Áður auglýst opið hús í Setrinu verður haldið laugardaginn tíunda september. Gott tækifæri til að fá sér bíltúr og skoða breytingarnar á skálanum, skálanefndarmenn kynna breytingar á ljósavélarmálum skálans ásamt því að sýna afrakstur vinnu sumarsins. Boðið verður upp á kaffi og vöfflur ásamt því að þeir félagsmenn sem mæta gista frítt á laugardeginum. Stofnaður verður spjallþráður þar sem þeir sem hyggjast mæta eru beðnir um að tilkynna komu sína og skrá fjölda gesta eða hringja í undirritaðann í síma 844-5010 eða 893-6560. Hittumst og eigum góða stund saman, grillið góða verður á sínum stað til afnota fyrir alla sem mæta.
F.h. skálanefndar. Logi Már.