Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
13.11.2009 at 20:27 #666504
Takk kærlega fyrir þessi svör og ég á örugglega eftir að nýta mér þjónustu ykkar einhvern tíma.
Málið er það að ég get fengið svona beygjutjakk fyrir lítið en hann beygir bara í 90°, ég hef heyrt að það sé hægt að notast við svona tjakk ef rörin eru fyllt af sandi og þannig komið í veg fyrir að þau leggist saman.
það fylgja nokkuð margar stærðir af klossum með eða frá 3/4" og uppí 2"
Kveðja Viggi
13.11.2009 at 09:35 #208242Sælir, mig langar að vita hvernig rörabeygigræju maður þarf að nota til þess að vera öruggur um að komast í gegnum öryggistékk hjá torfærunni.
Er svona græja ekki nógu góð eða beyglar hún rörin í staðinn fyrir að beygja þau.
Er kannski hægt að leigja alvöru græju til að beygja rör einhversstaðar?
Látið í ykkur heyra
Kveðja Viggi
07.02.2009 at 09:37 #203762Sælir herramenn,
Er einhver hérna sem getur sagt mér frá kostum og göllum við patrol hásingar og hugsanlega hvernig patrol hásingar eru í samanburði við dana hásingar. þ.e. hvort patrolinn sé nær dana 44 eða 60 í styrk.
er einhver ákveðin árgerð af patrol hásingum sem er betri en önnur.
ps. fer fram á að farið sé með þessa spurningu sem leyndarmál þar sem ég er svarinn ameríkumaður hvað jeppa varðar
kveðja Vignir
19.01.2009 at 09:28 #203592Er einhver hérna sem getur frætt mig um hásingarnar undan G bensanum, nánar tiltekið GD 240 árgerð 1986-87? Eru þær sterkar eða lélegar, í samanburði við t.d. Dana 44 og 60.
Þær koma orginal með barkalæsingu.
22.11.2006 at 22:18 #199026Sælir.
Ég var nýlega beðinn um að aðstoða við legu og pakkdósaskipti í 1992 árgerð af patrol. Mig langar að vita hvort það þurfi einhver sérstök verkfæri eða hvort þetta sé eitthvað sérlega flókin aðgerð. Ég hef nefnilega oft skipt um legur í hásingum með opnum liðhúsum en aldrei með lokuðum.
Öll svör vel þegin
Kveðja Vignir E-1816
25.09.2006 at 19:37 #198617Nú þegar Kvikmyndahátíð í Reykjavík er að koma þá er sérstök ástæða til þess að biðja menn um að hugsa vel um bílana sína vegna þessarar myrkvunar sem á sér stað og gefur títt nefndum Patrol þjófum prýðis gott skjól til að sinna sínu.
Hálftíma myrkvun á Reykjavík getur nefnilega haft ýmislegt meira í för með sér annað en að fólk fær að sjá stjörnurnar.
Með von um þjóflausa myrkvun, Vignir
25.08.2006 at 08:19 #558562Það gildir náttúrulega einu hvort um er að ræða slóða af einföldustu gerð eða þjóðveg 1, sá sem byggir veginn telst rétthafi hans sama hversu ódýr vegurinn er.
Og ég bý nú í sveit og hef oftar lent í því að ferðafólk sýni fulla tillitssemi en einnig eru menn sem ekkert virða. Til dæmis koma menn á bílum sínum og leggja þeim þvert á túninu heima og æða á vélhjólum um fjörur og móa án þess að tala við nokkurn mann.
25.10.2005 at 21:33 #529934Þakka ykkur fyrir svörin.
Hrólfur já er búinn að finna hásingar. þarf bara að snúa framhásingunni og setja allt draslið saman smíða púst og hendast í skoðun
25.10.2005 at 21:04 #196516Segið mér nú er hægt að taka eitt sett af 15 tommu 5 gata felgum og taka miðjurnar úr og græja síðan 8 gata miðjur í þessar felgur?
Vignir E-1816
26.06.2005 at 21:52 #524478Sæll Hrólfur, nei ég var ekki búinn að tékka á hásingunni hans Unnsteins en ég geri það núna.
Núna er ég að rífa boddýið af og er að fara að mála vélina og grindina.Þetta verður sko alvöru jeppi
kveðja Viggi E1816
23.06.2005 at 23:14 #524470Dana 60 er einn kostur en ég er ekki til í að splæsa í hásingar fyrir 2-400000 þegar ég fæ Unimog hásingar ódýrt og þær eru sterkari.
Og mótorinn er öflugur og stefnir í tæp 500 hestöfl með tímanum
Vignir E1816
23.06.2005 at 22:16 #196060Jæja nú er komið að næsta veika hlekk í Bronco keðjunni. Ég er kominn með 460/C6/NP205 og með mjög sterka 9 tommu afturhásingu en með orginal dana 44 að framan.
Spurt er: get ég gert eitthvað við þessa framhásingu til að vera nógu sterk eða á ég að finna mér unimog hásingar sem mig langar reyndar soldið til
ef það kann kannski einhver eitthvað patent ráð til að styrkja hásinguna þá lát heyra.
Vignir E 1816
12.04.2005 at 08:44 #520902Þakka ykkur fyrir en þetta gekk alveg vonum framar.
ps ég á ágætis plastframbretti 2 sett (annað 38"kantar hitt 35") og eitt plastafturbretti
Kveðja Vignir E-1816 868-6230
11.04.2005 at 12:17 #520890Hann eyðir öllu sem á tankinn er sett.
En svona í alvöru held ég að eyðslan verði á bilinu 20 og uppúr eftir aðstæðum. Það er ekki komin nein marktæk reynsla á það en ég setti á hann 40 lítra og þeir dugðu svona 100 kílómetra þar meðtalið kílómetrar í miklum snjó á jöklinum.
En hamingjustigin finnst mér vera mikilvægari en eyðslan og hamingjustigin eru mörg með þessari vél.
Kveðja Vignir E-1816
11.04.2005 at 09:41 #195814Nú mega hinir vantrúuðu þagna vegna þess að PlastBroncoinn með 460 innanborðs fór í jómfrúarferðina upp á Snæfellsjökul um helgina og svínvirkaði.
Ekki töpuðust neinir vökvar eða annað þesslags og var allt að virka vel. Hann flaut líka mjög vel.
Kveðja Vignir E-1816
25.03.2005 at 20:59 #519722Þetta virðist vera sama sagan með flesta Bronco bíla að í hverju fríi eigandans er allt rifið og sett saman aftur.
Minn er í pörtum en er að skríða saman smátt og smátt var að setja 460 í hann og er að lenda í smávandamálum t.d. vantar núna vatnskassa sem passar. En vonin er samt að allt komist í gang um leið og vatnskassi finnst.
Kveðja Vignir E-1816
ps. Ef þið vitið um stórann vatnskassa sem er með efra rörinu farþegameginn og neðra rörinu bílstjóramegin þá megiði láta vita í síma 868-6230
25.03.2005 at 11:44 #519716Það mættu fleiri vera duglegir að setja inn myndir af Bronco fákunum sínum á netið svo að við hinir smituðu getum skoðað myndir hjá sem flestum og fengið hugmyndir og breytingar að láni. Einnig á ég slatta af varahlutum ef menn vantar m.a. eina fljótandi 9"
en endilega að benda á myndir af fleiri Bronco fákum.
ég reyni allavega að vera duglegur við að setja inn myndir af mínum
Kveðja Vignir E-1816
24.03.2005 at 17:19 #519710Það er ekki mikið basl að kippa þessu af en erfitt ef maður er einn af því að innri brettin eru soldið fyrirferðamikil og festast gjarnan í grindinni en ekkert mál að kippa af ef það eru tveir við það.
En hvað varðar vinnuaðstöðu í vél og öðru frammí þá er þetta alveg frábært.
Kveðja Vignir E-1816
24.03.2005 at 14:34 #195739Oft er talað um slæma þjónustu hérna og er þá hinum og þessum úthúðað en nú vil ég þakka mjög góða þjónustu.
Ég fór með tvö drifsköft í styttingu og lengingu sem er í sjálfu sér ekki í frásögur færandi nema að ég borgaði bara fyrir lengingu og styttingu en sköftin voru tekin og smurð alveg frá a til ö og allt gert alveg frábærlega.
Ég vil þakka Stál og Stansar Fjallabílum fyrir frábæra þjónustu.
Kveðja Vignir E-1816
15.03.2005 at 18:53 #518400Vélaskiptin fóru fram eins og Villi litli sagði í vélaskemmunni á Ölkeldu í Staðarsveit á Snæfellsnesi en ég og bíllinn erum yfirleitt staðsettir á Tröðum í sömu sveit.
Já þetta gekk bara vonum framar og ekki skemmdi bjórinn fyrir
-
AuthorReplies