You are here: Home / Villhjálmur Halldórsson
![]() |
FERÐAKLÚBBURINN 4X4 |
|||
Menu |
Það er talað um að þessar 6 milljónir á viku fari í aukinn kostnað vegna gæslu á svæðinu, bæði lögreglu og björgunarsveita. Lögreglan er á launum þarna þannig að þetta fer ekki allt í eldsneytiskostnað björgunarsveitanna.
Grímur, þú ert velkominn á hvaða flugeldasölustað Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem er um næstu áramót og við skulum glaðir strauja kortið þitt án þess að afhenda þér púður í staðinn. Þú værir ekki sá fyrsti.
Svo er líka hægt að gefa áheit til félagsins eða einstakra eininga þess hér http://www.landsbjorg.is/Styrkja.aspx?catID=139&unit=3
Annars finnst mér þetta að flestu leiti fín og gagnleg umræða og ég efast ekki um að björgunarsveitirnar taka margar ábendingar og athugasemdir sem hér hafa birst til skoðunar. Ég veit að mín sveit mun gera það.
Vilhjálmur Halldórsson
Björgunarsveitinni Ársæli
Þetta eru þetta nokkuð háar upphæðir og því veltir maður fyrir sér hver kostnaður klúbbsins sé af hinum nýja Tetra-samningi? Og í framhaldinu hvort rétt sé að spara þessar háu upphæðir og segja upp þeim VHF-tíðniheimildum sem klúbburinn hefur og færa fjarskipti hans alfarið yfir á Tetra á einhverjum tímapuntki í framtíðinni EF og með mikilli áherslu á EF í ljós kemur að dekkun Tetra sé ásættanleg?
[img:2nxqcbhk]http://www.112.is/media/tetra/large/120_Tetra_sendar_12sept2007_70_2.JPG[/img:2nxqcbhk]
Þetta er mynd af útbreiðslu TETRA 12. september sl. Ég er nokkuð viss um að einhverjir sendar hafa bæst við síðan þá og fleiri munu bætast við, t.d. Grímsfjall ef mér skjátlast ekki.