Á stjórnarfundi landsamtakanna Ferðafrelsi í kvöld 20. desember var ákveðið að vera með opinn fund mánudaginn 27. desember kl. 20:00 í húsnæði Ferðaklúbbsins 4×4 um drög að breytingum á náttúruverndarlögum. Skila þarf athugasemdum um drögin í síðasta lagi 7. janúar til umhverfisráðherra. Allir áhugasamir aðilar um þetta málefni eru velkomnir á fundinn. Fundarstjóri verður Guðmundur G. Kristinsson. Hér má sjá samantekt um akstur og leiðir (skoða)