FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Olgeir Engilbertsson

Olgeir Engilbertsson

Profile picture of Olgeir Engilbertsson
Virkur síðast fyrir 9 years, 9 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 41 through 60 (of 239 total)
← 1 2 3 4 … 12 →
  • Author
    Replies
  • 25.11.2009 at 10:01 #668284
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Sælir félagar. Hefur aldrei komið til tals að útbúa svona númeralimmiða í afturrúðu svipað og FR var með á árum áður. Það gæti stundum verið gott að geta kallað í þann sem er á ferðinni á undan ,mann vantar aðstoð eða bara hvað sem er. Endilega segið ykkar álit á þessu. Kv. Olgeir FR 1364





    05.11.2009 at 17:42 #659726
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Sælt veri fólkið. Ég verð að taka undir með Hlyn að mér gengur illa að tjónka við myndaalbúmið. Ég reyndi nýlega að setja inn nokkrar myndir úr fjallferðinni í haust. Myndirnar fóru inn en eins og hver þeirra færi í sér möppu öfugt við það sem ég ætlaði. Það er sagt að leiðbeiningarnar séu góðar,en þeim sem kunna þetta allt uppá 10 finnst stundum svo auðvelt að gera það sem þeir kunna vel. Ég sá hér um daginn tvö ágæt myndasöfn úr ferðinni um Hungurfit en á þær myndir voru linkar. Það væri gott ef einhver vildi skoða þessar fjallferðamyndir mínar og dæma um hvort þær séu ekki hver í sínu albúminu. Með kveðju Olgeir





    03.10.2009 at 17:31 #659692
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Sælir. Ég er kannski bæði kalkaður og tregur en mér finnst þetta myndaalbúm ekki nógu skemmtilegt. Mér tókst í gær að setja inn 2 myndir. Ég ætlaði að bæta þeim við í möppu sem var til en þær lentu í nýrri möppu. Svo ætlaði ég að bæta við myndum seinna og það bara tókst ekki en ég er ekki með háskólapróf í ensku. Bíð bara eftir Íslenskum leiðbeiningum. Kv. olgeir





    07.09.2009 at 23:31 #656382
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Fyrir rúmri viku fór ég inn í Landmannalaugar og hafði þá ekki komið það langt inneftir frá því í júní. Þegar ég keyrði austur hraunið frá Tjörvafelli blöstu við för eftir mótorhjól beint upp hlíðina á móti og önnur daufari til hliðar líklega niðurferðin. Þessi för voru ekki þarna í fyrrahaust ,en í júníferðinni átti ég í vök að verjast einmitt þarna að mæta hóp af hjólum á mikilli ferð ausandi möl í allar áttir svo að förin gætu hafa verið komin. Ég hefði ekki viljað vera á fínum bíl í þessari grjótdreyf. Mér finnst líka sumir fjórhjólamenn mættu aðeins slá af við mætingar þar sem gróf dekkin spæna mölina yfir bíla sem þeir mæta. Ég kann því miður ekki að setja myndir hér á spjallið en myndir sem ég tók af förunum eru á facebook í myndasafni á Vinir Landmannaafréttar,Veiðivatna og fl. Kv. Olgeir





    02.09.2009 at 10:27 #652396
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Skúli ekki ætla ég að kveða upp dóm um Hattafellsnafnið. Ég bendi á að í bókinni Göngur og réttir sem kom út 1952 er þáttur um Emstrurnar. Höfundur er Bergsteinn Kristjánsson borinn og barnfæddur í Hvolhreppi og fór margar fjallferðir á Emstrur. Hann margendurtekur í greininni nafnið Hattafell og Hattafellsgil sem mun hafa verið náttstaður Emstrumanna í leitum. Ég spurði Ingvar Þorsteinsson frá Markarskarði um hans skoðun á nafninu. Faðir hans var fjallkóngur á Emstrum í 10 ár og í hans huga heitir fjallið Hattafell. Á kortablaðinu Þórsmörk-Landmannalaugar 1:100000 frá Landmælingum Ísl. frá 1989 er nafnið Hattafell en nú um stundir tala flestir um Hattfell. Kannski er með þetta eins og stundum er sagt að með því að endurtaka sömu vitleysuna nógu oft fari menn að trúa á hana. Nú væri gaman að sjá hér álit Hvolsvellinga og annarra heimamanna . Ég er nú bara Holtamaður fæddur á Rangárvöllum.Kv. Olgeir





    01.09.2009 at 11:11 #652386
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Sælir félagar. Á Veiðivatnasvæðinu er vatn sem engin veiði var í áður fyr og nafnlaust. Svo voru sett seiði í vatnið og það hlaut nafnið Ónefndavatn og er gott veiðivatn austan við Nýjavatn. Svo eru til fyrirtæki sem varla hafa staðið undir sínum fínu nöfnum svo sem Stoðir ,Burðarás og fl. Síðan er óvissa um rithátt á sumum náttúrufyrirbærum svo sem Hattfell-Hattafell. Lifrafjöll-Lifrarfjöll. Rauðfoss-Rauðifoss .Á kortum stendur yfirleitt Lambafitjahraun,en það rann bara yfir eina Lambafit 1913 og við köllum það alltaf Lambafitarhraun. Meira af svona pælingum.Kv. Olgeir





    26.08.2009 at 12:04 #654982
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Sælir félagar. Ég vil benda mönnum á að lesa ferðasögu í Árbók Ferðafélagsins 1951. Greinin er á blaðsíðu 172 og heitir Bílferð um suðuröræfin og er eftir Einar Magnússon sem ég held að hafi verið kennari í MR og mikill frumkvöðull í hálendisferðum. Lýst er ferð á 3 bílum sunnan Hofsjökuls til Kerlingafjalla. Bílarnir voru þungir og eflaust hefur eitthvað tekið breytingum síðan 1950 en sagan er fróðleg. Kv. olgeir





    23.08.2009 at 21:46 #649314
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Sælt veri fólkið. Ég er nú smám saman að læra á þennan nýja vef og áðan prófaði ég að bæta myndum við möppu sem fyrir var. Það tókst en ekki alveg nógu vel og er aðeins einfaldara en á gömlu síðunni finnst mér. Mikið væri samt gott fyrir gamla jálka eins og mig að hafa skipanirnar á Íslensku en það er kannski ekki væntanlegt. Kv. Olgeir





    22.08.2009 at 18:00 #655092
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Það hlýtur að vera í lagi að fara upp í Reykjadali á svona bíl. Ég held að ekki sé gert ráð fyrir að menn keyri yfir jökulfönnina að skálanum í Hrafntinnuskeri en þú kemst örugglega að íshellinum. Ég hef farið þetta á nánast óbreyttri Súkku bæði frá Dómadalsleiðinni og hjá Laufafelli að vísu ekki i sumar. Góða ferð. Kv.Olgeir





    05.08.2009 at 00:42 #652754
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Sæll Jón. Ég ætla að segja smá sögu af ferð sem farin var á vegum ráðamanna til að skoða aðstæður í Reykjadölunum síðsumars 1996. Við vorum á tveimur bílum á 38 tommu dekkjum. Ákveðið var að aka gamlan slóða af Hrafntinnuskersleiðinni austur á öldu sem er rétt norðan við Stórahver. Einhverjar steinvölur voru raðaðar yfir hjólförin og var þeim velt frá. Þarna fór fyrstur manna Sigurður frá Laug og alla leið uppá 1004 ölduna vestur af Skalla haustið 1942 og sást bíllinn úr Laugunum. Hópurinn gekk svo að Stórahver en þar hittum við lítinn gönguhóp sem var að koma úr Skerinu. Fararstjóri hópsins varð svo froðufelland reiður að hann kom varla upp orði til að skamma bílstjórana fyrir þá óhæfu að keyra þennan bannaða slóða. Hann hringdi í Sýslumann og setti í gang hálfgert neyðarástand og var haldin ráðstefna í Laugunum með oddvitum og fleirum. Ekki var nú þessi blessaður maður meiri bógur en það að hann sagði ekki til nafns og var málið látið niður falla. Ég skýrði ölduna þar sem við stoppuðum umsvifalaust Sakamannaöldu en það hefur ekki ratað á kort .Þessi slóði er núna 67 ára og þarna hefur Guðmundur Jónasson væntanlega farið þegar hann ók af Skalla niður í Litla Bransagil í kringum 1960. Það er nú margt í mörgu. Kv. Olgeir





    30.07.2009 at 15:41 #652738
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Sælir. Ég er ekki alveg sammála sumu sem hér er sagt um þvottabrettin. Það geta myndast þvottabretti í rigningatíð en þessi ofurþurrkur er afleitur fyrir malarvegina. Ég held að rúturnar eigi tiltölulega lítinn þátt í myndun þvottabrettanna. Flestir bílar nú til dags eru orðnir svo kraftmiklir að það er ein ástæðan og jeppar yfirleitt keyrðir í afturdrifinu. Ef umferðin væri eingöngu jeppar á 38 tommu dekkjum og stærri og dekkin höfð hæfilega mjúk þá myndu ekki myndast svona mikil bretti. Við Veiðivötnin verða til svakaleg þvottabretti í bröttum brekkum þar sem menn standa bílana í afturdrifinu. Svo er ég sammála því að 12 tonna trukkur er ekki besta farartækið í sandbleytu og ótroðnum slóða. Kv. Olgeir





    16.07.2009 at 21:29 #651424
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Dómadalsleiðin,F225 á að vera fær öllum fjórhjóladrifsbílum núna .Mjög lítið í Helliskvíslinni og Rauðufossakvíslinni og kvíslarnar á fitjunum komnar í hólka. Við Laugarnar er varasamt að fara á smábílum yfir Námskvíslina og fara verður rétt yfir Laugalækinn,ekki beint yfir því að þar er dýpst. Það hefur verið fólk í sumar á fólksbílum með tjaldvagna inn við Landmannahelli. Kv.Olgeir





    11.04.2009 at 14:02 #645368
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Núna sé ég 16 eða17 bíla í slóðinni upp jökulinn frá Hamragarðaheiðinni. Þetta sé ég í um 50 km fjarlægð utan úr Holtum. Eigið gleðilega Páska. Kv. Olgeir





    12.03.2009 at 13:06 #643172
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Þegar veðurathugunarstöðin var starfrækt í Sandbúðum í kringum 1980 voru þar hjón með lítið barn minnsta kosti einn vetur. Þá voru ekki komin eins góð samgöngutæki og nú er .Eina sambandið var með "Gufunes talstöð" og veðurlýsingin hófst á 04068 . þetta þótti sumum vera alveg á mörkunum en reyndist vera bara í lagi. Eflaust hefur ekki alltaf verið gott að ala upp börn á afskekktustu heiðabýlun hér fyrr á öldum í lélegum húsum og hvorki þyrlur eða snjóbílar. Bara svona smá fróðleiksmoli. með kveðju Olgeir





    07.03.2009 at 12:54 #642582
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Sælir. Í fyrrasumar vantaði mig prófílefni til að gera við toppgrindina á bílnum og var bent á GA smíðajárn í Skútuvogi. Ég fór í bæinn með málin af því sem mig vantaði, Ég kom í afgreiðsluna 5 mínútur fyrir kl.tólf með lista yfir 5 stykki af prófíl í misjöfnum lengdum. Eftir nákvæmlega 17 mínútur var ég búinn að borga og gekk út með það sem ég bað um. þetta fannst mér frábær þjónusta og í lagi að segja frá fleiru en því sem miður fer. Kv. Olgeir





    02.03.2009 at 18:30 #642216
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Síðan hvenær kunna þeir hjá N1 að ákveða lengd á talstöðvaloftnetum. Í fyrra klippti einhver þar topp í svo vitlausa lengd að standbylgja var alltof há og virknin eftir því. Svo kom kaupandinn hingað austur og við klipptum toppinn í rétta lengd fyrir okkar tíðnir. Þá náðum við sambandi við mann sem var ekki að ná sendingunni fyrir breytinguna . Kv. Olgeir





    23.02.2009 at 11:54 #641770
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Einu sinni þegar margir voru með SSB talstöðvarnar var einn félaginn kominn í náttstað og aðeins búinn að fá sér einn gráan. Ég vil ekki nefna rétt nafn og set hér mitt kallmúmer. Um kvöldið heyrðist á rásinni : L 381 og hálfur kallar. Sami maður var eitt sinn staddur inn á hálendinu og vantaði varahlut í jeppann . Hann stakk uppá hvort ekki vðri hægt að kasta þessu niður úr Egilsstaðaflugvélinni. Yfirleitt voru starfsmennirnir í Gufunesi afskaplega liprir og almennilegir í sínum störfum sem oft hafa reynt á þolinmæðina. Einu sinni gekk þó illa að heyra í þeim sem kallaði og Gufunesmaðurinn sagði hálf önugur : Það er eins og þú sért fyrir norðan eða einhversstaðar í andskotanum. Með kveðju. Olgeir





    19.02.2009 at 16:34 #641390
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Ég ráðlegg þér að hafa samband við Guðmund Jónsson ,gummij hér á síðunni. Hann er búinn að eiga lengi Cherokee jeppa á 38 tommu dekkjum. Sá bíll er að virka mjög vel og hefur reynst frábærlega vel. Hans bíll er kannski eldri en þu ert að tala um en hann þekkir þetta út og inn.Kv. Olgeir





    18.02.2009 at 19:48 #641242
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Jæja það er best að upplýsa að nú í seinni tíð er mikið farið að nota grönn tengi á loftnetakapal. Svo geta menn skrúfað þar á ýmist BNC tengi fyrir síma og handstöðvar eða bara gömlu gerðina sem passar á flestar talstöðvar. Þessi tengi passa í vöggur sem farið er að nota fyrir GSM síma þar sem þörf er á loftneti til mögnunar við slæm skilyrði. Þessi tengi nefnast FME eins og Fjármálaeftirlitið. Það eru reyndar rétt svör hér á undan svo sem sambandsleysi og að þetta virki ekki. Vona að mér fyrirgefist þessi getraun. Kv. Olgeir





    18.02.2009 at 13:35 #641228
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Sælt veri fólkið. Ég er með eina spurningu og hún snertir að hluta til fjarskipti . Hvað á sérstök gerð af loftnetstengi sameiginlegt með Fjármálseftirlitinu ? Með kveðju .Olgeir.





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 41 through 60 (of 239 total)
← 1 2 3 4 … 12 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.