FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Skálar / Setrið / Setrið – Leiðbeiningar

Setrið – Leiðbeiningar

Helstu upplýsingar um skálann.

Komið að skálanum

1.       Hringja í eitthvert af þeim símanúmerum sem tiltekin eru á skilti á hurð skálans.  Ef það er horfið þá eru símanúmerin eftirfarandi:

Skálanefnd 844 5010
Guðmundur Geir Sigurðsson 891 6753
Baldur Harðarson 892 2630
Jón Óskar Valdimarsson 896 1607
Ómar Wieth 867 6063
Styrmir Frostason 661 5149
Einar Sólonsson 894 6586

Einhver af ofantöldum opnar skálann í gegnum farsíma eða leiðbeinir með neyðarlykla ef ekki tekst að opna gegnum kerfið.  Hikið ekki við að hringja og fá upplýsingar ef eitthvað er óljóst.

2. Kamína skálans er í fremri skála.  Opna þarf fyrir olíu inn á kamínuna með krana sem er á leiðslu sem kemur upp úr gólfinu og er vinstra megin við kamínuna.

DSCF7038 300                      DSCF7038 301

Góðar leiðbeiningar um hvernig kveikja skal upp í kamínunni eru síðan á veggnum hægra megin við hana.  Eldspýtur eru staðsettar nálægt kamínunni, eiga að vera annaðhvort í gluggakistu eða á borði.  Tveir gasofnar eru í skálanum sem nota má til að ná upp hlýju meðan kamínan er að ná upp hita og eru þeir staðsettir í innri skála þar sem eldhúsið er. (gasofnar miðaðir við vetrarnotkun)

  1. Fylla þarf á dagtanka kamínu og ljósavélar áður en farið er.

 

Bæta á dagtank ljósavélar

DSCF7044 600

 

Þegar bætt er á dagtank ljósavélar skal rauði kraninn sem myndin er af vera í þeirri stöðu sem myndin sýnir.  Þrýst er síðan á neðri takkann og honum haldið inni og rennur þá olía í tankinn. Slangan sem er utan á tanknum vinstra megin  sýnir hvað er mikið er í honum. Gætið þess að yfirfylla ekki dagtank. Sleppið rofanum og hættið að dæla þegar örlítið vantar upp á að slangan sé full.

 

Bæta á dagtank kamínu

DSCF7043 600

 

Þegar bætt er á dagtank kamínu skal rauði kraninn sem myndin er af vera í þeirri stöðu sem myndin sýnir.  Þrýst er síðan á neðri takkann og honum haldið inni og rennur þá olía í tankinn. Tankurinn er staðsettur inni í rýminu sem er innaf ljósavélarrýminu og þarf að opna hurðina þangað inn til að sjá hann.  Slangan sem er utan á tanknum vinstra megin  sýnir hvað er mikið er í honum. Gætið þess að yfirfylla ekki dagtank. Sleppið rofanum og hættið að dæla þegar örlítið vantar upp á að slangan sé full.

 

3. Ljósavél sem sér skálanum fyrir rafmagni er staðsett í gámnumsem er inni í skemmubyggingunni skammt frá skálanum.  Lykill að honum hangir vinstra megin innan við innganginn í skálann og gengur að hurð sem er á hlið skemmunnar.  Þegar inn er komið er hurð á gámnum til vinstri strax þegar inn er komið og er hún inn í vélarrýmið.  ATH!   Hafið með ykkur vasaljós til að lýsa inni í gámnum.  Leiðbeiningar um notkun ljósavélar fylgja í öðru viðhengi og eru einnig í gám og í skálanum.

 DSCF7056 400

 

4.    Vatn helst á húsinu svo lengi sem ljósavél gengur og rafmagn er á.  Mjög kostnaðarsamt er að keyra vélina og eru það tilmæli skálanefndar að hún sé ekki notuð í óhófi, t.d. sé slökkt á henni á næturna.  Fylla má fötur af vatni til að sturta niður úr klósettum ef ljósavél er í hvíld.  Einnig má nota kamar sem staðsettur er í útbyggingunni gegnt skálanum.

 

Skálinn yfirgefinn

  1. Gætið þess að allir gluggar séu lokaðir og kræktir.  Þrífa þarf skálann og ganga frá, gangið frá dýnum þannig að undir þær lofti svo ekki myndist fúkkalykt.  Skrúfið fyrir gashylki sem tengist eldahellum og gasofnum.  Slökkvið á kamínu samkvæmt leiðbeiningum og lokið fyrir olíu á leiðslunni vinstra megin við kamínuna.

 

5.            Slökkvið á ljósavél samkvæmt leiðbeiningum þar af lútandi.

6.            Þegar slokknar á ljósavél tæmist vatnið af húsinu.  Aðgætið hvort klósett hafi tæmt sig EFTIR að slökkt hefur verið á ljósavél.  Ef þau tæmast ekki þarf að setja í þau frostlög sem staðsettur er í skáp á klósetti. (að vetri til)

7.            Hafið samband við einhvern af skálanefndarmönnum þegar þið yfirgefið staðinn og látið loka skálanum.  Skálagjöld skal greiða inn á reikning skálanefndar  0133-26-024444 kt. 701089-1549  og er sá sem pantar skálann ábyrgur fyrir greiðslu skálagjalda fyrir allan hópinn og verður stofuð krafa í netbanka á viðkomandi hafi skálagjöld ekki verið greidd innan viku frá gistingu.

Göngum vel um skálann og skiljum við hann eins og við viljum koma að honum.

 

Skálanefnd vonar að þið hafið notið dvalarinnar.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.