Síðasta dagsferð Litlunefndar á þessu ári verður farina laugardaginn 12. nóvember n.k. Við ætlum að fara Kaldadalinn og reyna okkur við jökulröndina á Langjökli við Jaka. Farið verður að þjónustumiðstöðinni á Þingvöllum og þaðan upp á Kaldadal. Af Kaldadalsvegi verður farið upp að skálanum Jaka og síðan eitthvað upp í jökulinn eins og okkur líst best á. Höldum síðan í Húsafell en þar verður ferðinni slitið.
Gera verður ráð fyrir að ferðatilhögun geti breyst, þar með talið að ferðinni verði frestað eða hún felld niður vegna óhagstæðrar veðurspár eða af öðrum ástæðum, samkvæmt ákvörðun fararstjóra.
Skráning er hafin og lýkur henni miðvikudagskvöldið 9. nóvember n.k. En þá verður einnig kynningarfundur fyrir alla skráða þátttakendur.