Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
04.05.2012 at 15:50 #753739
Hljómar svolítið eins og hedpakkning sé farinn og mótorinn sé að blása lofti í vatnsganginn þegar hann er kaldur.
Ég myndi skoða þetta vel og fá reynslubolta ein og t.d. Kjartan í Guttonum til að kýkja á þetta.
bkv, Viðar
03.10.2011 at 17:28 #737907sæll,
nei ég boraði ekki, lét spacerinn duga 2" á hæð og 62mm ef ég man rétt. Hann var með grófum gengjum til þess að fá snúning turbular effect í inntakið.
ég gerði þessar breytingar allar á sama tíma það sem var hvað skemmtilegast var eftir að hafa forritað með Powerprogramer þá breyttist hljóðið í bílnum og var svolítið eins og heyrist oft í bátum…
bara skemmtilegt 😉
og nokkuð meira afl… ég myndi giska á 25-40 hestar í viðbót.bkv, Viðar Örn
02.10.2011 at 13:04 #73790302.10.2011 at 13:01 #737901Kýkið á þetta spjall.. nokkuð gamalt en eitthvað þar.
https://old.f4x4.is/index.php?option=com … f=6&t=3065
bkv, Viðar Örn
01.06.2009 at 23:38 #648330jú ég kýkti í Part fyrir nokkru og fékk ágæt svör og ábendingar. Það má sjá hjá Summitracing púða sem sem eru ætlaðir sem hjálparpúðar með fjöðrum á mun skaplegra verði en Partur er að bjóða. Ég velti því fyrir mér hvort slíkir púðar séu brúklegir undir fellihýsi.
kv, Viðar Örn
01.06.2009 at 16:00 #204452Sælt veri fólkið,
Hvað loftpúða, lengd og gerð er heppilegast að nota undir létt fellihýsi?
Fellihýsið mitt vigtar ca: 700-1000kg með farangri og ég er að velta því fyrir mér skella púðum undir það til þess að fá meiri mýkt og auðvitað einnig til þess að eiga möguleika á að hækka það upp þegar farið er yfir sprænur.
Er einhver heppilegur linkur á netinu til þess að panta svona dótarí?
Hvað segja reynslubotarnir.. hvað skal varast og hvað hefur komið vel út?
Bestu kveðjur, Viðar Örn
30.12.2008 at 00:01 #203431Sælt veri fólkið,
Ég er að hefja breytingu á Grand Cherokee árg. 2006 með 3,0L Disel vélinni. Ég stefni á að setja undir bílinn 35″ dekk án þess að lækka hlutföll en ég er með „B plan“ að láta 33″ dekk duga ef öll sund lokasta á leiðinni. Til þess að 35″ gangi upp þarf að smíða kanta, sem eftir því sem ég best veit hafa ekki verið smíðaðir áður á þessa árgerð og því væri fróðlegt að heyra hvort aðrir séu í svipuðum hugleiðingum?
Ég er kominn með upphækkunarsett í hendurnar frá Superlift í USA en það er 4″ tommu lift. Þetta verður þá þriðja kynslóð af Grand Cherokee sem ég breyti en ég hef áður átt 87árg á 36″ & 38″ og 98árg á 38″ hvorutveggja bílar sem ég átti í nokkur ár og reyndust mér góðir ferðafélagar yfir hálendið og flesta jökla landsins.
Núna ætla ég að láta mér nægja 33-35″ breytingu til sumarferðlaga ….. eða þannigÞað væri gaman að heyra hvort aðrir séu búnir að spá í svipaðar breytingar á nýja laginu en ég veit af einum sem Kjartan í Mos (Guttarnir) er búinn að breyta fyrir 32,5″ dekk án kanta.
Ég set kanski inn breytingarmyndir eftir því sem verkið vinnst áfram, og ef tími vinnst til, en gaman væri að heyra comment frá öðrum sem eru í svipuðum pælingum.
bkv, Viðar Örn
24.08.2008 at 14:49 #628022Menn eða konur sem haga sér svona tilheyra ekki neinum tilteknum ábyrgum hópi.
Fólk sem hagar sér svona fellur undir fámennan hóp sem er rétt að kalla "Drullusokka". Það vill enginn kannast við þennan hóp en oft er hin ömurlegi félagi "Bakkus" með í för.
Mér finnst líklegt að nú ef og þegar timburmenn sækja að þessum hópi af "Drullusokkum" þá muni skömmin herja á þá og ég get ekki sagt að ég vorkenni þeim sérstaklega þau örlög. Þeir ættu hins vegar að hugsa sinn gang biðjast afsökunar og taka afleiðingum gjörða sinna. Til þess að þeir komist út úr þessum ömurlega félagsskap "Drullusokkunum" ættu þeir að íhuga áfengismeðferð!
kv,
Viðar Örn, (Jeppamaður, skotveiðimaður, golfari, námsmaður og fl. .fl.)
28.02.2008 at 22:37 #614026Ég hef lent í þessu með eldri gerð af Jeep Cherokee, og þá var málið Crank sensor. Ef ég man rétt gaf talvan ekki bilunarkóða á hann.
Ég myndi reyna fá slíkann sensor lánaðann og prufa skipta honum út.
kv,
Viðar Örn
28.02.2008 at 00:52 #615450náði að redda þessu með að setja inn 2-4 línur í einu og breyta síðan ..
Takk samt
kv,
Viðar
28.02.2008 at 00:19 #201969fæ alltaf þessa villu? hvað er til ráða?
MySql.Data.MySqlClient.MySqlException: You have an error in your SQL syntax. Check the manual that corresponds to your MySQL server version for the right syntax to use near ‘breyttur Jeep Grand Cherokee Laredo tilbúinn á fjöll.
„, 0, 3)
at MySql.Data.MySqlClient.PacketReader.CheckForError()
at MySql.Data.MySqlClient.PacketReader.ReadHeader()
at MySql.Data.MySqlClient.PacketReader.OpenPacket()
at MySql.Data.MySqlClient.NativeDriver.ReadResult(UInt64& affectedRows, Int64& lastInsertId)
at MySql.Data.MySqlClient.CommandResult.ReadNextResult(Boolean isFirst)
at MySql.Data.MySqlClient.NativeDriver.SendQuery(Byte[] bytes, Int32 length, Boolean consume)
at MySql.Data.MySqlClient.MySqlCommand.GetNextResultSet(MySqlDataReader reader)
at MySql.Data.MySqlClient.MySqlCommand.Consume()
at MySql.Data.MySqlClient.MySqlCommand.ExecuteNonQuery()
at CastorMedia.Data.MySQL.Connection.ExecuteNonQuery(String Command)
at CastorMedia.Webs.f4x4.Web.Contents.AdsEditForm.AdsEditForm_Save(Object sender, SavingEventArgs e) in H:DataSrcf4x4f4x4.is
ew_codecontentAds.vb:line 582at CastorMedia.Web.UI.Forms.EditForm.OnSave(Object sender, SavingEventArgs e)
at CastorMedia.Web.UI.Forms.EditForm.LoadFromRequest()
at CastorMedia.Webs.f4x4.Web.Contents.Ads.GetEdit(Row r, Ad Ad) in H:DataSrcf4x4f4x4.is
ew_codecontentAds.vb:line 395at CastorMedia.Webs.f4x4.Web.Contents.Ads.ToString(String Space) in H:DataSrcf4x4f4x4.is
ew_codecontentAds.vb:line 44at CastorMedia.Webs.f4x4.Web.UI.Page.WriteContent(String Space) in H:DataSrcf4x4f4x4.is
ew_codePage.vb:line 81
24.01.2006 at 15:34 #539832Sæll Loftur,
Ég þekki þetta og er búinn að vera með þetta forrit í Gandinum hjá mér síðast liðið ár.
Þetta svín virkar…en hann eyðir meira bensíni í staðinn!
Þú getur líklega ekki stillt sjálskiptinguna, ég gat það allavegana ekki.
Hér er þráður þar sem þetta var örlýtið rætt.
https://old.f4x4.is/new/forum/?file=bila … ingar/3175
Þér er velkomið að hringja í mig ef þér vantar meiri upplýsingar.
kv,Viðar s-863 4649
17.02.2005 at 09:40 #517216Sæll,
Ef ég man rétt þá er lögninn 2,1/4" frá og með hvarfakútnum en þrengist niður í 2 " aftast. Það er líklega nóg ef þú ætlar ekki að setja flækjur að taka hvarfakútinn úr setja opna túpu 2,1/2" í staðinn og opnara púst eftir það.
Það sem ég gerði var að setja túpu og strax á eftir henni opinn Túrbó kút og 2,1/2" rör til að vega uppá móti í þenginum í beygjum. Ég vildi ekki fara í opnara púst þar sem það myndi framkalla óþarfa hávaða án þess að gefa mér neitt í staðinn. "aðrir kunna að hafa aðra skoðun á þessu."
kv,
Viðar
24.01.2005 at 16:56 #514544Sæll,
Ef þú ert með Usb breitir á milli Gps og tölvu, þá er þetta þekkt vandamál. Einfaldasta leiðin til að losna við þetta er að ræsa tölvuna fyrst og síðan Gpsið. Það sem skeður er að tölvan les aðskotahlutinn sem mús sé hún ræst upp á eftir Gpsinu.
kv,
Viðar
06.12.2004 at 15:02 #498869Fjölblossakerfi?
Nei ég hef ekki skoðað það. Ertu að tala um sambyggt kveikjulok og háspennugjafa?
Hvað á það að skila miklu?
kv,
Viðar
06.12.2004 at 14:09 #498861Sæll Fastur,
Nei ég er ekki með bekk og hef ekki gert vísindalega mælingu á hestöflunum. Hinns vegar má skoða kúrfuna og torkið hjá Hypertech. http://www.hypertech.com/index.html
Tölvuforritarinn ætti að kosta hingað kominn Ca: 30-32þ með vaski en ég þurfti ekki að borga toll né vörugjöld.
Líklega er best að kaupa beint frá Hypertech þar sem ég þurfti að senda hana út til uppfærslu en það kostaði mig 9þúsund í flutingsgjöldum.Ég tel við fyrstu prófun tölvan vera fyllilega peninganna virði!
kv,
Viðar
05.12.2004 at 18:36 #510354Takk fyrir þetta strákar!
Ég ætla að kýkja á þessa staði.
kv,
Viðar
05.12.2004 at 02:19 #498849Jæja, Ég er búinn að fjárfesta í þessari tölvu og viti menn …. MEIRA afl! lauslega áætlað 10 hross í viðbót og torkið fer úr 182 (ft.-lbs) í 199 miða við 2690rpm.
Með þumalinn á lofti má gefa sér að hestarnir séu orðnir 220+ (flækjur,spacer undri loftinntak, KN sía, opnara púst og fl. smálegt.
Klæjar í tærnar að prufa þetta í snjó!
kv,
Viðar
05.12.2004 at 02:08 #194995Sælt veri fólkið,
Getur einhver upplýst mig hvort aðrar verslanir en BYKO selji 12V Fini loftdælur? Byko hafa ekki átt þær til í meira en mánuðu og ekki á hreinu hvort þeir fái þær aftur.
kv,
Viðar
02.11.2004 at 13:05 #194778Sælt veri fólkið,
Hver er reynsla manna af léttmálmsfelgum. Þá er ég að tala um felgur eins og t.d. Weld Racing. Ef ég hef rétt eftir sérstakur málum í svona felgum. Eru þær að láta undan í tíma og ótíma? eða bara þegar ekið er Á eitthvað?
Það væri gaman að fá álit þeirra sem hafa verið að nota svona felgur til vetrarferða.
Kv,
Viðar
-
AuthorReplies