FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Olgeir Engilbertsson

Olgeir Engilbertsson

Profile picture of Olgeir Engilbertsson
Virkur síðast fyrir 9 years, 9 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 81 through 100 (of 239 total)
← 1 … 4 5 6 … 12 →
  • Author
    Replies
  • 16.06.2008 at 09:20 #624320
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Sælir. Það er bara einn Pokahryggur og hann er norðan í Höfðanum. Nafnið er til komið vegna þess að Sigurður frá Laug hlóð sandpokum í skoru til að gera fært fyrir bíl upp hrygginn á fjórða áratug síðustu aldar. Áður höfðu menn flutt hrafntinnu á hestum yfir Höfðann niður á veg. Það hafa ekki verið góðar klyfjar. Nú seinni ár er búið að hefla Pokahrygginn og hann orðinn nógu breiður og nafnið færst yfir á alla leiðina yfir sem er bara rugl. Kv. Olgeir





    10.06.2008 at 22:08 #624266
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Skaftáreldar voru 1783 og 1784 og þeim fylgdu miklar hörmungar,bæði mannfellir og búfjárdauði. Skaftáreldahraunið er um 580 ferkílómetrar og rúmmálið um 11 rúmkílómetrar. Kv. Olgeir





    10.06.2008 at 16:32 #624276
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Sælir. Ferðamaður fór í gær í átt að Landmannalaugum Sigölduleiðina og sá ruðningstæki nálægt Frostastaðahálsi og snéri við. Hlýtur að verða opnað í Laugarnar því að annars er keyrt út um allt hvað sem hver segir. Útlendingarnir eru farnir að streyma inn í landið og fara eins langt og þeir komast samanber parið sem fannst um daginn í Landmannalaugum og Yarisinn var inn við Lambafitarhraun og í fjölmiðlum var sagt að bíllinn hefði verið við Lambaskarð. Svona eru fréttirnar oft tómt rugl.Kv. Olgeir





    10.06.2008 at 08:59 #624240
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Hoffell er í fjalllendinu milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar og 1101 metrar samkvæmt Áarbók FÍ 1974,en á nýrri kortum 1092 m. Hnitin eru nálægt N 64 58 387 og V 14 03 618 . Fáskrúðsfjarðargöngin eru nálægt þessu fjalli held ég. Kv. Olgeir





    04.06.2008 at 13:25 #623956
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Mér líst heldur illa á þetta nýja mengunargjald þar sem ég efast mjög um að þau gjöld sem fyrir eru verði afnumin. Það hefur yfirleitt gengið illa að fella niður "tímabundin " gjöld og ég trúi að svo verði með þetta. Þetta á eftir að bitna hart á fólki í hinum dreyfðu byggðum sem eðli málsins vegna þurfa oft á stærri bílum að halda og geta ekki hoppað uppí strætó eða hjólað langar leiðir milli staða. Ég er nýbúinn að kaupa lítinn sparneytinn dísiljeppa og græði því varla mikið á niðurfellingu aðflutningsgjalda nýrra bíla á næstunni. Á meðan helmingur þjóðarinnar ætlar til útlanda á þessu ári sé ég ekki að mikið sé verið að hugsa um LOSUN þar sem 4 manna fjölskylda sem flýgur t.d. til Kaupmannahafnar er að eyða um 640 lítrum af eldsneyti fram og til baka og um tvöfalt meira til Kanarí. Farþegaflugvélar eru að fara með frá 38 til 42 lítra af eldsneyti á 1000 km. pr. farþega. Þetta sá ég í blaði í flugvél 2002 . Ég held að það verði langt í að landsbyggðarfólk geti nálgast einhverja nýja orkugjafa á bílana sína. Kannski er ég bara einhver svartsýnispúki en það verður þá að hafa það. Kv. Olgeir





    14.05.2008 at 13:14 #622744
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Skemmtilegur þráður þetta.Ég ætla að reyna að setja hér mynd af bíl sem Bergur Sæmundsson í Stóru Mörk átti lengi og notaði í túristakeyrslu,aðallega í Þórsmörk. Þetta var að stofni til frambyggður kanadiskur Chevrolet vörubíll með drifi á öllum hjólum held ég örugglega. Bjarni í Túni átti svipaðan bíl. Trukkurinn hans Bergs var með farþegarýmið laust frá stýrishúsinu,sem er til bóta í veltingi og torfærum. Ekki þótti öllum þetta fallegur bíll og fékk viðurnefnið Bergljót. Við í ungmennafélaginu fórum í þessum bíl í Þórsmörk 1959 og þá tók ég myndina á gamla kassavél. Enn vantar hérna myndir af frægum fjallabílum svo sem Jólatrénu hans Guðmundar Jónassonar, Soffíu í Reykholti og fleirum.





    11.05.2008 at 17:44 #622676
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Sælir.Mér dettur í hug að benda á margar myndir af gömlum trukkum ,GMC, Studebaker REO og Weaponum sem fóru yfir Markarfljót móts við Húsadal haustið 2005 minnir mig. Þessar mundir eru á síðunni http://www.4x4offroads.com/ . Orkan mun hafa staðið fyrir ferðinni og þeir eiga suma bílana held ég. Gaman að skoða myndir af þessum gömlu svona innan um allar nýju glæsikerrurnar. Valdi Vípon mun hafa átt Weapon pikkuppinn í felulitunum og var hann með upprunalega vatnsþétta kveikjukerfið. Sá bíll var númerslaus og fluttur austur á vagni. Sá hvíti er 1942 módel eign Bjarnhéðins Guðjónssonar á Hellu og var hann nýbúinn að smíða á hann nýtt hús. Ekki eru menn sammála um fegurðina ,en smíðin er vönduð hjá þeim snilldar járnsmið. Kv. Olgeir





    22.04.2008 at 00:22 #621020
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Jósep Benediktsson í Varmadal á Rangárvöllum er með þjónustu á slökkvitækjum hér í Rangárvallasýslu og eins er held ég á Slökkvistöðinni á Selfossi. Þetta er til upplýsinga fyrir þá sem eru á Suðurlandinu .Örugglega margir á Reykjavíkursvæðinu. Kv. Olgeir





    21.04.2008 at 23:57 #621014
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Sælir. Þessa sögu hef ég líka heyrt. Guðmundur mun hafa verið á R 342 sem var stundum kallaður Geimfarabíllinn eftir að Guðmundur keyrði hóp bandarískra geimfara á honum í Öskju og nágrenni þegar þeir voru að æfa sig fyrir ferð til Tunglsins . Þessir bílar báðir voru af eins eða svipaðri gerð Mercedes Benz og vélin í bílnum hjá Guðmundi skemmdist í Kvíslinni. Guðmundur var einhverntíma staddur í langri ferð fyrir norðan Vatnajökul og sendi dóttur sinni gegnum Gufunes beiðni um að hún sendi sér 5 hvítar skyrtur. Hún bara gerði það en á dulmáli talstöðvanna áttu þetta að vera 5 fl. af Hvíta hestinum ! Guðmundur var skemmtilegur .Kv. Olgeir





    21.04.2008 at 10:16 #620934
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Ég er að tala um hækkun undir gormana. Einhver var að tala um hálfan dag og svo þarf víst að hjólastilla þegar þetta er gert .Olgeir





    20.04.2008 at 22:38 #202333
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Sælir. Hvað er sanngjarnt og hæfilegt að borga fyrir að koma fyrir 3 sentimetra hækkunarsetti í nýjan Grand Vitara dísil? Settið er til. Gaman væri að fá komment á þetta hérna. Kveðja .Olgeir





    21.03.2008 at 18:25 #618212
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Það er afar bjart og fallegt veður en ég sé engin för upp Eyjafjallajökul að vestan eins og ég sé oft í stjörnukíki . Ég sé til dæmis einn skála í Tindfjöllum og þar er líka bjart og fallegt. Kv. Olgeir





    20.03.2008 at 22:52 #202148
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Hvernig er það er ekki hægt að fá Suzuki XL-7 jeppann með dísilvél . Kunningi minn er með svona bíl í póstkeyrslu í mörg ár og vill gjarnan endurnýja,en hann segir að þessir jeppar séu ekki fluttir til Evrópu lengur. Sá bíll er beinskiftur og hefur reynst vel Mér finnst Grand Vitara jeppinn dálítið lágur undir krókinn óhækkaður. Ég á Sidekick hækkaðan um einhverja 4 sentimetra og það er mjög passlegt að setjast inní hann. Það væri gaman að heyra hvort einhver veit meira um XL-7 bílinn með dísilvél . Ég sé aldrei auglýstan svona bíl ,en það komu víst ekki mjög margir á sínum tíma. Með kveðju Olgeir





    08.03.2008 at 12:56 #616416
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Ég er með . Olgeir





    06.03.2008 at 23:52 #616746
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Ég veit nú ekkert um færðina akkúrat núna ,en mér sýnist á myndum og frásögnum að eitthvað hafi krapi verið til leiðinda undanfarið. Á fyrsta Friðlandskortinu var nafnið Vosbúðir sett með smáu letri á sanddældina á móts við Bláhyl (Hnausapoll). Þar hafði þá fólk lent í því að missa vélsleða á kaf í vatn nýlega.Menn þurfa alltaf að passa sig á þessari lægð þegar hætta er á krapa og held ég að menn reyni þá að fylgja hæðunum sunnan við Vosbúðir. Nafnið er horfið af nýrri kortum ,en ætti það ekki að fá að halda sér? Núna er vörður í Laugunum sem ætti að vera hægt að hafa samband við á rás 42. Segið skoðun ykkar á nafninu. Kveðja Olgeir





    02.03.2008 at 21:47 #615632
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Sælir.´Mér sýnist þessi trukkur á myndinni sé það sem menn gjarnan kölluðu Karíóla hér á árunum. Þeir voru eitthvað léttbyggðari en Víponinn og voru á 7,50×16 dekkjum og á mun hærra drifi mig minnir 9 tennur á móti 43 það er um 1:4,77. Ég á meira að segja kamb og pinjón af þessari gerð sem einhver lét mig hafa og sagði að passaði í Carry all. Rafvirkjarnir hjá Kaupfélaginu Þór á Hellu voru á svona bíl 1957 og 1958 . Það var líka svona bíll sem fyrstur kom í Landmannalaugar 16. júní 1946. Kv. Olgeir





    29.02.2008 at 10:29 #615158
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Sælir. Það hlautnað enda með því að þessi annars fróðlegi þráður færi út í skítkast og leiðindi. Það verður fróðlegt að fylgjast með hvað verður ofaná í öllum þessum fjarskiptakerfum . Ég eignaðist fyrsta settið af Labb rabb stöðvum 1968 og önnur stöðin er enn í lagi. Þetta notuðum við til hagræðis í smalamennskum lengi ,en nú hafa UHF stöðvarnar tekið við. Einnig hef ég verið með "Gufunesstöð"í 40 ár og að sjálfsögðu CB og nú síðast VHF. Varla leið svo þorrablót að ég fengi ekki einhverjar pillur. Svo þegar hvert smábarn er komið með GSM síma þá er ekkert grínast með það. Nú mun vera á döfinni að koma Tetra og Vodafone á Snjóölduna .Þá loksins vænkast hagur Strympu með fjarskiptasamband í Lannnnndmannalaugum en þar hefur lengst af verið erfitt með fjarskipti, jafnvel með Gufunesið. Alltaf heyrði ég betur í Herðubreiðarlindum heldur en Laugunum. KV Olgeir





    27.02.2008 at 13:18 #615246
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Sælir. Ég þekki að vísu ekki þessa gerð af öxlum en ég er í mörg ár búinn að vera með í Weaponinum öxla sem ég fékk úr flaki .Þeir eru með rillum á báðum endum og notuð lok af framhásingu. Þau eru með rillum. Þetta hefur reynst vel og kemur í veg fyrir spennu ef eitthvað er bogið . Þetta er kannski ekki hægt hjá þér en Árni Brynjólfsson í Hafnarfirði smíðaði fyrir mig varaöxul. Víponinn með mislöngu öxlana (eftir 1953) var gjarn á að brjóta styttri öxulinn. Kv. Olgeir





    20.02.2008 at 13:47 #614666
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Sælir. Ekki hef ég tölu á þeim farartækjum sem ég er búinn að draga upp í gegnum tíðina. Nú síðast í snjóakaflanum undanfarið hef ég dregið nokkuð marga sem hafa lent útaf hér í kring mest vegna slæms skyggnis. Til þess hef ég notað góðan traktor með drifi á öllum hjólum. Verst er eins og einhver sagði hér að erfitt er að finna eitthvað gott að binda í á sumum fólksbílum .Í þessu sem öðru er heilbrigð skynsemi það sem best virkar. Ég reyni alltaf fyrst að taka mjúklega á og hafa stutt í svo að bílarnir dragist ekki langt eftir kantinum. Hér áður fyr þurfti ég oft að draga upp bíla með Víponinum ,en fyrir kom að manni leist ekki á aðstæður og reyndi ekki einu sinni. Einkennilegasta aðstoðin sem ég man eftir var þegar ég rétti við traktor sem var á hliðinni í brekkunni austan í Frostastaðahálsi. Ég var á leiðinni úr Laugunum með fullan bílinn af mat og öðrum flutningi og hlaðinn vagninn aftaní. Snjór var á jörð og ég með bílinn á keðjum. Traktorinn snéri langsum á veginum svo að fyrst þurfti að draga framendan til þangað til traktorinn lá þversum á veginum og snéri húsið uppí brekkuna. Því næst lét ég setja tógið yfir belginn og binda í þannig að traktorinn rétti sig af þegar í væri togað.Við vorum hræddastir um að hann ylti kannski á hina hliðina þegar hann kæmi niður en hann lyfti ekki einu sinni hjóli svo að þetta var bara skortur á eðlisfræðiþekkingu. Það brotnaði ein rúða í veltunni og fram á síðustu ár sáust brotin úr perluglerinu í kantinum. Eigandinn átti hálfa vodkaflösku í hólfinu á brettinu og hún slapp svo og eigandinn .Hann slapp ómeiddur og hefur snjórinn dregið eitthvað úr högginu. Kv. Olgeir





    19.02.2008 at 13:48 #613928
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Sælir Suðurnesjamenn. Ef þið farið inn að Helli um helgina væri gamanað frétta hvort GSM sambandið hefur eitthvað batnað. Það er spurning hvort Vodafon er búið að setja upp langdrægan sendi á Búrfelli. Vegna hárra fjalla næst ekki samband frá Vatnsfelli nema á örfáum stöðum á þessu svæði. Hræddur er ég um að mikið krap og jafnvel aurbleyta sé einhversstaðar á leiðinni. Góða ferð .Kv. Olgeir





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 81 through 100 (of 239 total)
← 1 … 4 5 6 … 12 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.