Helgarferð 11 – 13 júní
Nú hefur verið opnað fyrir skráningu í hina árlegu landgræðsluferð F4x4. Í ár, eins og undanfarin ár verður farið Þjórsárdalinn.
Margir stefna á að leggja af stað á föstudagssíðdegi og ná þannig góðri útileguhelgi. Gisting verður í boði Hekluskóga á tjaldstæðinu við Sandártungu skammt austan Sandár. Tjaldsvæðið er velgróið, fallegt og flatirnar aðskildar með trjágróðri.
Laugardagurinn 12.06. verður aðalvinnudagurinn. Við höfum, í samstarfi við Landgræðsluna og Hekluskóga, séð um að dreifa áburði blönduðu melgresi og grasfræjum á ákveðin svæði í Núpsskógi og Þórðarholti. Þau svæði eru frekar stutt frá tjaldstæðinu.
Á laugardagskvöldinu verður frábært grill í boði klúbbsins og eru þeir sem stefna eingögnu á vinnuferðina sjálfa, en ætla sér ekki að gista, bent á að skrá sig þannig að nægur matur verði í boði fyrir alla.
Nánari upplýsingar um ferðina og skráningar eru á vefnum. Einnig er hægt að senda okkur póst á umhverfisnefnd@4×4.is eða hringja í Diddu í síma 694 8862.
Landgræðslukveðjur frá Umhverfisnefnd