Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
23.10.2009 at 14:43 #207643
Veit einhver hversu mörg kílógrömm meðal díselrokkur vegur ?
Þá á ég við japanska 4 cyl. vél á bilinu 2,5 til 3 lítra.Ágúst
14.10.2009 at 22:05 #207381Nýlega fór að bera á því á Gallopernum mínum að þegar tankurinn er fullur smitar olía út einhvers staðar ofarlega, sennilega þar sem slöngurnar fram í vél tengjast. Mér til mikillar gremju hafa Kóreumennirnir sparað sér að setja aðkomulúgu í gólfið eins og er í gamla Pajerónum svo að það er eiginlega engin leið að skoða þetta nema að taka tankinn niður.
Áður en ég fer að skrúfa tankinn úr eða klippa gat á gólfið langar mig til að vita hvort einhverjir Galloper eigendur hafi lent í svipuðum málum, hvar lekinn hafi verið og hvernig viðgerðin hafi verið framkvæmd.Ágúst
01.09.2009 at 16:28 #206191Síðan ég eignaðist minn fyrsta bíl hef ég margsinnis heimsótt Vökuportið til að leita að varahlutum þegar eitthvað hefur bilað hjá mér. Úrvalið þar var gott og verðlagningin sanngjörn, einkum ef maður sá sjálfur um að sækja hlutinn úr bílflaki úti í porti. Svo veitti þetta manni oft óborganlegar upplýsingar um það hvernig best væri að fjarlægja bilaða hlutinn úr eigin bíl án þess að valda óþarfa skemmdum.
Nú eru breyttir tímar. Vaka hefur flutt sig á nýjan stað og breytt rekstrinum þannig að búið er að loka bílaportinu fyrir almenningi. Ef mann vanhagar um einhvern hlut, sem ekki er til inni í hillu hjá þeim þarf að senda starfsmann með verkfæri út í port og bíða meðan hann rífur hlutinn úr einhverri druslunni þar. Ég fæ ekki betur séð en að þetta fyrirkomulag sé dauðadæmt því að bæði hleypir þetta kostnaði upp til muna og svo munu örugglega koma upp mýmörg tilfelli þar sem starfsmaðurinn fer út og rífur og rífur, en kemur svo pungsveittur inn með einhvern allt annan hlut en kaupandinn vildi fá. Hver á þá að borga starfsmanninum kaup fyrir vinnu sína? Varla gerir kúnninn það.
Ég fæ ekki betur séð en að Vaka sé með þessu búin að loka sinni varahlutaverslun, en væntanlega opnast þá um leið viðskiptatækifæri fyrir aðra, sem vilja gera út á þennan markað.
Ég auglýsi því eftir reynslu 4X4 manna af öðrum partasölum á SV-horninu, hvort nokkur þeirra sé sambærileg við gamla Vökuportið.
Blessuð sé minning þess.Kveðjur
Ágúst
22.07.2009 at 09:57 #205357Ég fékk þá einstöku hugmynd að koma mér upp þurrkskáp fyrir silung og datt í hug að gamall lítill ísskápur gæti verið hentugt hráefni til að smíða úr. Þá vill svo til að enginn slíkur er boðinn gefins og þeir skápar sem skilað er inn til Sorpu/Efnamóttökunnar eru eyðilagðir og reyndar er víst bannað að afhenda þá út úr móttökukerfinu þar.
Ef einhver á Reykjavíkursvæðinu lumar á gömlum litlum ísskáp, sem hann vill losna við, helst gefins, þá vil ég gjarna taka að mér að fjarlægja hann.
Skápurinn þarf að vera innan við 100 cm hár, þokkalega hreinn og heillegur, þ.e.a.s. með hurð sem lokast vel, en rafmagns- og kælidraslið má vera bilað því ég ætla hvort eð er að fjarlægja það allt.Ágúst – sími 6910078 / agustus@internet.is
07.07.2009 at 21:37 #205108Hér er linkur á lýsingu á byltingarkenndri brunavél.
Miklu einfaldari en bulluvélar eða Wankel og fislétt, yfir 1 hestafl pr. pund.
http://www.radmaxtech.com/slides/REGI-RadMax-Slides.pdfVonandi verður ekki langt í að fjöldaframleiðsla á henni hefjist.
Ágúst
22.06.2009 at 10:35 #204822Dóttir mín á gamlan VW transporter húsbíl með 2 L bensínvélinni. Það er alllöng saga að segja frá dyntum og uppátækjum þessarar vélar, en þeir hjá Heklu eru búnir að líta á hana og gátu lítið gert. Síðastliðið ár hefur vélin þó gengið þolanlega þar til í gær en þá var hún alveg hætt að skila nokkrum krafti, en snérist þó með skotum og smellum, en að lokum endaði með því að dóttirin gafst upp og hringdi í pabbann eftir hjálp. Eftir að við höfðum dregið bílinn heim til hennar datt mér í hug að prófa að starta eina ferð enn og þá gekk hún alveg eðlilega rétt eins og ekkert hefði nokkurn tíma komið fyrir.
Þar sem Hekla hefur ekki fundið út úr þessu þá er sennilega fátt um úrræði, en mér datt í hug að auglýsa hér eftir því hvort einhver kunni góð ráð eða viti um einhverja reynslubolta sem eru líklegir til að kunna að temja svona gallagripi.
Til upplýsinga þá er vélin með tölvustýrðri innspítingu og kveikju, en engum O2 skynjara. Vélartölvan er Digifant 044-906-022 E.
Kv.
Ágúst (símar 5670078 og 6910078)
22.06.2009 at 09:54 #649820Fyrir þá sem ekki þekkja kallinn með slaufuna, þá tel ég nokkuð víst að sé átt við Eyþór í búðinni Íhlutir, sem er í Skipholtinu. Svo er önnur búð skammt frá sem heitir Miðbæjarradíó. Kallinn þar heitir Einar og gengur venjulega ekki með slaufu. Þetta eru helstu dótabúðirnar fyrir rafmagnsgrúskara í Reykjavík. Ef hluturinn fæst ekki hjá öðrum hvorum þeirra þá er hann annað hvort gjörsamlega ófáanlegur eða ekki búið að finna hann upp.
Kv.
Ágúst
20.06.2009 at 21:48 #204792Sælir bílamixarar. Ég rakst á frétt um nýja díselvél frá Citroen, 3 lítra vél sem skilar 237 hp og 459 NM yfir allt hraðasviðið. Auk þess notar hún aðeins 7,4 l/100 km í C4 og C5 bílunum.
Er þetta ekki draumavélin sem við erum búnir að bíða eftir í öll þessi ár ?
Veit einhver hvað þarf til að fá að kaupa svona vél frá verksmiðjunum eina sér og staka án þess að fylgi heill Citroen með ?
Hvernig væri að einhver hópur jeppamanna á Íslandi reyndi að ná einhverjum samningum við Frakkana um að kaupa eina gámfylli af svona vélum til að mixa í jeppana okkar ? Mér finnst líklegt að Frakkarnir gætu séð auglýsingagildið í slíku dæmi og nýtt sér það í auglýsingaskyni svo að verði gagnkvæmur hagur.
Dæmið lítur þá þannig út:a) Við kaupum af þeim einn gám af vélum til að setja í jeppana okkar.
b) Þeir fá að fylgjast með og nýta niðurstöðurnar í auglýsingaskyni.
c) Við fáum reynslu, hönnum ísetningarkitt og seljum öðrum jeppanördum.Ef vélarnar eru eins góðar og af er látið þá finnst mér þetta alveg meiri háttar dæmi.
Ég væri tilbúinn að henda slatta af þúsundköllum og talsverðri vinnu í svona dæmi.
Hér er linkur á frásögn af vélinni (ekki með http-tölvumálinu) http://www.citroen-presse.com/NR/rdonlyres/B3F8E617-268B-43BB-90A9-676B92C58AFA/179889/C5C6V6june.pdf
Ágúst
20.06.2009 at 19:53 #650148Ég keypti fyrir mörgum árum toppasett sem heita Koken í verkfærabúð í Ármúlanum, minnir að hafi heitið Ingþór.
Þetta er sitt hvort settið, 3/8 og 1/2 tommu, alveg ódrepandi verkfæri, sér ekki á þeim eftir slíka misnotkun að gæti varðað við refsilög.
Hef ekki hugmynd um hvort þau fást nokkurs staðar í dag, en mín sett eru ekki til sölu fyrir neitt verð.Ágúst
20.06.2009 at 19:42 #649972Þetta er áhugavert. Ég á slatta af sjálfskiptiolíu og nú vantar bara acetónið til að búa til töfraefnið.
Læt vita ef einhverjar áhugaverðar niðurstöður koma fram.Ágúst
15.06.2009 at 08:32 #649580Prófaðu líka Landvélar.
Ágúst
03.06.2009 at 14:19 #648294Verður ekki framtíðarlausnin að tengja slöngu við bílsætin og hafa meðferðis nægar birgðir af rúgbrauði og öðru orkuríku fæði.
Þegar erfiðar brekkur nálgast má kveikja á sætishiturum til að peppa aðeins gasframleiðsluna.Kv.
Wolf
30.05.2009 at 23:57 #204448Mér leikur hugur á að vita hvort þið vitið um tilraunir með að nota Sorpugas eða svipaðar gastegundir til að knýja díselfákana.
Mér finnst hugmyndin um að láta óbreytta díselvél draga inn á sig hæfilega sterka blöndu af eldfimu gasi og nota það sem orkugjafa á móti díselolíunni vera mjög spennandi.
Díselverkið hefur þá fyrst og fremst það hlutverk að kveikja í gasblöndunni, en ef gasið klárast þá er allt til taks að halda ferðinni áfram á díselolíunni einni saman.Því miður hef ég ekki fundið upplýsingar eða frásagnir af svona breytingar á dæmigerðum jeppavélum, aðaláherslan virðist vera á dráttarbíla og risatrukkana. Hafið þið séð eða lesið um einhverja sem hafa gert svona breytingar á litlum díselvélum með jákvæðum árangri ?
Ágúst
18.05.2009 at 22:18 #647776Ég fylgdi leiðbeiningunum í norður undir Miklubraut og svo tvisvar til hægri. Endaði við hús í Knarrarvogi þar sem enn voru N1 plaköt í gluggum, en þar er nú ekki selt neitt nema vinnufatnaður.
Svo hvíslaði lítill fugl því að mér að í N1 í Hafnarfirði fengist hugsanlega Ultra Gloss. Ég þangað og viti menn þar var til teflónbón sem heitir Ultra Glozz, já með zetum. Ég veit ekki hvort þetta er sama stöffið og hét Ultragloss, en keypti einn bauk til að prófa. Samkvæmt leiðbeiningum um notkun gæti þetta verið það sama.
Keypti líka einn brúsa af Undra tjöruhreinsi. Prófaði hann í kvöld og verð að segja að í kvöldkulinu fannst mér snöggtum skárra að fá þennan úða framan í mig en jarðolíuúðann af öðrum tjöruhreinsiefnum sem ég hef prófað. Svo eru hendurnar svo mjúkar á eftir – og lyktin – alveg eins og maður hafi verið að naga djúsí lambakótelettur. Fæ bara vatn í munninn.Ágúst
18.05.2009 at 22:18 #647774Ég fylgdi leiðbeiningunum í norður undir Miklubraut og svo tvisvar til hægri. Endaði við hús í Knarrarvogi þar sem enn voru N1 plaköt í gluggum, en þar er nú ekki selt neitt nema vinnufatnaður.
Svo hvíslaði lítill fugl því að mér að í N1 í Hafnarfirði fengist hugsanlega Ultra Gloss. Ég þangað og viti menn þar var til teflónbón sem heitir Ultra Glozz, já með zetum. Ég veit ekki hvort þetta er sama stöffið og hét Ultragloss, en keypti einn bauk til að prófa. Samkvæmt leiðbeiningum um notkun gæti þetta verið það sama.
Keypti líka einn brúsa af Undra tjöruhreinsi. Prófaði hann í kvöld og verð að segja að í kvöldkulinu fannst mér snöggtum skárra að fá þennan úða framan í mig en jarðolíuúðann af öðrum tjöruhreinsiefnum sem ég hef prófað. Svo eru hendurnar svo mjúkar á eftir – og lyktin – alveg eins og maður hafi verið að naga djúsí lambakótelettur. Fæ bara vatn í munninn.Ágúst
17.05.2009 at 17:29 #647758Margar fínar ábendingar, takk fyrir.
Líst vel á umhverfisvænan innlendan tjöruhreinsi og svo Ultragloss bón þar á eftir. Mig minnir að ég hafi reynt það einhvern tíma á hvítan bíl sem var með mikið rispað lakk. Flest bón sem ég prófaði skildu eftir ömurlegar dökkar rákir, en þetta bón svínvirkaði. Það fékkst ekki þegar ég ætlaði að kaupa viðbót, en hugsanlega er það nú komið aftur í hillurnar hjá N1.Ágúst
16.05.2009 at 12:53 #204397Nú þegar loksins kom gott veður í höfuðborginni rauk ég til að bóna bílinn. Ekki er árangurinn eftir gamla Mjallarbónið eins og ég helst vildi hafa hann – tóm ský og flekkir. Nú langar mig að vita hvaða efni menn eru að nota til að hreinsa malbiksdrulluna af lakkinu og hvaða hreinsi- og bónefnum menn mæla með. Bíllinn er grá- metallic.
Einnig væri gott að fá ábendingar um góð efni til að þrífa gluggana og plastdraslið.Kveðjur
Ágúst sem ætlar að vera duglegur að bóna.
16.05.2009 at 00:08 #647680Er þetta búðin í Skeifunni ?
04.05.2009 at 09:13 #647100Er þetta ekki alveg upplagt sem keppnisgrein á einhverju sumarmóti jeppakarla eða annarra bílakeppnigaura?
Ég sé fyrir mér braut með nokkrum hliðum sem þarf að bakka bíl með kerru gegn um, tímatöku og svoleiðis. Svo má hafa sérstakan flokk fyrir þá sem segjast kunna að bakka með tvær kerrur.
Þekkir einhver til svona keppna hér heima eða erlendis ?Ágúst
24.04.2009 at 17:01 #646464Hvar fær maður fosfórsýru til ryðeyðingar á einhverju skaplegu verði ?
Þarf ekki einhver leyfisbréf og eiturefnapróf til að versla svoleiðis ?Ágúst
-
AuthorReplies