FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Olgeir Engilbertsson

Olgeir Engilbertsson

Profile picture of Olgeir Engilbertsson
Virkur síðast fyrir 9 years, 9 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 181 through 200 (of 239 total)
← 1 … 9 10 11 12 →
  • Author
    Replies
  • 17.06.2006 at 14:20 #554694
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Spurning hvort Kerling og Drottning sé sama varðan . Þorvaldur Thoroddsen getur um beinakerlingu á Kerlingarhnjúk en samkvæmt frásögn í Göngum og réttum af flutningi efnis í kofann Grána í mai 1920 kemur fram orðrétt :"Þó var allgott færi suður Tungnafjall og um Urðarvötn á ís. En þegar kom suðvesturfyrir Drottningu fór að storma á norðan og kólna ". Vonandi kemur pottþétt svar .Kv. Olgeir





    17.06.2006 at 11:39 #554688
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Sælir félagar. Ég fann smá fróðleik um þetta í bókinni Hálendið eftir Guðmund Pál Ólafsson . Þar segir að Bjarni Thoransen skáld hafi gefið vörðunni nafn árið 1833 og annarsstaðar sá ég að nafnið væri til heiðurs Lykla Pétri. Á opnumynd á bls.316-317 er mynd af vörðunni Kerlingu við Urðarvötn við Vatnahjallaveg. Þar heitir Kerlingarhnjúkur .Gæti þetta verið sama beinakerlingin og Jón talar um ? Betri svör við þessum spurningum hljóta að koma frá kunnugum mönnum norðan heiða . Með fróðleikskveðjum Olgeir





    16.06.2006 at 13:02 #554626
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Dómadalsleiðin er enn lokuð en er þur og góð inn að Landmannahelli ,hvergi drulla. Subaru Impresa kom í gær austanað út að Helli og sást þá engin drulla en veit ekki um Fitjarnar. Það er bara beðið eftir heflinum og þeim . Eru að opna aðra vegi. Fannir í fjöllum eru meiri núna en 9. mai 2004. Kv. Olgeir





    11.06.2006 at 13:09 #554238
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Þetta er greinilega flott sýning. Gaman er að bera þessa nútímabíla saman við t.d. Grundarbílinn sem keyptur var 1907 .Hann var 3900 kg.og mátti bera eitt og hálft tonn .Dekkin voru 1.20 metra há það er um 47 tommu massif og á tvöföldu að aftan . Vélin var 9 hestöfl enda gekk þetta ekki upp og bíllinn var seldur úr landi . Kv. Olgeir





    07.06.2006 at 22:16 #554154
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Vegagerðarmenn fóru í morgun að opna .i Laugar Sigölduleiðina fyrst ,síðan í Veiðivötn og Þar á eftir Dómadalsleiðina. Hef ekki frétt hvernig gengur en bleyta var inn við Sauðleysur um helgina hef ég frétt svo að sú leið fær smátíma til að þorna meðan verið er að hefla hinar leiðirnar. Á mánudaginn í síðustu viku var ótrúlega mikill snjór á Reykjadalasvæðinu það sá ég ofan af Heklu. Kv. Olgeir





    02.06.2006 at 23:28 #553624
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Sælir. Ég held að það hafi verið skref afturábak þegar hætt var að vera með hlustum á 2790 í Gufunesi. Ég hef einhversstaðar heyrt eins og Jón segir að Gufunes eða þá Neyðarlínan sé með hlustun á einhverja endurvarpa . Varðandi Almannavarnir þá nær maður mjög óvíða á hálendinu sambandi við endurvarpa þeirra . Ég hef verið í almannavarnanefndinni í Rangárvallasýslu fram á síðustu ár og er með Av.stöð heima .Ég er með handstöð tengda við loftnetið á bílnum og hef verið að prófa inná afrétti og næ nánast hvergi sambandi við endurvarpana Almannavarna .Endurvarpinn í Bláfjöllum gæti gagnast sumsstaðar og svo er næsti á Háfelli austan við Vík .Ég heyri alltaf vel prófanir á kerfinu frá Stykkishólmi og Borgarnesi en ekki öðrum stöðvum á því svæði . Svo ertíðni Alm.varnaendurvarpanna 146150 svo að munurinn er nokkuð mikill miðað við 4×4 kerfið. Þegar Cbið var sem útbreiddast starfræktu deildirnar svonefnd FR radíó sem reynt var að hafa virk allavega um helgar og eins voru svo margir á rás 6 að oft heyrði næsti maður neyðarkall og gat látið það berast áfram. Einu sinni varð slys á Lónsheiðinni og hjálparbeini heyrðist í bát út á sjó og hann kom boðum til Hafnar í Hoenafirði. Með kveðju Olgeir





    26.05.2006 at 21:37 #552988
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Þetta er orðinn góður listi en égvil bæta á hann einni bók sem er lengi búin að vera ófáanleg og heitir Á öræfum eftir Hallgrím Jónasson sem lengi var fararstjóri í ferðum hjá FÍ. Í þessari bók er meðal annars lýsing á fyrstu ferð með bíl vestur yfir Klettshálsinn . Dala Brandur var á Víboninum D 17 og með honum Hallgrímur og mig minnir Einar Magnússon rektor og fleiri . Bara ferðin yfir Klettshálsinn tók sólarhring og var bíllinn á keðjum og á myndum sést að mennirnir héldu við með köðlum niður stalla vestaní.Ég fékk þessa bók lánaða fyrir löngu en hún virðist vera ófáanleg en hún var gefin út 1959 svo að þetta hefur verið áður. Ef einhver veit um þessa bók væri gaman að frétta af því. Bíð enn eftir nýjustu tölum en hún endar á einum og er líklega 761. Kv. Olgeir





    25.05.2006 at 12:43 #552974
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Sælir. Bókin Dynskógar er rit Sögufélags Vestur Skaftfellinga 1997 og er rúmar 300 blaðsíður. Mestur hluti bókarinnar er saga Brands Stefánssonar , Vatna Brands og þar er margt fróðlegt um upphaf bílaaldar á austanverðu Suðurlandi. Í lokin er svo frásögnin af fyrstu ferðum á bílum um Landmannaleið 1946 .Einn af ritstjórum bókarinnar er Björgvin Salómonsson fyrverandi skólastjóri Ketilsstaðaskóla í Mýrdal sími 5681827 .Kv. Olgeir





    24.05.2006 at 21:58 #552964
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Ég held að margir tali um að fara inná Fjallabak og það hugtak nær yfir ansi stórt svæði sem er bara besta mál ,en ég hef ekki heyrt það sem karlkynsorð. Mér finnst Fjallabak ná yfir nokkurnvegin Landmannaafrétt að undanskyldu Veiðivatnasvæðinu ,Skaftártunguafrétt ,Rangárvallaafrétt og jafnvel Emstrurnar . Nafnaruglingur er algengur og til dæmis er farið að kalla Pokahrygg nánast allan Höfðann en nafnið var gefið mjóa hryggnum norðaní þar sem Sigurður frá Laug og fl. hlóðu sandpokunum til að breikka slóðann svo að bíllinn kæmist upp en hann var í hrafntinnuflutningum á 4.áratugnum . Á 7. áratugnum var Guðmundur Jónasson og fl. á ferð í Reykjadölum þegar því var logið að honum að ákveðinn maður hefði farið á bíl nýja leið í Landmannalaugar það er yfir Skalla og niður í Brandsgil. Hann fór svo að reyna þessa leið og var kominn niður bratta brekku sem ekki var fær til baka þegar hann áttaði sig á að í óefni var komið.Hann staflaði svefnpokum og öðru sem til var utanum sig til öryggis og keyrði svo niður snarbratta skriðu. Þegar bíllinn kom niður brotnuðu bæði augablöðin að framan en svo þröngt var milli kletta að bíllinn slapp með naumindum út úr Litla Branndsgilinu .Förin sáust sumstaðar árin á eftir og þessa leið fara menn ekki einu sinni með hest .Það kom grein um þetta ferðalag í Mogganum en ég sé ekki ártalið. Ég er enn að bíða eftir nýjustu tölum en held að 800 sé aðeins of há .Ekki rétt hjá mér að jarðirnar sem ég nefndi hafi farið í eyði 1933. Svartinúpur fór í eyði eftir Kötlugosið um vorið1919 en Búlandssel 1932.Kv.Olgeir





    23.05.2006 at 17:11 #552950
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Sveinn Pálsson læknir og náttúrufræðingur fór í september 1793 frá Hlíðarenda í Fljótshlíð Fjallabaksveg sem Skaftfellingar kalla Norðurveg eins og hann segir orðrétt í Ferðabók sinni .Hann fór inn Fljótshlíð og yfir Hvítmögu á Króknum og yfir Markarfljót einhversstaðar þar fyrir ofan og nefnir áningarstað í Grashaga . Síðan er haldið um Hvanngil og Mælifellssand og þeir rákust á götur austan Hólmsár og komu til bæja í Hemru . Ferðamenn sem komu austan Síðuheiðar fóru gjarnan inná hálendisleiðina nálægt bæjunum Búlandsseli eða Svartanúp sem báðir fóru í eyði 1933 . Björn Gunnlaugsson fór Landmannaleið 1839 og gerði uppdrátt af henni en hún hefur örugglega verið þekkt lengi og til dæmis ráku skaftfellingar sláturfé til Reykjavíkur enda lítið um erfið vatnsföll og víða hagar á leiðinni . Það er svo í seinni tíð sem farið er að kalla þessar leiðir Fjallabaksleiðir og ég er hræddur um að erfitt verði að vinda ofan af þessu héðan af en skýrara gæti verið að nota nafnið Landmannaleið yfir nyrðri leiðina og Fjallabaksveg yfir syðri leiðina . Ferðafélagsbókin 1976 er um" Fjallabakssleið syðri ". Varðandi Víbona er það rétt að þeir elstu voru með millikassa án lága drifs og ég held að 1953 hafi nýja gerðin komið með lága drifið og þá breyttist líka afturhásingin og drifkúlan var aðeins hægra megin en í gömlu bílunum voru jafnlangir öxlar. Milil breyting varð í sambandi við stýrisganginn og lausa fjaðrahengslið sem var að framan færðist og varð að aftan.Húddið opnaðist frá báðum hliðum á eldri bílunum en opnaðist framanfrá eftir breytinguna og margt fleira breyttist sem of langt er að telja upp. Kv. Olgeir





    22.05.2006 at 23:51 #552934
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Sæll Hlynur.Ég er sama sem að telja vörður. Var að tala við mann sem á skrifað um vörðurnar. Afar hans hlóðu þær frá Svartanúpi að Landmannahelli en Guðmundur Árnason í Múla á Landi sá um að hlaða frá Galtalæk inn að Helli. Þetta var víst 1907. Pálmi Hannesson rektor segir í Árbók Ferðafélagsins 1933 að vörðurnar séu 800 en Sveinn á Galtalæk sem er að athuga þetta fyrir mig heldur að þær séu aðeins færri . Svara þessu betur þegar Sveinn kemur heim og finnur frásögnina . Mér finnst nauðsynlegt að láta ekki dragast mikið lengur að hressa við þær vörður sem eru hrundar. Ég fann fyrir nokkrum árum gamla spýtu með afar máðu númeri við heillega vörðu í Svalaskarði sunnan undir Sauðleysunum og fór ég með merkið til Þórðar í Skógum .Vörðurnar voru allar merktar með númerum frá austri til vesturs .Vonandi betra svar fljótlega með kveðju. Olgeir





    22.05.2006 at 14:26 #552912
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Ekki veit ég nógu mikið um allar þessar undirtegundir af Dodge herbílunum en í Neskaupstað er maður sem veit nánast allt um gamla herbíla og á 1942 Víbon og fl. Hann heitir Þóroddur og er með síma 4771618. Fyrir 50 árum var á Hellu rafvirkjabíll sem var Karíol og líktist hann mikið bílnum á myndinni hjá Skúla en þó minnir mig að húddið hafi hallað aðeins meira fram og Karíolinn var á 7.50×16 dekkjum og hærra drifi en Víboninn. Ég á kamb og pinjón úr Karíol og minnir að tennurnar séu 9 á móti 43 eða 4,77. Orginal drif í Víbon er 6 á móti 35 það er 5,83. Fyrsti Víboninn minn var með svokölluðu sjúkrabíladrifi 10 á móti 44 og fartaði meira og mílan var 2,1 km. Mér sýnist bíllinn á myndinni vera alveg eins og bíllinn Ólína sem Páll Arason átti og á þessum virðast vera framdrifslokur. Hinn bíllinn sem Páll átti lengi minnir mig að hafi verið nefndur offiserabíll og var hann fjögurra dyra með blæju. Hvet ég menn að skoða minningabók Páls Arasonar sem út kom hjá Erni og Örlygi 1983. Þar er margt fróðlegt að finna. Það er með ólíkindum hvernig þeim tókst að komast á Gamla Ford upp úr Eyjafirði Vatnahjallaveg 1944. Gaman af svona pælingum Kv. Olgeir





    20.05.2006 at 17:06 #552896
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Sælir . Fyrst var ekið í Landmannalaugar 16.júní 1946 og þar var á ferð Guðmundur , lallaður Mummi frá Feðgum í V- Skaftafellssýslu og voru þeir á Dodge Caiol . Í ágúst um sumarið var hringnum lokað þegar Klausturbræður og fleiri fóru aystanfrá á 2 Víbonum. Meira seinna Kv. Olgeir





    24.04.2006 at 12:43 #550642
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Ég sé að rennslismælirinn í Tungnaá hefur hætt að virka um miðjan dag í gær svo að ekki er von að hann sýni hlaupvatnið úr Skaftárkötlum. Kv. Olgeir





    23.04.2006 at 18:00 #550638
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Rennsli í Tungnaá við Maríufossa er núna ekki nema 65 rúmmetrar á sek. sem er mjög lítið og virðist ekkert hafa vaxið . Ekki veit ég hvað vatnið er lengi á leiðinni frá jöklinum að Maríufossum en hallinn frá jökli og suður fyrir Snjóöldu er mjög lítill. Það væri gott að skoða Hófsvað þegar svona lítið er í ánni . Kv Olgeir





    22.04.2006 at 22:28 #550362
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Einu sinni var ég stoppaður inn við Frostastaðaháls á mínum gamla Víbon og spurður hvort ég væri með lykil ! en ég hef orðið var við að sumir eru ekki með eitt einasta verkfæri. Þetta var að vísu að sumarlagi. Einn kunningi minn sem á Víbon var á ferð á Syðra Fjallabaki fyrir löngu og var með vara drif með sér sem var eins gott því að drifið brotnaði í brekkunni upp úr Kaldaklofskvíslinni .Hún var mjög kröpp og erfið í gamla daga . Þá sagði pabbi hans : Það vantar ekki fyrirhyggjuna í þann dreng . Þetta er nú svona til gamans. Fyrirhyggjukveðjur Olgeir
    Ps. Hann vissi að drifið var lélegt.





    13.04.2006 at 22:27 #548650
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Mér þykir slæmt að hafa slegið inn 3 í staðinn fyrir 4 í hnitinu af Hellinum. Kann bara ekki að eyða þessu þegar búið er að vista það . Vonandi sjá kunnugir í gegnum svona augljósa vitleysu.
    63. gráða N er út á sjó. Það verða örugglega margar flottar myndir að skoða eftir svona góðan dag. Kv. Olgeir





    13.04.2006 at 11:33 #548642
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Hesthúsið er með staðsetninguna N 63,03,173 og V 19,14,457. Nýju húsin og Gilið eru í um 280 metra fjarlægð frá Hesthúsinu nokkuð austan við norður. Afar fallegt til fjalla að sjá í dag. KV. Olgeir





    12.04.2006 at 12:44 #549000
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Sælir. Ég nefndi ekki GÓP síðuna þar sem búið var að benda á hana .Þar er meðal annars mikill og fróðlegur Jökulheimaannáll, en faðir Gísla var nokkur sumur veðurathugunarmaður í Jökulheimum. Ég gleymdi að minnast á ritsafnið Göngur og réttir sem kom út um og fyrir 1950 . Þar er nánast öllu hálendinu lýst af kunnugust og eða ritfærustu mönnum þess tíma . Landmannaafréttur og fl. afréttir á Suðurlandi er í 1. bindi.
    Ég set svo slóð á mjög fróðlega og fjölbreytta síðu Smára og Nínu en þau eru búin að vera með Rútubúðina í Landmannalaugum nokkur undanfarin ár. Þar settu þau inn á annað hundrað gamlar myndir frá mér undir Olgeirs gallerí. KV. Olgeir
    http://www.landmannalaugar.info/Pages/L … garIsl.htm





    11.04.2006 at 23:31 #548992
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Sælir. Það er gaman hvað þið félagar hafið gaman af þessum fróðleik. Ég á næstum allar Árbækur Ferðafélagsins frá upphafi og þær eru margar með góðum lýsingum af hálendinu . Í Árbókum 1950 og 1951 eru lýsingar á fyrstu ferðum á bílum bæði norðan Hofsjökuls og um Vatnahjalla og erfiðri ferð fyrir sunnan Hofsjökul . 1960 er bókin um Suðurjökla , 1976 un Syðra Fjallabak og 1967 um Sprengisand . Í Dynskógum ársriti Vestur skaftfellinga 1997 er saga Brans Stefánssonar ( Vatna Brands ) með afar miklum fróðleik um upphaf bílferða yfir sunnlensk vötn . Fyrsta sérleifisferð hans frá Reykjavík að Klaustri tók 13 tíma. Í seinni hluta bókarinnar er góð lýsing á fyrstu ferð á bílum Fjallabaksleið Nyrðri 1946. Þetta er eiguleg bók. Síðan kom út um miðja síðustu öld fjögurra binda safn af ferðasögum , hrakningasögum og lýsingar ferðaleiða um hálendið . Höfundar voru Pálmi Hannesson rektor og Jón Eyþórsson veðurfræðingur og heitir ritsafnið Hrakningar og heiðavegir. Alveg frábært rit fyrir þá sem hafa áhuga á ferðasögum og fjallaleiðum.
    Ps. Fyrir alla muni að skrifa skýringar með myndunum sem settar eru á síðuna það gefur þeim aukið gild sérstaklega þegar frá líður. Með kveðju Olgeir





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 181 through 200 (of 239 total)
← 1 … 9 10 11 12 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.