Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
27.04.2007 at 23:46 #589522
Pattinn er jú með drifkúluna hægra meigin .
Þyngdarmunurinn er talsverður . Hef heyrt allt að 100 kíló ! hvað Toyotan er þyngri .
Millikassarnir eru líklega með sama hlutfall , eða 2:02
Mig minnir að Toyotan sé með 24 volta start , annars 12 volt .
Pústið er hægra meigin í Toyota , V.M í Pattanum .
Vatnskassinn er öfugur , allavega ofan .
Það þarf helst að boddýhækka um 50 mm
‘Eg held að þetta verði að teljast all veruleg aðgerð .
27.04.2007 at 19:55 #589516sælir .
‘Eg veit ekki hvað þið kallið mikið eða lítið mál . ‘Eg hef metið þetta útfrá vini mínum sem er í þessum gjörningi og þetta er heljarinnar mál .
Einfaldast er að nota allt kramið úr Toyota .
Það er fljótlegt að setja vélina á sinn stað , en svo hefst frágangsvinnan sem er að tengja og fixa allt draslið saman sem er gríðarleg vinna .
Þarna er fátt sem passar , það þarf að smíða flest saman . Rafkerfið ,hitunarkerfið , allar lagnir ,loftsíu intercooler .
Það þarf að vera með góða kunnáttu og aðstöðu í þetta .
26.04.2007 at 00:12 #589446Sæll .
Ef bínan er original er hún að byrja að boosta í um 1800- 2000 snúningum .
Boostar Ca 9,5 – 10 psi .
Það er hægt að kaupa bínur hjá Kistufelli sem byrja í 12-1400 snúningum og bjóða þeir að taka þá gömlu uppí en vilja samt fá um 100 000 kall á milli !
Svo hjálpar Hiclone aðeins . Við þá aðgerð fer bínan að rumska aðeins fyrr , eða í um 1650 – 1700 RPM .Kv.VS
20.04.2007 at 12:39 #588858Sæll .
Líklegt að þú sért með einstaklega þrálátann lofttappa á kerfinu .
Ef miðstöðin er úr takti við vélarhitann , er það vísbending um að það sé loft á ferðinni . Annaðhvort vegna heddpakkningarleka , eða þrálátur lofttappi .
Reyndar er eitt sem þú nefnir sem bendir til að tappinn á kassanum haldi ekki . Þe . ef vatnið safnast upp í forðabúrinu. Skoðaðu pakkninguna og gorminn , eða fáðu annan tappa til að prófa .
‘Eg hef lent í að þurfa að setja aftöppunarbúnað á vatnskassahosuna til að komast fyrir svona leyðindi . Skera efri hosuna og setja járnhólk með tappa á milli.
Eitt skiptir miklu máli í þessu , það verður að vera lítið framhjáhlaupsgat á vatnslásnum . Ca 5 millimetra . Annars er hætta á lofttappa þar .
Kv. VS .
19.04.2007 at 23:12 #588844Jú ,það væri samfellt loftvesen og hitaflökt ef rellan blési út í vatnsgang .
Hvernig er miðstöðin . Er stöðugur hiti þar , eða sveiflast hitinn þar í svipuðum takti við mótorhitann samhvæmt mælinum ?
Ef allt draslið hitnar svipað undir álagi , bendir það á dæluna , viftuna eða kassann sjálfann .
Þú þarft að reyna að prófa dæluna einhvernveigin og nota útilokunaraðferðina á þessa hluti sem gætu verið að stríða .Td. aftengja miðstöðvarslöngu og athuga með því að gangsetja bílinn hvort er góður þrýstingur á kælivatninu .
Sennilega best að taka vatslásinn úr á meðan er verið að finna út úr þessu .
Það er veik von að prófa að skipta um vatnskassalok .
‘Eg skal grufla betur í þessu . Langt síðan ég var í svona hitaveseni .
Kv. VS
19.04.2007 at 19:51 #588840Sæll .
Það eru nokkur atriði sem koma til greina .
Kúplingin á kæliviftunni , spurning með vatnskassann , er búið að setja stærri vatnskassa ,þriggja raða . Vatnsdælan , vatnslásinn . Svo er það versta af því öllu , heddpakkning eða heddið sjálft .
Ekki fara í nein átök með bílinn fyrr en hann hefur verið sjúkdómsgreindur . Ef þetta er 2,8 er heddið mjög viðhvæmt fyrir ofhitun .
Prófaðu að setja bílinn í gang , láta hann ganga ca 1000 – 1200 snúninga , án vatnskassaloksins ekki full heitan , má vera volgur . Fylltu kassann af vökva og fylgstu með hvort ólga eða loftbólur eru á sveimi í tappagatinu . Farðu varlega í þetta , það geta komið gusur ef mótorinn blæs út í vatnsgang .
Ef svo er , þarf að taka heddið ofan af mótornum og þrýstiprófa það . (Td. Vélaland )
13.04.2007 at 22:45 #587902Frábært tog í lettanum .
460 FT / lb eru hvorki meira né minna en 624 N/M460 ft.lbs. = 623.76 Nm.
4,2 Toyota ofurmótorinn er þá ekki nema
405 Ft/lb í togi
Sem er bara mjög gott ef satt er ef miðað er við grútarbrennara af þessari stærðargráðu .550 Nm = 405.68 ft.lb.
13.04.2007 at 12:48 #587844Hér er athyglisverð tafla sem sýnir ofur togið í 24 ventla grútarkvörninni frá Toyota .
‘Eg sé ekki betur en ágæt bensínvél sé með nánast sama tog .
Það er ekki nóg að manni bara finnist eitthvað vera einhvernveigin . Það þarf að hafa einhvern stuðning á bakvið fullyrðingar sem verið er að setja fram .
Málið er ,nógu helvíti stórann bensínrokk í húddið sem eyðir alveg hryllilega , þá er loks gaman !
Stórt er gott , stærra betra !http://tlc.off-road.com/tlc/article/art … ?id=264200
13.04.2007 at 01:41 #587824Nú látum við tölurnar tala .
Eitthvað var verið að gera lítið úr toginu í bensínvélum . Hér eru tölur sem eru frekar ósanngjarn samanburður fyrir bensínvélina , en er í lagi að skoða .6,6 l Duramax verðlaunuð hátækni díselvél fyrir afl og tog er að toga á 3200 rpm 650 ft/lbs . Þetta er með því hæsta sem er í boði í þessum stærðarflokki díselvéla .
351 W Ford létt tjúnnuð fyrir jeppa með tog í huga er að toga á 3300 RPM 400 ft/ lbs .
‘A 1850 Rpm 300 Ft/lbs .
Endilega að skoða tog kúrfur dísel og bensín . Það kemur á óvart hvað bensínvélarnar toga .
Dæmi um díselvél sem gleymdist algjörlega allt sem heitir tog er 2,8 Patrol .
Það skeður einfaldlega EKKERT fyrr en bínan fer að rumska
13.04.2007 at 00:13 #587818Þetta er ekki alveg í fyrsta sinn sem þessi umræða nær flugi
Eins og fram hefur komið er fátt eitt sem gefur diselmótornum stig sem alvöru jeppavél nema
nýlegar hátækni dísel rellur sem kosta mörg meðal bílverð í innkaupi eru að komast á svipað aflsvið og ódýrar V8 bensínrellur eru að gera í dag , nema hátæknirellurnar eru að ná frábærum eyðslutölum .
Spurningin er ,ef við tökum dæmi , hvað kosta 300 bensínhestöfl á móti 300 dísel hestöflum ??
300 hestafla Bensínrella vs 300 hp dísel .
Þó við færðum okkur í 200 hö, er munurinn samt gríðarlegur .
Þetta miðast við tveggja tonna bíl . 2,5 tonn ferðaklár . Hann bara einfaldlega þarf minnst 200 hestöfl til að geta talist virkilega skemtilegur .
12.04.2007 at 13:07 #587784Já , þetta eru djúpar og mjög þarfar pælingar .
Spurningin er , hvað viljið þið fá út úr jeppanum ykkar .
‘Eg er með á hreinu hvað ég vil . Það er ein díselvél sem ég get talið glóru í að gagnist mínum þörfum í afli og togi og vélarþyngd .
Það er verðlaunavélin Duramax og ekkert annað . Verð því miður að sætta mig við annað í dag , en sówat !
Hún er bara því miður allt of dýr þessi elska fyrir mitt næfurþunna veski .
Fyrst þegar ég heyrði menn tala um að STANDA þessa díselfáka , þetta byrjaði um 1989-90 .
‘Eg vissi fyrst ekki hvort ég átti að taka þessu sem léttu gríni eða alvöru kafla í jeppamennsku ‘Islands .
Reyndar í dag eru til grútarbrennarar sem þokast ágætlega áfram og eru bara fínir mótorar á sinn hátt .
Að ná afli út úr dílelvél kostar mikla peninga ,sem menn hafa oft vanmetið .
Eins og Duramax , er verðið ótæpilegt og er ekki á allra færi .
Verð á bensíni er svipað og oft á tíðum lægra en á grútnum .
Það er vel leggjandi í þá vinnu að smíða góða bensínvél í bílinn sinn í dag og fá feikna afl og tog auk viðunandi eyðslu . Mismunurinn er svo lítill .
Við vissar aðstæður er bensínið að renna hraðar í gegn en grúturinn .
‘Eg ók um hálendið í mörg ár á V8 bensín og líkaði vel .
Spurningin er , hvernig er V8 vélin uppsett og hvaða hlutir eru í henni .
Hvaða gírkassi eða skipting , drifhlutföll í millikassa og drifum , þyngd bílsins og ekki sýst , aksturslag ökumannsins .
‘A endanum , aflið einfaldlega kostar meira , spurningin er , hvursu mikið meira .Kveðja Valli S.
11.04.2007 at 19:59 #587306Sæll .
Mín skoðun er sú að nú þurfa menn að velta rækilega fyrir sér Diesel eða Bensínmótor .
Það er klárt að Pattinn þarf öflugri rellu til að geta talist með skemmtilega vinnslu .
‘Eg er að undirbúa vélarskifti í Patrol og sennilega fer 302 Ford , spes uppsett með hærri þjöppu, 10:5 stimplar , flækjum og góðum tork knastás ,. ‘A allt draslið til og kostar ekki krónu .
Ekki ákveðinn hvað fer aftan á relluna . Gæti orðið Patta kassinn , gallin við hann er hvað kúplingin er lítil . Sjálfskipting er líka inni .
4.0l HO vél úr Jeep Cherokee er svakalega góður kostur í Pattann .
195 HÖ . og eyðslan í lagi , léttur og auðfáanlegur mótor á sanngjörnu verði.
09.04.2007 at 23:51 #200097Að gefnu tilefni var verið að fjalla um þessa vefsíðu fyrir nokkru , þeas hægagang síðunnar .
Er með versta móti núna .
Minnir rækilega á þegar 56 K módemið í tölvunni var og hét
Kannski er svona mikið álag vegna lélegra ferðaskilyrða þessa páska og allir heima og á netinu
Allavega er spurningin , hvort sé verið að vinna í lagfæringu á síðunni .
Kv. VS
03.04.2007 at 20:24 #586922Eyðslutölur hafa alltaf verið hitamál þegar kemur að V8 vélum .
Eins og ég sagði í upphafi , þá er það aksturslagið sem stjórnar að verulegu leyti eyðslu V8 .
‘Eg veit að 2,4 er að eyða Ca 12 til 14 lítrum í blönduðum akstri og fara nærri 20 í puði .
Mín reynsla af rétt upp settri 302 er að hún er að skola niður 14 til 16 í bæjarakstri og svo í miklu álagi í þungu færi 20 til 25 . Ef hún er botnstaðin og engu hlíft , sjást tölur vel yfir 30 l .
‘Eg álýt að það er sama hvaða leið er farin , aflið kostar alltaf peninga .Kv . VS
03.04.2007 at 20:06 #586918‘I þínum sporum myndi ég snögg gleyma 6.2 eða 6.5 í þennan bíl .
það er , eða var til Toyota vél sem hét 2,4 D Dé stóð fyrir DEAD !
Þetta hefur afskaplega lítið lagast hvað sem gert er til að æsa þessar elskur upp í afli .
Þú verður að sætta þig við aflleysið þangað til þú finnur öflugra kram .
Mín skoðun er að ekki vera að eltast of mikið við Díeselmótora , eins og fram kemur, eru þeir miklir seðlatætarar ef þeir bila .
Munurinn er svo ofsalega lítill í dag , hvort er Díesel eða Bensínrella í húddinu.
Verðlaunamótorinn Duramax og svo Powerstrokinn eru að virka svaðalega . Nett tjúnnaður Duramax 380 hestöfl !Kv. Valli S .
03.04.2007 at 12:27 #586904Góðann daginn .
Ef mótorinn er mikið ekinn ,myndi ég gera sem minnst . Veit um tvö tilvik , þar sem sett var opnara 3 tommu púst , aukið við olíuverk og síðan hækkað boost á túrbínu auk þess opin KN loftsía og hiclone .
Þetta dugði skamman tíma og báðar þessar vélar voru terknar úr eftir mikið og kostnaðarsamt bilanaferli .
Það sem vantar til að jeppi virki skemtilega, er stærri vél í kúbikum (lítrum) til að fá meira tog .
Ef ég væri í þínum sporum , setti ég 302 eða 351W V8 Ford í húddið með c4 skiptingu upptekna með stórum kæli og aka svo alsæll með nóg aflAllt tjúndót í þessar vélar er mjög ódýrt , stór kostur er hvað þær eru léttar og nóg pláss í kring .
Eiðslan er háð ökumanninum og aksturslagi að miklu eða öllu leiti .
Það er til í Ameríkuhreppi orginal millistykki á milli c4 kassans og Toyota millikassans þannig að þar er ekkert skítamix .
Kveðja Valli S .
29.03.2007 at 00:26 #586352Ef þú ert að spá í svona dekk , þá skaltu prófa að henda inn auglýsingu á kvartmíla.is eða á 4×4.is hjá Ragga Róberts . Aldrey að vita hvað er til .
29.03.2007 at 00:15 #586350Smá innsláttarvilla hjá mér . Þau heita Padla-Track . Hér er góður línkur á síðu með svona sanddekkjum. Kveðja VS
http://www.sandtiresunlimited.com/
28.03.2007 at 00:37 #586346Ausudekkin eru álímdir keppnisslikkar úr kvartmíludæminu . Slikkarnir eru raspaðir hæfilega niður áður en ausurnar eru límdar (Soðnar) á .
Skófludekkin eru framleidd eins og þau lýta út .
Algengast frá Palla-Track framleiðandanum .
Þessi dekk voru algeng í torfærunni um það leiti sem torfæran hófst fyrir alvöru og skáru menn þá gjarnan aðra hverja skóflu burt .
27.03.2007 at 20:15 #200013‘I framhaldi af umræðunni um GPS tækið , langar mig að heyra álit manna á þjónustu í Bílanaust , eða öllu heldur ef skila þarf hlut sem ekki passaði eða á einhvern hátt ekki var að virka .
Það virðist tilheira vinnureglum þar á bæ að ekki skal endurgreiða varahlut sem er skilað aftur inn í verslunina . Heldur fær kúnninn inneignarnótu .
‘Eg lenti í þessu núna í vetur að kaupa hlut sem ég varð að skila vegna þess að hann passaði ekki .
‘Eg fékk hlutinn ekki endurgreiddan , fékk í staðinn inneignarnótu .
Þurfti síðan að kaupa hlutinn annarstaðar og var þetta þá orðinn frekar há upphæð , eða 27 000 í Bílanaust og 31 000 hjá Heklu .
‘Eg er enn með þessa inneignarnótu . Mig vantar einfaldlega ekkert úr Bílanaust sem stendur .
Þetta kom fyrir einn félaga minn sem er ekki mikill bílakall , en keypti kúplingu sem hann gat ekki notað , skilaði henni og situr uppi með inneignarnótu sem hann veit ekkert hvernig hann á að nota , hvað þá hvenær .
‘Eg veit um nokkra ósátta með þetta og er þar í hópi sjálfur .
-
AuthorReplies