Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
01.04.2009 at 23:01 #643766
Sex-í á plani Súkka er
sökum hjóla sinna.
Fórum fokking því er ver
fyrsta apríl að finna.
12.10.2005 at 10:31 #52910401.02.2005 at 01:41 #514966Sælir
Ég er að byrja minn fyrsta vetur á sjálfskiptum bíl, hef alltaf verið á beinskiptum.
Þegar ég var að breyta bílnum reyndi ég að verða mér um upplýsingar hvernig væri best að ganga frá þannig að ekki yrðu hitavandamál. Allir sögðu vertu bara með nógu stórann kæli. Síðan heyri ég af fræknum fjallajeppa, sjálfskiptum sem fer á verkstæði sem er frægt fyrir að þjónusta skiptingar og þeir segja að það sé of stór kælir fyrir skiptinguna, að hún nái aldrei að hitna nóg til að vera á réttu vinnsluhitastigi! Mér fannst þetta rökrétt, þó ég hafi ekkert vit á skiptingum því setti ég skiptiloka, nota kælirinn í vatnskassanum þegar ég er í venjulegum akstri og aukakælirinn þegar ég er í ferðum. Reynslan sýnir nú að ef ég er í venjulegum akstri og er á aukakælinum hitnar skiptingin ekkert, ef ég nota orginal kælirinn í vatnskassanum er hitinn á normal. Ég veit ekki hvort það kemur niður á endingu skiptingarinnar ef hún er alltaf of köld, en hún öll mýkri og skiptir sér betur ef hitinn er normal.kv
01.02.2005 at 00:27 #512778Sælir!
Það er mjög fín leið að fara niður Kaldbaksdalinn og koma niður á Öxnadalsheiði. Sleðamenn nota þessa leið mikið og þar sem sleðamenn þola ekki slóðir eftir jeppa, finnst mér upplagt að fara þar niður með sirka 200 bíla…..kv
25.01.2005 at 23:13 #512756Við erum hérna nokkrir norðanmenn sem vilja aldrei sleppa góðu veseni, sérstaklega ef það er vel skipulagt.
þá erum við að hugsa um að gista norðan jökuls og slást svo í hópinn á laugardeginum og renna með ykkur í grillið undir bláhimni.
kv
02.09.2004 at 02:00 #194593Sælir
Veit einhver með vissu hvort það eru sömu hlutföll í lágadrifinu á bensínbílnum 2,4efi og dísel 2,4
kv
30.03.2004 at 00:38 #491700Súrefnisskynjarinn gefur spennumerki inn á tölvuna, 0-1 volt
Ef spennan er í kringum 0,5 volt er besínblandan rétt inn á vélina, ef spennan er 0,2 volt eða minna er blandan of veik, 0,8 volt eða meira og blandan er of sterk.
Í þínum bíl gæti verið 4 víra skynjari og þá er í honum hitari, þannig að hann á gefa
nokkuð rétt boð eftir að sett hefur verið í gang.
Í 2,4efi 4runner er plugg fram í húddi þar sem hægt er að mæla skynjarann, veit ekki
hvort svoleiðis er í þínum, til þess að finna úr því þarftu teikningar.kveðja
30.03.2004 at 00:38 #498787Súrefnisskynjarinn gefur spennumerki inn á tölvuna, 0-1 volt
Ef spennan er í kringum 0,5 volt er besínblandan rétt inn á vélina, ef spennan er 0,2 volt eða minna er blandan of veik, 0,8 volt eða meira og blandan er of sterk.
Í þínum bíl gæti verið 4 víra skynjari og þá er í honum hitari, þannig að hann á gefa
nokkuð rétt boð eftir að sett hefur verið í gang.
Í 2,4efi 4runner er plugg fram í húddi þar sem hægt er að mæla skynjarann, veit ekki
hvort svoleiðis er í þínum, til þess að finna úr því þarftu teikningar.kveðja
26.03.2004 at 14:11 #501337Alls eingin tilviljun.
Þess skal getið fyrir þá sem þarna verða á ferðinni, að það getur verið varasamt að keyra aftan við Raminn nema í hæfilegri fjarlægð og þá á stöðugum bílum, það höfum við norðanmenn lært.
Bíllinn er að setja þjófavarnakerfi í gang í næsta nágrenni, og nú síðast í gærkvöldi slitnað bílskúrshurðin af hjörum þegar það var ræst inn í skúr.
26.03.2004 at 14:11 #494046Alls eingin tilviljun.
Þess skal getið fyrir þá sem þarna verða á ferðinni, að það getur verið varasamt að keyra aftan við Raminn nema í hæfilegri fjarlægð og þá á stöðugum bílum, það höfum við norðanmenn lært.
Bíllinn er að setja þjófavarnakerfi í gang í næsta nágrenni, og nú síðast í gærkvöldi slitnað bílskúrshurðin af hjörum þegar það var ræst inn í skúr.
23.03.2004 at 00:38 #492790Sæll Palli
Það var auglýstur 4runner hérna á síðunnu um daginn, eigandinn á 3L vél sem hann er til í að láta fylgja með, væntanlega vill hann selja hana.https://old.f4x4.is/auglysingar/lesa.asp?a=12882
23.03.2004 at 00:38 #500049Sæll Palli
Það var auglýstur 4runner hérna á síðunnu um daginn, eigandinn á 3L vél sem hann er til í að láta fylgja með, væntanlega vill hann selja hana.https://old.f4x4.is/auglysingar/lesa.asp?a=12882
20.02.2004 at 17:25 #48946820.02.2004 at 17:25 #49593109.11.2003 at 19:48 #479982Sæll
Athugaðu EGR ventilinn, hann er ef mig minnir rétt vinstra megin aftarlega á vélinni.
Með tímanum sest í hann sót og hann stendur á sér.
Ég fékk svipaðar gangtruflanir og þú lýsir. Þá skóf ég úr honum og hreinsaði með töfraefninu WD40, athugaðu líka hvort það sé ekki nóg vatn á vélinni, annars geta hitaskynjarar verið að rugla.kv
21.09.2003 at 19:20 #47657023.03.2003 at 01:28 #459976Sælir
Innheimta skálagjalda í fjallaskálum hefur lengi verið vandamál. Þannig er einnig hjá okkur í skála 4×4 Eyjafjarðardeildar Réttartorfu.
Þegar gestabók hefur verið lesin og síðan opnaður baukur fyrir skálgjöld verða menn súrir.
Hverjir borguðu og hverjir borguðu ekki? Til að sjá út úr því útbjuggum við umslög.Þeir sem gista og borga, setja greiðsluna í umslag og skrifa nafnið sitt á umslagið.
Þeir sem ekki eru með peninga meðferðis, sem er mjög algengt í dag, skrifa nafn og heimilisfang á umslagið, setja það tómt í baukinn og fá síðan sendan gíróseðil. Einfalt og ætti að virka vel.Þetta held ég að sé eina leiðin til að fá innheimt skálagjöld frá þeim sem ætla sér yfirleitt að borga.
Þegar svona kerfi er haft til grundvallar, geta menn sent gíróseðill á þá sem skrifa í gestabók en ekki skila inn umslagi. Því skulum við hvetja alla til að skrifa í gestabókina.
Kveðja
P.S. Þess skal geti að skáli 4×4 við Réttartorfu er opinn allt árið.
25.11.2002 at 20:03 #464598Sæll Atli
Við fórum á Langjökul á sunnudag. Færið á jöklinum er gott, en fremur snjólítið ennþá. Við fórum upp hjá þjófakrókum. Þegar við nálguðumst Þursaborgir lentum við í nokkrum sprungum og verður að teljast nokkuð varasamt að vera þar á ferð, þar sem einungis þunn snjóþekja er yfir sprungum. Við vorum einnig á ferð þarna fyrir 2 vikum og þá opnuðust sprungur á leiðinni upp frá Þjófakrókum.Kveðja
Sjá myndaalbúm arnor, blámi
21.11.2002 at 13:04 #464460Í 2,4 EFI er hægt að lesa úr tölvu bílsins (ECU) bilanacoda ef Check Engine ljósið hefur blikkað. Tengja þarf saman tvo víra í pluggi sem er á vinstar innra brettinu og síðan er svissað á bílinn. Check Engine ljósið blikkar, fjöldi blikka segir til um bilanacoda. Upplýsingar um bilanacoda er hægt að sjá í Haynes bókinni. Ef bíllinn gengur hægaganginn illa, er líklegt að hann fari ekki í hægagangsrofann (Throttle position sensor) og það þurfi að stilla hann. Hvernig rofinn er stilltur er sýnt í Haynes. Ég hef lent í gangtruflunum í mikilli bleytu og krapa, samt var vélin þurr og allt í lagi með leiðslur og kveikju. Það sem ég held að gerist sé að það verði útleiðsla í rafkerfinu, sem tengt er tölvunni og þá finnst mér líklegast tengingar og lagnir að bensíndælunni, en hún er í bensíntanknum.
Kveðja
-
AuthorReplies