Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
30.12.2008 at 21:13 #635766
Ég myndi helst halda að sé enn loft einhvers staðar á bremsukerfinu hjá þér – þrátt fyrir allt.
Það er ótrúlegt hvað ein lítil loftbóla getur gert.Ágúst
29.12.2008 at 15:02 #635712Ég hringdi í Umferðarstofu og fékk að vita þar að reglugerð sem eigi að gilda um þetta sé enn ekki frágengin. Einhver útgáfa hennar er til á vef Samgönguráðuneytisins, en verið að hræra í öllu og væntanlega verður henni kippt úr gildi með nýju reglugerðinni, einhvern tíma fyrir áramótin.
Nennir einhver að fletta upp í Stjórnartíðindum.is ca korter fyrir tólf á gamlárskvöld ?
Einnig var mér tjáð að þar sem lögin hafi tekið gildi 1. október sl. og út frá einhverri hundalógikk sem ég skil ekki komust hinir lögfróðu að þeirri niðurstöðu að bílar sem vanrækt var að færa til skoðunar á fyrri mánuðum ársins sleppi, a.m.k. þetta sinn.Ágúst
29.12.2008 at 14:04 #203426Þessa dagana auglýsir Umferðarstofa að um áramót verði lagt svokallað „Vanrækslugjald“ á óskoðuð ökutæki og vísar til skýringa á vefsíðu sinni, us.is.
Eftir því sem þar stendur á einungis að pikka út bíla með núll í síðasta staf og sekta eigendur þeirra ef þeir hafa ekki látið skoða bílinn á „réttum tíma“.
Mér finnst skrítið að þeir sem eiga bíla með lægri númerum og hafa vanrækt enn lengur að láta skoða bíla sína sleppi. Einnig vakna spurningar um það hvernig “ réttur tími“ sé skilgreindur og hvernig þetta virkar fyrir þá sem mættu en fengu grænan miða og e.t.v. frest, en eru ekki búnir að ljúka málinu.
Vafalaust er tilgangurinn sá að fækka óskoðuðum bílum í umferðinni, en eru svona grautarlegar reglur til þess fallnar ?Ágúst
28.12.2008 at 21:13 #635660Hvernig hafa þessar 2,8 Pajeróvélar verið að reynast ? Bilanagjörn, kraftlaus, eyðslufrek eða e-ð annað ?
Kv.
Ágúst
23.12.2008 at 22:45 #203406Nýlega þurfti ég að fá lagfærðan láscylinder í bílstjórahurðinni í Gallopernum mínum og leitaði til Lásaþjónustunnar Grensásvegi 16.
Í leiðinni datt mér í hug að spyrja hvort þeir gætu útbúið fyrir mig aukalykil, en það er tölvukubbur í þessum lyklum sem þarf að forrita við bíltölvuna til að hann virki.
Þetta reyndist ekki vera neitt mál, cylinderinn varð nánast eins og nýr og það sem betra var að í stað þess að sendast milli umboðs og lyklasmiða til að kaupa, skera og forrita nýja lykilinn þá fékkst þetta allt gert á einum stað. Best af öllu var samt að í stað þess að borga umboðinu milli 15 og 20 þúsund fyrir nýja lykilinn þá fékk ég cylinderinn lagfærðan, nýjan lykil smíðaðan og forritaðan ásamt tölvukubbslausum aukalykli sem virkar bara á hurðirnar – allt fyrir tæpar 8000 krónur.Mæli með þessum – og svo er hægt að kíkja á Harley hjólin í leiðinni, það er í hinum enda á sama húsi.
Jólakveðjur
Ágúst
26.11.2008 at 22:12 #633550Er það þessi margnefndi grái fiðringur sem maður fær við að sjá myndirnar ?
Wolf
24.11.2008 at 23:20 #633438Án þess að vita mikið um Toyotur, myndi ég byrja á að tékka hvort jarðvírar eða jarðsamband á mælaborðinu hafi gefið sig. Svona draugangur getur komið fram við það að rafstraumur sem með réttu ætti að fara um jarðvírana fer að leita annarra leiða, t.d. gegn um perur eða relayspólur.
Ágúst
20.11.2008 at 16:55 #203239Þekkir nokkur til efnis sem heitir Stabilant 22.
Þetta á að vera algjört töfraefni á bílarafhluti, bæta rafleiðni þar sem á að leiða og bæta einangrun þar sem á að einangra.
Meir að segja mæla sumir bílaframleiðendur eindregið með að úða þessu á raftengi fyrir vélartölvur o.s.frv.
Samkvæmt vefsíðu framleiðandans (stabilant.com) er þetta að sjálfsögðu eina rétta efnið, en nokkuð dýrt.Veit nokkur deili á þessu, hvort það virkar, hvar það fæst o.s.frv.
Kv.
Ágúst
11.11.2008 at 20:03 #632558Hjá mér lak svolítil olía úr bínunni þannig að ég mæli með að þú hafir sæmilega tusku tiltæka og skellir undir stútinn sem skilar olíunni út.
Alltaf gaman þegar Hekla kemur manni þægilega á óvart. Mætti gjarna vera oftar.
Ágúst
11.11.2008 at 12:20 #632552Ég reyndi að taka bínuna af án þess að losa greinarnar, en gafst upp við það. Sennilega er það þó hægt með réttum verkfærum, þ.e. hæfilega bognum lyklum, en það er fjári þröngt og önugt að komast að þessu.
Ýluhljóðið kom hjá mér eftir að ég hafði notað pústgrein sem var með smá skarði á túrbínuflangsinum. Ég vissi af því, en gaf mér ekki tíma til að láta plana hann upp á nýtt. Reyndi að redda málunum með því að setja hitaþolið silikon á pakkninguna, en það dugði aðeins í einn eða tvo daga og þá byrjaði að ýla við gjöf og krafturinn (bústið) minnkaði um leið. Ég sá fyrir mér að blásturinn meðfram pakkningunni virkaði líkt og væri blásið í ýlustrá.Kv.
Ágúst
10.11.2008 at 22:39 #632548Þú tekur soggreinina fyrst af, það eru 2 pinnboltar við hvern strokk, alls 8.
Þá er sama sagan með pústgreinina, en það er hitahlíf, olíurör og olíuslanga frá túrbínunni, sem þarf að aftengja og að sjálfsögðu púströrið út frá túrbínunni. Gott topplyklasett dugar í þetta.
Þar með er pústgreinin ásamt bínunni komin af og auðvelt að losa bínuna frá greininni. 3 boltar.Milli túrbínu og greinar er stálpakkning og ef flangsarnir á grein/bínu eru ekki vel plan þá getur pakkningin farið að víbra eins og ýlustrá og eyðilagst. Einnig hef ég lent í því að sprungur hafa myndast í sjálfa greinina. Þær litu út eins og hárfínar línur, en þegar ég sprautaði WD40 inn í greinina þá smitaði það í gegn svo að augljóslega náði sprungan í gegn.
Sem sagt ekkert stórmál.
Ágúst
25.10.2008 at 22:25 #631688Þar sem margir félagsmenn hafa sýnt áhuga á að fylgjast með gömlu jeppunum sínum eða almennt um annarra manna bíla þá sting ég upp á því að stjórn F4x4 kanni möguleikana á því að fá opnaðan aðgang fyrir félagsmenn til uppflettingar og/eða leitar í ökutækjaskrá.
Ágúst
18.09.2008 at 20:40 #629572Jóhann:
Fyrst þú ert sjálfur að prófa þetta, gætirðu verið svo vænn að lýsa búnaðinum sem þú ert með og gefa ítarlegri tæknilegar upplýsingar, gjarna með myndum eða linkum á lýsingu á netinu.
Ef bíllinn er t.d. í hægagangi og þú kveikir og slekkur á þessu, kemur það fram í breyttum snúningshraða ?Ágúst
18.09.2008 at 12:15 #202930Talsvert lesmál er komið á vefinn um það að mata bensín- og díselvélar með vetnisgasi sem framleiða má með rafgreiningu á vatni í bílnum.
Sumir seljendur skrifa hástemmdar lýsingar á fullkomnari bruna eldsneytisins við vetnisíblöndunina o.s.frv. og lofa allt að helmings sparnaði á eldsneyti, sem hljómar í mínum eyrum sem „too good to be true“.
Hefur nokkur ykkar prófað svona eða fengið tryggar upplýsingar / reynslusögur um það hvort þetta sé að virka, eða bara enn eitt bullið til að féfletta auðtrúa bílaeigendur ?Kv.
Ágúst
01.09.2008 at 10:25 #628658Ég fór þetta síðustu helgi. Síðasti spölurinn áður en við komum að Nýjadal var býsna leiðinlegur, en langt frá því að vera ókeyrandi.
Vaðið við Nýjadalsskálann var ekkert mál fyrir óbreyttan Galloper, en ég myndi ekki reyna við það á fólksbíl.
Fórum síðan Gæsavatnaleið upp að Öskju og allt gekk vel þótt Grjóthálsinn væri á köflum ekinn á gönguhraða. Hádegisflæðurnar reyndust enginn trafali, enda vorum við þar skömmu eftir hádegið og vatnsmagn ekki orðið verulegt.Ágúst
23.08.2008 at 14:27 #627832Tékkaðu líka á verðinu hjá Ingvari Helgasyni. Ég er viss um að eftir þá upplifun verður konan enn glaðari.
Leyfðu okkur hinum að fylgjast með hvernig þetta virkar.Ágúst
08.08.2008 at 22:23 #202757Hefur einhver ykkar upplýsingar um það hvort hægt sé að nota metangasið frá Sorpu sem fæst nú á nokkrum bensínstöðvum sem eldsneyti á díselvélar, þ.e. sem viðbót við díselolíuna. Þá er ég að hugsa um að mata gasið með innöndunarloftinu inn á soggrein, en kveikingin væri gerð með díselinnspítingu eins og fyrr (lágmarksskammti). Svona kerfi hefur þann kost að ef gastankurinn tæmist þá keyrir maður bara á díselolíunni eins og fyrr.
Það eru ýmis sett í boði sem nota própangas á þennan hátt til að mata inn á díselvélar og eiga að gefa aukinn kraft, minni mengun og síðast en ekki síst lægri eldsneytiskostnað. Því miður er própangasið óheyrilega dýrt hér á landi, en ef ég hef tekið rétt eftir þá er metangasið frá Sorpu (Biogas?) tiltölulega ódýrt.
Þess vegna datt mér í hug að kanna hvort hugsanlega mætti nota metangasið á sama hátt og propangasið, og með svipuðum eða sama stjórnbúnaði.
Er einhver ykkar búinn að pæla í þessu og finna svörin við því hvort þetta virkar og hvaða stýribúnað og tanka er hentugt að nota ?Ef þetta er tæknilega álitlegt þá á ég gamlan Pajeró með 2,5 lítra vélinni, sem gæti verið hentugt fórnarlamb fyrir svona tilraun.
Ég prófaði eitt sinn að láta hann anda að sér gasi úr bláum útilegugasbrúsa og hægagangurinn hækkaði talsvert við það. Ef metangasið hefur ekki einhverja óheppilega eiginleika (cetan- og oktantala) þá er aldrei að vita nema þetta virki.Gaskveðjur
Ágúst
07.08.2008 at 09:44 #626954Almennt er ekki ráðlegt að setja orkufreka rafhluti inn í lokuð rými s.s. hanskahólf. Skortur á kælingu þetur valdið skemmdum á hlutnum og í versta falli íkveikju.
Finndu heldur einhvern svalan, þurran stað undir mælaborði eða hugsanlega frammi í vélarrými þar sem ekki er hætta á miklum óhreinindum.
Ef þetta er stór áriðill (enska inverter), t.d. 300 Wött eða þar yfir þá þarf að huga að sverleika og lengd á 12 Volta lögninni því að straumstyrkur í henni er a.m.k. 20 falt meiri en 220 Volta megin.Ágúst
23.07.2008 at 12:43 #625146Til að ljúka þessum þræði þá upplýsist að Transporterinn er farinn að ganga eðlilegan hægagang.
Með því að stilla endastoppskrúfu á inngjafarspeldi þannig að það lokaðist betur þá fór vélin að hegða sér eðlilega. Ég fjarlægði líka demparapung sem hægir á því hversu hratt inngjafarspeldið lokast þegar gjöfinni er sleppt.
Auk þess hafði (að óþörfu ?) verið skipt um fokdýra rafmagnsstýrða ventilinn sem hleypir lofti fram hjá inngjafarspeldinu og líka hafði vakúumslangan sem liggur inn á vélartölvuna verið hreinsuð.
Ég hef þá tilgátu að við bensínleysið hafi vélin hökt og sprengt inn í soggrein þannig að inngjafarspeldið bognaði og hætti að loka almennilega þótt stöðuskynjarinn segði vélartölvunni að væri í tómagangsstöðu. Þetta hafi síðan ruglað vélartölvuna og eitt leitt af öðru.Fyrri tilgátur um falskt loft og leka inn á soggrein útilokaði ég með því að losa stóru loftslönguna af inngjafarhúsinu og bregða þéttu loki fyrir stútinn. Við þetta drap vélin strax á sér og sog í greininni var í einhverjar sekúndur að hverfa. Ath. Lekaprófunin var gerð með rafvíra í framhjáhleypiventilinn aftengda.
Ég held mig við þessa teoríu þar til annað kemur í ljós.
Þakka þeim sem hafa lagt inn góð ráð.
Ágúst
23.07.2008 at 12:05 #626370Virkar kerfið ekki þannig:
a: Ef heimsmarkaðsverð á olíu hækkar – þá hækka olíufélögin strax.
b: Ef heimsmarkaðsverðið lækkar þá er það örugglega aðeins tímabundið og beðið með verðbreytingar þar til kúrfan fer aftur að mjakast upp á við.
c: Ef gengi dollarans lækkar þá hlýtur það að leiða til hækkunar á heimsmarkaðsverði olíu og sjálfsagt að hækka sopann aðeins.
d: Ef gengi dollarans hækkar þá þýðir það fleiri íslenskar krónur fyrir hvern bensínlítra, sem sagt líka hækkun.Ég bíð eftir þeim degi sem olíufélögin fara að bjóða frían skammt af Prozac með hverri áfyllingu. Fram að því ætla ég að halda áfram að vera bullandi pirraður á kerfinu.
Ágúst
-
AuthorReplies