Litlanefndin heldur í dagsferð laugardaginn 20. febrúar n.k. og er skráning hafin.
Áætluð leið liggur frá Reykjavík um Geysi og Gullfoss inn á Kjalveg og upp í Kerlingafjöll og næsta nágrenni. Áætlað er að halda til byggða við Geysi. Gera verður ráð fyrir að ferðatilhögun geti breyst, þar með talið að ferðinni verði frestað eða hún felld niður vegna óhagstæðrar veðurspár, eða af öðrum ástæðum, samkvæmt ákvörðun fararstjóra.
Það kostar ekkert að taka þátt og allir eru velkomnir, bæði félagsmenn og aðrir. Litlunefndarferðir miðast við lítið breytta og óbreytta jeppa og eru engar takmarkanir á því svo lengi sem jeppinn hefur hátt og lágt drif. Ákvarðanir fararstjóra um leiðarval og fleira miðast við þetta.
Undirbúnings og kynningarfundur verður í húsnæði ferðaklúbbsins að Eirhöfða, á opnu húsi, fimmtudagskvöldið 18. febrúar, kl. 20:30. Á kynningarfundinum verður farið yfir leiðaval og helstu öryggisatriði kynnt, auk grunnnámskeiðs í jeppamennsku fyrir þá sem hafa áhuga á því.