðavinir fyrir Sögustund í samvinnu við Bernhard Vatnagörðum. Nú sem endranær er sögustundin helguð frumkvöðlum í ferðamennsku á mótorhjólum þar sem sérstaklega er horft til ferðalaga í óbyggðum Íslands. Í sal verða til sýnis nokkur af þeim mótorhjólum sem notuð voru til ferðalaga hér á Íslandi í denn. Á seinasta ári tókst þessi viðburður vonum framar og mættu yfir 100 manns og hlustuðu á sögur og horftu á myndir af ferðalögum sem farnar voru fyrir rúmlega þrjátíu árum síðan. Í ár verður róið á svipuð, en þó ekki sömu mið, og verða m.a. sagðar sögur frá ferð Snigla á Látrabjarg, vorferð í Landmannalaugar á torfæruhjólum, ágústferð á NA-land ásamt fleiri sögum. Njáll Gunnlaugsson, höfundur Þá riðu hetjur um héruð – 100 ára saga mótorhjólsins á Íslandi, segir frá og sýnir myndir úr einstöku safni sínu. Sögustundin fer fram hjá Bernhard í Vatnagörðum, hefst kl. 19.00 og er allt áhugafólk um ferðalög á mótorhjólum velkomið. Veitingar í boði Bernhard og Slóðavina. Til sölu verður bók Njáls Gunnlaugssonar, en andvirði bókarinnar fer í uppbyggingu á mótorhjólasafni Íslands sem nú er í smíðum á Akureyri.  Nánari upplýsingar um viðburðinn má finna á vef Slóðavina.


FacebookTwitter

Filed Under: Stjórn

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.