Laugardaginn 19. mars stóð Litlanefnd fyrir ratleik annað árið í röð. Í þetta sinn var nægur snjór á suðvesturhorninu og voru bílarnir sendir í nágrenni höfuðborgarinnar, um Sandskeið, í Bláfjöll og þaðan á Reykjanes. Farið var með Kleifarvatni inn á Suðurstrandarveg og síðan að Vigdísarvöllum þar sem lokapunktur ratleiksins var. Frá þeim punkti fór hópurinn saman eftir Djúpavatnsleið að Sveifluhálsi þar sem ferðinni var slitið. Veitt voru verðlaun fyrir best útfærðu rötun og var allur hópurinn sem fékk verðlaun. Sá hópur sem sigraði var hópur C, undir leiðsögn Sverris Kr. Bjarnasonar. Einnig voru veitt verðlaun fyrir skemmtilegustu ljósmyndina, en þau verðlaun fékk Heiðar Freyr Steinunnarson. Verðlaunin voru í boði Arctic Trucks.
Nokkur myndaalbúm úr ratleik:
Þórarinn Guðjónsson
Heiðar Freyr Steinunnarson
Bragi Þór Jónsson
Ólafur Magnússon
Þór Ingi Árdal