Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
21.11.2013 at 11:20 #439323
Ég var að reyna að búa til nýtt albúm í myndasafninu en fæ bara 404 villu.
Var ekki örugglega klausa í samningnum um vefsíðuna að hún ætti ekki að virka verr en sú gamla…
Bjarni G.
20.11.2013 at 10:27 #438775Nei, þetta er bara risastór Prius
400 hestafla Prius já… það ætti að duga flestum jeppum.
Bjarni G.
19.11.2013 at 15:58 #438743Ég sakna mjög „Preview“ þegar maður skrifar pósta. Gott að sjá hvernig þeir munu líta út áður en maður ýtir á „Senda inn“. Sérstaklega ef maður er að setja inn hlekk á eitthvað eða mynd og þarf að nota þessi dásamlegu html tög.
Svo mætti líka gera það einfalt að fella inn YouTube myndbönd.
Annars er þetta allt að koma.
Bjarni G.
19.11.2013 at 13:15 #43873105.11.2013 at 10:56 #437181Ein athugasemd í viðbót. Verður ekki örugglega hægt að fella inn myndir í textann? Ég gat það hér að ofan með því að fara í „Edit“ og bæta við slóðinni á skrána sem ég setti í „Attachments“ í fyrstu umferð, þetta þyrfti að vera hægt að gera í einu skrefi.
Bjarni G.
05.11.2013 at 10:51 #437179Ég smellti á linkinn og var þá boðið að skrá mig „út úr Ferðaklúbburinn 4×4“. Það er ansi misvísandi og rangur texti
Bjarni G.
Viðhengi:
05.11.2013 at 08:33 #437175Hvar finnur maður möguleikann á að skrá sig út? Nauðsynlegt að geta það ef maður skráir sig inn á annarra manna tölvu.
Bjarni G.
31.10.2013 at 10:14 #379494@jong wrote:
Þarna þarf að taka tillit til þess að rafmótorar eru að nýta meira en 90% af ofkunni, en bensínmótorar bara um 40% (minnir mig) Að auki eru rafmótorar hlutfallslega miklu léttari en bensínmótorar sem einnig vegur upp á móti.
Þannig að 300kg af rafhlöðum jafngilda 5 lítra tank…
Eina vitið er að smíða „hybrid“ trukk, þ.e.a.s. rafmótor á hvert hjól og „litla“ lífdíselrafstöð í húddið. Fínt að hafa líka rafhlöðu sem myndi duga í kannski eina góða brekku
Bjarni G.
30.10.2013 at 19:45 #379489Hmm, ca. 35 MJ í lítra af bensíni, Nissan Leaf er með 300kg af rafhlöðum sem geyma 86 MJ. Semsagt 300kg rafhlaða geymir svipaða orku og er í rúmum tveimur lítrum af bensíni…
Ég held að við getum allavega gleymt því að rafmagnsvæða jeppaflotann nema rafhlöður taki stökkbreytingum.
Bjarni G. (að hugsa upphátt)
11.10.2013 at 19:16 #379380Bara smella smá J-B á þetta
Bjarni G.
13.09.2013 at 09:07 #378884Snorri, það er netfang í efstu færslu á þessum þræði og listi yfir hvaða upplýsingar við setjum á spjaldið við bílinn. Sendu mér þær og ég útbý spjaldið.
Bjarni G.
12.09.2013 at 10:36 #378881Ég er trúlega kominn með upplýsingar um ca. helming af bílunum, er hættur að telja en pósthólfið er rauðglóandi
Annað: Við erum búnir að hringja/senda tölvupóst/sms/hugskeyti til flestra bíleigenda. Ef einhver hefur ekki heyrt frá okkur og fengið áætlaðan mætingartíma þá erum við að raða inn í Fífuna frá ca. kl. 16 í dag og fram á nótt. Því fyrr sem þið komið, því betra. Nefndir og deildir raðast með útveggjum og gott að fá þá bíla í fyrra fallinu.
Bílar sem eru á útisvæði þurfa að koma í hádeginu á morgun, föstudag.
Bjarni G.
11.09.2013 at 08:50 #378876Ég er búinn að fá sendar upplýsingar um nærri 40 bíla þannig að það vantar bara tæpa 100
Endilega haldið áfram að senda á mig.Bjarni G.
09.09.2013 at 13:26 #226504Nú nálgast afmælissýningin óðfluga. Við ætlum að raða bílum inn í Fífuna á fimmtudeginum fyrir opnun (12. sept). Nánari tímasetning mun trúlega fæðast í kvöld og verður þá haft samband við bíleigendur í kjölfarið.
Mikilvægt er að mæta á þeim tíma sem fáið uppgefinn til að forðast öngþveiti.Bílarnir eru brunatryggðir á meðan þeir eru inni í Fífunni. Tryggingafélagið setur þá kröfu að bíllinn sé ólæstur og lykill í kveikjulás utan opnunartíma. Á opnunartíma sýningar þarf einhver í nágrenni bílsins að vera með lykil að honum svo hægt sé að forða honum út komi upp eldur. Best er að eigandi eða einhver honum tengdur sé við bílinn á meðan sýningin er opin.
Bíleigendur munu ekki þurfa að deyja úr hungri meðan á sýningu stendur. Veitingasalan mun sjá um að fóðra þá.
Bílavalsnefnd þarf að fá upplýsingar um útbúnað bílana svo hægt sé að prenta út upplýsingaspjald fyrir bílinn. Gott væri að fá þessar upplýsingar annaðhvort í tölvupósti á bjarni@heimsgir.org eða útprentað/handskrifað um leið og þið komið með bílinn. Allavega ágætt ef þið gætuð tekið þessar upplýsingar saman fyrirfram til að flýta fyrir gerð upplýsingaspjalda.
Það sem er gott að komi fram:
nafn eiganda
félagsnúmer
bílnúmer
tegund
árgerð
dekkjastærð
felgur (breidd, kantlæsing)
vél
skipting
millikassar
hásingar
læsingar
drifhlutföll
fjarskiptatæki
staðsetningartæki
tankapláss
upphækkun
fjöðrun
hvenær breytt
hver breytti bílnum
annað sem ykkur finnst skipta máli í sambandi við bílinn.Þið getið klippt og klístrað þessum lista inn í t.d. Notepad og bætt við ykkar upplýsingum.
Ef þið hafið einhverjar spurningar er upplagt að pósta þeim í þennan þráð.
fh. Bílavalsnefndar
Bjarni G.
04.09.2013 at 09:56 #378642Verður efri stífan skrúfuð saman? Ég held að hún liðist fljótt í sundur í keyrslu. Álagsstefnan á henni er stanslaust að breytast fram/aftur og hægri/vinstri. Svoleiðis losar upp á öllum boltum á mettíma. Það þarf annaðhvort að sjóða hana eða útbúa stýringar þar sem hún er boltuð saman. Kannski eru þið búnir að sjá við því öllu.
Bjarni G.
29.08.2013 at 20:54 #226459Bílavalsnefndin er búin að sitja sveitt og með símaeyrun eldrauð og þrem númerum of stór við að finna bíla á afmælissýninguna. Núna erum við komnir með um 100 bíla staðfesta þannig að það er pláss fyrir nokkra í viðbót. Ef þið eigið hrikalega flottan jeppa og við erum ekki búnir að hafa samband við ykkur þá er tækifærið núna að benda okkur á hann. Eins ef þið vitið um smíðaverkefni sem hefur ekki verið áberandi á vefnum þá væri gaman að frétta af því. Þið getið annað hvort sett inn upplýsingar hér á þráðinn eða sent okkur línu:
Bjarni: bjarni@heimsgir.org
Kristján: skuri@simnet.is
Teddi: theodor.kristjansson1304@gmail.comHér eru smá tölulegar upplýsingar um bílana sem við höfum staðfesta. Okkur langar mest að fá bíla af „jaðartegundum“, trúlega komið nóg af Ford, Jeep og Toyota… Eins er þarna gróf dreifing á dekkjastærðum þannig að ef þið vitið t.d. um Suzuki á stærri dekkjum en 44″ þá vantar svoleiðis
[attachment=0:2e49qsfu]jepp.jpeg[/attachment:2e49qsfu]
Það þarf að smella á töfluna til að fá hana í betri gæðum.fh. Bílavalsnefndar
Bjarni G.
27.08.2013 at 20:37 #378636@Gunnar Ingi Arnarson wrote:
ég er einmitt búinn að vera í góðu sambandi við Krissa og Tedda um það hvort hann náist á hjólin
Já ég vissi að þeir voru búnir að tala við þig, vildi bara pota í þig opinberlega 😉 Það getur unnist ótrúlega mikið á fáum dögum ef maður er undir pressu, svona sýning er fín pressa ef þú ákveður að vera með
Bjarni G.
27.08.2013 at 10:26 #378633Er langt í að hann fari að standa í hjólin? Það væri snilld að fá þennan á afmælissýninguna núna í haust sem verkefni í smíðum.
Bjarni G.
16.08.2013 at 09:41 #378623@jong wrote:
Af hverju ferðu ekki bara alla leið og breikkar boddýið um 25-30cm ?
Þetta er alveg borðleggjandi, bætir við 2-3 rimlum í grillið, einni rúðuþurrku og málið er dautt
Bjarni G.
19.04.2013 at 23:17 #765509Ég held að stjórnin ætti að skipa Dramanefnd næst, virðist vera nóg af fólki til að manna hana 😉
Bjarni G.
-
AuthorReplies