Skráning í Nýliðaferð Ferðaklúbbsins 4×4 er hafin og lýkur næstkomandi miðvikudag.
Skráningarformið má nálgast hér neðst á síðunni undir „Skráning í ferðir“ eða hér:
https://old.f4x4.is/index.php?option=com_seminar&Itemid=285
Líkt og áður hefur verið auglýst verður Nýliðaferð Ferðaklúbbsins 4×4 helgina 2-4. Desember næstkomandi. Þetta er að sjálfsögðu snjóalögum háð.
Stefnan er tekin á skála félagsins, Setrið sem staðsettur er suðvestur af Hofsjökli, með viðkomu í Hólaskógi.
- Föstudagur 2. Desember: Farið verður frá Stöðinni (Skeljungi) á Vesturlandsvegi í tveimur hópum, kl 17:00 og kl 19:00
- Laugardagur 3. Desember: Lagt af stað úr Hólaskógi árla morguns og stefnan tekin á Setrið.
- Sunnudagur 4. Desember: Tekið til í skála og lagt af stað úr Setrinu og stefnan tekin á láglendið.
Áætlaður kostnaður á mann er 5500kr, fyrir gistingu og einnig verður sameiginleg máltíð á laugardagskvöld í Setrinu. Drykkjarföng verður þó hver og einn að taka með sér.
Einungis verður pláss fyrir 20 jeppa, að hámarki 2 í bíl. Fararstjórar taka ákvörðun um hæfni bíla og þáttakanda í ferðina. Lágmarks kröfur eru þó:
- VHF og GPS tæki séu til staðar
- Þáttakendur séu lítt vanir fjallaferðum í snjó.
- Jeppinn sé á dekkjastærð sem beri viðkomandi þyngd í snjó.
- Jeppinn sé útbúinn fyrir ferðalög á hálendinu í snjó.
- Viðkomandi þátttakandi sé greiddur félagi í Ferðaklúbbnum 4×4. Sértu ekki félagsmaður en vilt koma með, er hægt að skrá sig í klúbbinn fyrir ferðina.
Nýliðakvöld verður haldið í vikunni fyrir ferðina og verður það auglýst síðar bæði hér á vefsíðunni og einnig í þræði fyrir nýliðaferðina hér á spjalli klúbbsins.
Séu einhverjar spurningar varðandi gjaldgöngu í ferðina eða aðrar fyrirspurnir er bent á veffangið hjalparsveit@f4x4.is eða samuel@ulfr.net