Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
27.12.2007 at 12:15 #607826
Veit ekki hvort þetta dugar en rakst á þetta við leit á Google http://www.onlinefreeebooks.net/automot … s-pdf.html
Ég er ekki búinn að skoða þetta.
kv. Valur
23.11.2007 at 20:43 #581438Var að spá í að vera með í þessari pöntun hjá þér síðast en ákvað að bíða aðeins með það.
En það er eitt sem ég hef verið að velta fyrir mér er í sambandi við hita eða réttara sagt hitaleysi þeirra.
Einhver var að tala um að þessi ljós hitni ekki nóg til að bræða snjó og klaka af þeim. Er þetta rétt og er maður þá ekki í vandræðum ef það sest snjór á ljósin?kv Valur
21.11.2007 at 08:39 #602030Sennilega misfarist eitthvað pósturinn um að ég kæmist ekki með. Eftir að ég skráði mig var okkur hjónunum boðið á tónleika með Kim Larsen sem eru á laugardagskvöldinu.
Það kemur tími seinna til að prófa nýju dekkin.
20.11.2007 at 18:50 #604132Ætla að fara að versla mér tóg í bílinn og fór að leita á 4×4 vefnum og fann þar hvar ég á að kaupa hann en einnig fann ég myndir af öryggislínu sem mér finnst nauðsynlegt að vera með. Það eru myndir frá Lárusi Rafni um hann. Hér er slóðin.
[url=http://www.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=skyrinarmynd/4811:8rj6kdek][b:8rj6kdek]Öryggislína[/b:8rj6kdek][/url:8rj6kdek]
11.11.2007 at 14:53 #602842Það stendur allavega að þetta séu Bias dekk.
Valur
10.11.2007 at 20:39 #602638Þetta er ekki Wrangler heldur Grand Cherokee SRT8 og hér er auglýsingarmyndband um hann.
Valur
[url=http://www.dcxmediaservices.com/videoptrs/wms/dctv/DCTV/Dec05/jeep_birds_hi.wvx:1eu6djix][b:1eu6djix]SRT8[/b:1eu6djix][/url:1eu6djix]
05.11.2007 at 07:28 #601876Var að fá mér 35" (35×13.5-15) dekk frá Toyo sem Bílabúð Benna er að selja og eru þau mun stærri en 35" dekkin sem ég var með undir allavega þarf ég að klippa svolítið mikið úr. Reyndar mest að framan því þau eru á breiðari felgum en fyrri dekkin sem voru undir, en einnig að aftan.
Hef bara hleypt úr í 10 pund þannig að það er engin reynsla komin á úrhleypingar.Kv Valur
29.10.2007 at 23:46 #598902Það var verið að tala um það hér á þræðinum að gjaldið fyrir VHF hafi verið flutt frá félagsmanni og yfir til félagsins.
Hvernig stendur þá því að ég er að fá reikning upp á 2500 kr frá Póst og Símamálast núna fyrir afnotagjöld af VHF stöðinni sem ég er með í bílnum.Valur M
23.10.2007 at 23:19 #600766Takk fyrir þetta
Nú er bara að byrja á að breyta ferlunum.
Valur
23.10.2007 at 20:31 #201029Sælir félagar
Er í smá vandræðum með ferla sem ég tók um helgina er ég fór frá Jökulheimum inn í Gæsavötn og svo þaðan norður fyrir Hofsjökul inn á Kjöl.
Ég var með GPS tækið (garmin astro sama og 60csx) gangandi alla helgina sem ég var á keyrslu og ef ég stoppaði í smá tíma á einhverjum stað byrjaði tækið á að ferla upp á nýtt. Var ekkert að skoða ferlana fyrrr en ég kom heim.
Hvernig tek ég af einni ferlaslóð og set inn á aðra. Var að reyna þetta inn í Mapsource og get þetta þar en það tekur bara svo rosalega langan tíma að taka alltaf 1 punkt frá einni slóð og setja inná aðra slóð.Valur Marteinsson
16.10.2007 at 23:48 #200986Er að hugsa um að hækka bílinn hjá mér á body um 8 cm og vantar smá upplýsingar.
Hvar fæ ég efni í klossana og það sem til þarf? Þarf maður að athuga með meira en að lengja stýrisöxul, lækka vatnskassa, lengja í eldsneytislögnum upp í tank, og losa bremsulagnir og allar lagnir sem tengjast vélinni?
Hvernig er með gírstangir?Valur M
16.10.2007 at 09:23 #200978Ég þarf að breyta L200 bíl sem ég vegna þess að ég keypti ný 35″ dekk og setti þau á 12″ breiðar felgur sem ég átti. Bíllinn var á 35 fyrir. En þessi dekk sem ég keypti eru 35×13,5×15 þ,e, tommu breiðari ef ekki meira og einnig eru þau hærri en hin sem voru fyrir. Þannig nú er spurning hvort best sé að klippa meira úr fyrir nýju dekkjunum eða hækka á body. Ég ætla að hafa hann á 35 í vetur og ef allt verður ómegulegt með það þá fer ég sennilega í 38 næsta sumar.
Með von um ráðleggingar.
Valur M
27.09.2007 at 09:38 #200868Mig vantar ráðleggingar í sambandi við loftinntak á L200 2005 árgerð. Er ekki ráðlegt að breyta loftinntakinu? Það er núna tekið úr frambrettinu. Bílinn er 35″ breyttur
Með von um fljót og góð svör.
Valur Marteinsson
16.09.2007 at 23:02 #597208Í dag myndi maður sennilega segja að maður væri frá Fjarðarbyggð en þegar ég fór suður hét staðurinn bara Reyðarfjörður.
Ég geri ráð fyrir að þú sért Benedikt (Binni) sem bjó í húsinu fyrir ofan Gröf er það ekki rétt munað hjá mér?
Með kv
Valur
16.09.2007 at 22:52 #597198Var að setja inn mínar fyrstu myndir og veit ég að það vantar upplýsingar með mörgum myndum sem ég setti inn vegna þess að ég þekkti enga sem voru á þessum myndum og setti inn bara staðsetningar við flestar fyrstu myndanna en ekki þær sem komu á eftir.
Er alveg sammála að það er miklu skemmtilegra að skoða myndir þar sem texti fylgir.
En með það sem ég sagði fyrst með það að setja inn margar myndir var aðalega vegna þess að ég setti bara inn 1 mynd fyrst og hélt að ég þyrfti að senda hana inn á vefinn og svo endurtaka það. En þegar ég fór að setja inn fleiri myndir setti ég þær inn og skrifaði við þær texta og sendi þær allar í einu á netið.
En það væri samt fljótlegra að geta notað CTRL við nokkrar myndir í einu en skiptir ekki höfuðmáli
Þannig að þetta var aðallega kunnáttuleysi hjá mér.Með kveðju
Valur
15.09.2007 at 23:52 #200799Er ég nýbúinn að fá mér VHF stöð og setja hana í bílinn minn og fór í ferð með hana núna í dag upp á fjöll og lét hana scanna (leita) á 4×4 rásunum en varð að hætta því vegna þess að túrista hópar voru að nota rásirnar fyrir leiðsögu yfir í aðra bíla. Fyrst var einhver kvenmaður sem talaði spænsku á Reykjanesinu og svo seinna var annar hópur sem einokaði rás 47 er ég var á leiðinni austur fyrir fjall. Þetta skánaði reyndar aðeins er ég fór að fikta í stöðinni og fann að ég gat lokað á rás 47.
Það sem mig langaði að vita hvort túristahópum sé leyfilegt að nota þessar rásir okkar til leiðsögu. Þannig að ef það eru margir hópar sem eru á ferðinni þá eru nú rásirnar okkar fljótar að teppast, svipað og umferðin í höfuðborginni.
Valur Marteinsson
15.09.2007 at 23:13 #200798Gat bara sett inn eina mynd í einu á vefinn.
Er ekki hægt að setja inn nokkrar í einni færslu?
Valur
25.08.2007 at 23:44 #595386Greinilega mismunandi eftir umboðum. Konan á polo sem gírkassinn fór í og var hann keyrður um 60000 km og 4 til 5 ára þegar það gerðist. Fór með hann í Heklu og þeir sögðu ekki það ekki eðlilega endingu og settu annan kassa í mér að kostnaðarlausu.
25.08.2007 at 13:12 #200689Sælir félagar
Sá síðu þar sem þar sem er verið að ræða um nýtt skíðasvæði. (http://photo.blog.is/blog/photo/) Mig langar að vita er vegur þarna fyrir, frá línuveginum við tjaldafell og á milli Þórisjökulls og Geitlandsjökulls og niður á Kaldadalsveg. Var að leita að þessu en sá engan veg eða slóða á kortum.
Kv Valur
17.08.2007 at 11:15 #592820Er að spá í þetta tæki og athugaði með senditíðnina á því. Sent er á 151.82 – 151.88 – 151.94 – 154.57 – 154.60.
Eru þessar tíðnir notaðar hér.
Þeir sem eru inni þessum málum gætu kannski svarað því.
-
AuthorReplies