Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
14.02.2008 at 12:54 #614168
Ég er sammála Smára með þetta. Það eykur gildi mynda að skrá þó ekki sé nema lágmarksupplýsingar með myndum ekki síst þegar frá líður. Þetta er svona eins og að hlusta á fegurðardís í útvarpi. Kv.Olgeir
11.02.2008 at 21:14 #613490Sælir. Ef þessi tilraun hjá Vodafone heppnast eru þeir að jarða Símann. Mig langar að sjá hér á spjallinu hvernig gengur að ná sambandi með GSM símum á Laugasvæðinu á næstunni. Ég hef í nokkur ár verið með útiloftnet á bílnum inná afrétti og það munar verulega yfirleitt. Gallinn er að gamli 5110 síminn minn er nánast orðinn ónýtur. Gamlir nokia 6110,6210 eða 6310 hafa verið notaðir af vörðunum við Landmannahelli með stefnuvirku útineti frá Sigga Harðar . Þessir gömlu símar virðast líka oft ná betur en margir þessir tæknilegu nýju símar .Sem sagt reynslusögur vel þegnar. Kveðja Olgeir
09.02.2008 at 22:43 #613470Sælt veri fólkið. Sumstaðar á hálendinu er dálítið einkennilegt samband. Ég get nefnt að í Gilinu við Landmannahelli er nokkuð gott samband með GSM í öðrum glugganum í borðkróknum en ekkert í hinum glugganum. Besta sambandið á pallinum við nýju húsin er við eystri stigann. Í varðarhúsinu er búið að nota gamlan GSM síma með stefnuvirku útiloftneti í nokkur ár til samskipta og við posann. Þar í kring er ekkert GSM smband þó að maður labbi uppí Hellisfjall en norður við nýrri húsin er hægt að hitta á samband með því að ganga um og fínt samband stutt fyrir ofan borholuna. Þar er stefnan á Búrfell líka lægra í Sauðleysunni ,næstum í Lambaskarði.
Á Veiðivatnasvæðinu er mjög víða gott GSM samband enda sést víða mastrið á Vatnsfelli. Við höfum töluvert leitað að nothæfu GSM sambandi í Landmannalaugum ,en það fannst punktur uppí Laugahrauni um 150 metra frá hesthúsinu en það er of langt frá fyrir posa. Ég fann fyrir mörgum árum nothæfan punkt fyrir Benefon NMT handsíma á göngustígnum að lindunum 36 metra frá pallinum .Ekki náðist þar í haust og varð ég að fara austur að hesthúsi. Þetta stendur nú allt til bóta ef settur verður sendir á Snjóölduna eins og Jón segir hér á undan. Bara svona smá innlegg. Kveðja Olgeir
24.01.2008 at 21:58 #611428Sælir. Mér var sagt í dag að það væri allt á kafi í snjó á Rjúpnavöllum ,en þar uppfrá og á Galtalæk snjóaði helling í gær. Svo er afstætt hvað menn kalla mikinn snjó. Hér niðrí Holtum er að snjóa núna og blynt að keyra.Spáð hvössu og þá verður skafrenningur. Er þetta ekki jákvætt .Kv. Olgeir
16.01.2008 at 11:57 #610184Sælt veri fólkið. Það er rétt að töluverður snjór er hér í utanverðri Rangárvallasýslu en ekki snjóaði neitt upp á Galtalæk og efst á Rangárvöllum. Autt í Fljótshlíðinni.Þetta sýnir hvað erfitt er að spá nákvæmlega um veður. Veit ekki hvort snjóaði á Hálendinu. Kv. Olgeir
10.01.2008 at 14:15 #609820Erlingur Gíslason á Hellu á örugglega slóðina sem hann keyrir á snjóbílnum. Hann fór uppá Heklu í kringum áramótin og segir að hitinn við toppinn hafi aukist mikið frá 1. desember þegar hann fór upp næst á undan. Það eru reyndar fleiri farnir að spá að styttist í gos og varla var hægt að snerta jörðina milli toppanna fyrir hita . Bara svona smá innslag. Kv. Olgeir
04.01.2008 at 21:28 #608920Gleðilegt ár. Sigurjón Rist sagði einu sinni manni til vegar yfir Eyjafjarðará. Hann sagði manninum að ríða framan við ákveðinn stein í ánni og maðurinn gerði það og fór á bullandi sund en það sem Sigurjón vissi ekki var að þetta var sunnlendingur og þar er önnur merking í fram en fyrir norðan. Halldór Laxness sagði einhverntíma að það skifti ekki máli um hvað væri skrifað bara að textinn væri góður. Kveðja Olgeir
27.12.2007 at 21:49 #607112Mér finnst ótrúleg skammsýni að halda því fram að 2+1 vegur sé fullnægjandi yfir Hellisheiði til framtíðar. Ég fæ einhverja óþægilega tilfinningu á þessum vegarkafla í Svínahrauninu. Vegagerðin ætlaði ekki að tengja Þrengslaveginn með brú og slaufum ,en sveitarfélagið sagði stopp. minnugt allra slysanna sem hafa orðið á gömlu gatnamótunum. Þessi slaufutenging hefur ekki kostað meira en eitt alvarlegt slys. Þarna er í hnotskurn þessi seinni tíma hönnun hjá Vegagerðinni þar sem axlir eru örmjóar og ekki svigrúm ef eitthvað ber útaf. Fyrir tiltölulega fáum árum var Landvegurinn byggður upp og lagður slitlagi, en hann var víða svo mjór að stikurnar voru sumsstaðar efst í fláanum til að næg breidd næðist á akreininni. sem sagt engin vegöxl. Svo er til fyrirmyndar hvernig er búið að leggja slitlag á axlirnar í Flóanum og víðar .Það hlýtur að vera til bóta fyrir hjólreiðafólk og almennt séð. Ég hef líka haldið því fram eins og gert er hér að framan að það hlýtut að vera hægt á einhverjum hluta leiðarinnar að byrja á að leggja annan tveggja akreina veg til hliðar og nota síðan gamla veginn í hina áttina .Í umferðarspá sem ég hef séð er gert ráð fyrir um15 þúsund bíla umferð á dag við Sandskeiðið árið 2012. Svo er þróunin sú að æ fleiri bílar eru með breiða vagna í drætti eða húsbílar. Gleðilegt nýtt ár Olgeir
14.12.2007 at 22:12 #606002Ekki veit ég hvað er verið að gera núna þarna en mér finnst ekki skrítið þó að landeigendur á leiðinni inn að Lóni vilji verjast frekara landbroti Markarfljóts. Ég fór í haust inn í Húsadal ásamt fleirum með skólabörn og þá var Markarfljót búið að taka veginn tvisvar og í bakaleiðinni næstum komið að síðasta slóða enda lentum við í mikilli rigningu. Ég fylgdi barni framyfir Krossá á göngubrúnni á mánudagskvöldi og morguninn eftir var malarvarnargarðurinn við brúna farinn. . Fyrir nokkrum áratugum var Jökulgilskvíslin næstum búin að eyðileggja allt í Landmannalaugum. Hún kom alveg heimundir húsvegg og eftir það var farið í að gera varnargarð sem síðar var lengdur og styrktur. Ég er viss um að Kvíslin væri búin að kaffæra mýrina og laugina ef henni hefði ekki verið bægt frá því á tímabili hlóð hún undir sig og sótti svo að húsinu .Svona jökulvötn haga sér svona að hlaða undir sig í einn tíma og færa sig svo annað eins og í sumar þá lá Jökulgilskvíslin austurvið Barm eins og hún gerði reyndar í tvö sumur um 1960. Með kveðju Olgeir
05.12.2007 at 23:22 #605752Það er fróðlegt að bera saman bílana í dag við fyrstu bílana sem fluttir voru til landsins. Grundarbíllinn sem svo var nefndur var keyptur notaður í Þýskalandi að Grund í Eyjafirði árið 1907. Þetta var vörubíll sem var 3900 kg. og átti að geta borið 1200 kg. Vélin var 8 eða 9 hestöfl ! og dekkin þau voru massíf og 1,20 metra há semsagt jafn há og 47 tommu dekkin núna og tvöfalt að aftan. Þessi dekk entust afar illa og skárust ofaní jarðveginn og erfiðlega gekk að fá dekk sem pössuðu .Um vorið 1909 gafst Magnús á Grund upp á að reka bílinn og var hann seldur 1913 . Svona smá pæling um dekkjastærðir. Kveðja. Olgeir.
19.11.2007 at 23:28 #603882Sælt veri fólkið. Ég veit ekkert um Yrpuverið nema að það er fyrir innan Tungnaá nokkuð austan við Hófsvað. Ég er búinn að tala við nokkra menn sem ég taldi líklegast að vissu um uppruna nafnsins en enginn man eftir að hafa séð neitt um það. Trúlega hefur jörp hryssa eitthvað komið þar við sögu líkt og hún Grána Reynistaðamanna fannst um vorið eftir í Gránunesi nær dauða en lífi með reiðinginn undir kvið og gjarðirnar grafnar ofaní bakið. En fyrir um 100 árum tapaðist hryssa í hafti frá veiðimönnum við Veiðivötn og fundust beinin og haftið 18 árum síðar uppá Snjóöldu. Einu sinni fyrir löngu tapaðist hestur úr Landmannalaugum og fannst aldrei en förin voru rakin upp í Laughraunið en hurfu þar. Ég er þessa dagana að klippa og ganga frá upptöku af ferðinni sem við fórum á nokkrum gömlum og nýjum bílum yfir Hófsvað haustið 2004. Næst er að snyrta til upptökuna af 44 tommu ferðinni í fyrra yfir Bjallavað og Hófsvað og bið ég að heilsa ferðafélögunum og þakka fyrir daginn. Kveðja Olgeir
05.11.2007 at 00:40 #601860Sæll Jón. Þú skalt hringja í einhvern af eigendum skálans í Þúfuveri. Hann er eign bræðranna og /eða systkinanna frá Norðurhjáleigu og mest notaður sem veiðihús því að þetta fólk er með Þúfuvatnið á leigu til fiskiræktar. Sigurður Jónsson sem var lengi bóndi í Kastalabrekku býr nú í Hvolsvelli og er með síma 4878660 og Sveinn sonur hans er líka í Hvolsvelli og er með 4878290. Þú verður svo að finna hnitin á Google earth ef Sveinn hefur þau ekki . Kveðja Olgeir
22.10.2007 at 17:32 #549012Þetta er góð mynd hjá þér Davíð og nokkuð örugglega Maríufoss enda sést í vatnsmælishús. Þetta nafn er eitthvert seinni tíma nafn sem heimamenn kannast ekki við og mun vera tengt Maríu Mokk þeirri sömu og ort er um í Þórsmerkurljóði Sigurðar Þórarinssonar. Núna er rennslið þarna 116 rúmmetrar á sek. og Hófsvað því trúlega ófært nema alstærstu bílum. Ég hef spurt elstu menn sem kunnugir eru þessu svæði um nafn á fossinum eða flúðinni móts við pípuhliðið en enginn kannast við nafn á þeim fossi. Endilega komið með nafn ef einhver þekkir það. Kv. Olgeir
20.10.2007 at 10:41 #549008Sælt veri fólkið. Í gær var ég spurður um nöfn á nokkrum fossum í Tungnaá og langar að varpa þeirri spurningu hér upp. Maríufoss er nálægt vatnshæðarmælinum. Fleiri fossar og/eða flúðir eru móts við Vestur Bjallana .Ekki hef ég heyrt nafn á fossinum móts við pípuhliðið. Tungnárfellsfoss er neðan við Bjallavað og Hnubbafossar eru aðeins ofan við Sigöldulónið. Áður en Sultartangastíflan kom féll Tungnaáin í Þjórsá um Ármótafoss og var Tungnaáin oft meiri. Eins og Hlynur segir er endinn á Sultartanganum og Tangavaðið á þurru . Hrauneyjafoss er nánast vatnslaus og eins Sigöldufossinn. Í þeim er lekavatn unan stíflunum. Nokkrar myndir úr 44 tommu ferðinni eru í myndasafninu undir Weapon-vatnasull. Kv. Olgeir
18.10.2007 at 22:51 #597906Sælir. Mér finnst ekki gott ef menn halda áfram að tala um Fjallabak í karlkyni. Menn eru að Fjallabaki, á Fjallabakssvæðinu eða fara Fjallabaksleiðirnar. Undanfarna daga hefur snjórinn verið í 900-1000 metrunum séð heiman frá mér og núna er um 10 stiga hiti og spáð hlýindum alla helgina svo að snjór ætti ekki að tefja um helgina á Fjallabaksleið nyrðri . Við erum niðri í kjallara en förum nyrðri leiðina eða syðri leiðina.Fyrir alla muni ekki rugla örnefnum meira en orðið er. Nóg er nú samt. Kv. Olgeir
17.10.2007 at 12:59 #600158Ég veit ekkert um þetta mál en langar að segja frá því sem kom fyrir hjá mér fyrir nokkrum árum. Ég var búinn að vera í árlegri fjallferð með vagn aftaní Víponinum í viku oftast með mikið hlass . Svo þegar ég tók vagninn aftanúr á sléttu túni eftir ferðina brotnaði öxull undir engu álagi . Snérist í sundur rétt innan við rillurnar . Kv. Olgeir
08.10.2007 at 13:14 #598900Fyrir hvað er Póst og fjarskiptastofnun að rukka mann um 1800 krónur á ári. Þjónustan í Gufunesi löngu aflögð. Ég veit ekki hvernig á að losna við þetta gjald. Tími ekki að henda stöðinni ennþá og trúlega vill enginn kaupa hana . Kveðja Olgeir
06.10.2007 at 23:13 #598564Ég er í mörg ár búinn að vera með Benefon handsíma í NMT kerfinu . Til fjalla hef ég mest verið á Landmannaafrétti og nálægum svæðum. Ég er með símann fengdan við útiloftnet á bílnum . Fyrstu árin fannst mér vera svipuð virkni hvort maður var í sambandi við Búrfell eða Vatnsfell en svo í ein 3 ár í kringum aldamótin var oftast mjög slæmt samband um Búrfell. Þó að síminn sýndi 4 í styrk náðist ekki samband þó að vel gengi að tala á tveimur á Veiðivatnasvæðinu. Ég margkvartaði við Símann og loksins lagaðist þetta en svo haustið 2006 var aftur erfitt að ná gegnum Búrfell og sama var í haust fannst mér og inn við Landmannahelli náði ég bara betur með GSM símanum. Sendarnir eru eflaust orðnir lélegir og viðhaldið látið dánkast og beðið eftir nýja kerfinu . Að óreyndu líst mér nokkuð vel á nýja kerfið sem á að koma í staðinn fyrir NMT eftir rúmt ár. Hafa menn heyrt um verð á þeim símum? Kv. Olgeir
02.10.2007 at 22:47 #595240Sælir. Þó að þessi þráður sé merktur Bronco langar mig að vita hvað varð um frambyggðan Weapon sem var smíðaður í Reykholti fyrir löngu. Það rifjaðist upp þegar ég sá að verið væri að bjarga Soffíu frá glötun ,en Soffía var frambyggð rúta að líkindum á grind af Bedford trukk sem voru margir í umferð um tíma . Bjarni í Túni, Bergur í Stóru Mörk, bílar Úlfars Jakobsen og fl. Með von um svar. með kveðju Olgeir
02.10.2007 at 12:58 #598104Það er ekki rétt hjá þér Stebbi að Hveragerðisland nái að hringveginum. Hveragerði er að stofni til jörðin Vorsabær og fl. Engin byggð er að vísu sunnan vegar ennþá en bæði á kortum og á vef Landmælinga er Hveragerðisland sýnt suður fyrir veg að Grímslæk. Þetta fékk ég staðfest á skrifstofu Hveragerðis og kann illa við að vera rengdur um þetta hér að framan á þræðinum. Með kveðju. Olgeir
-
AuthorReplies