Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
08.12.2007 at 18:20 #606034
Fórum nokkrir kaldadal upp á langjökul og það var litill snjór á kaldadal en flenni fínt færi á jökli og nægur snjór.
kv
Unnar
16.11.2007 at 08:59 #201185Er einhver buinn að fara kaldadal nýlega sem getur sagt mé hvernig hann er og kanski giskað á hvernig sá vegkafli verði á sunnudag eftir kuldaskotið sem ég vona að komi á morgun?
kv
Unnar i ferðahug
10.10.2007 at 13:08 #599526Mæli með Smur og viðgerðaþjónustuni á hyrjarhöfða.
ódýrir og snöggir.
02.10.2007 at 08:09 #598110Getur þú nokkuð frætt mig um hvar er best að versla svona felgur?
kv
Unnar
01.10.2007 at 12:30 #594748Gott að heyra að hann sé að virka.
En segðu mér svo hvað kostaði þessi breyting með öllu?kv
Unnar á 2,8 L
14.09.2007 at 21:18 #597158veit ekki hvað þetta getur kostað en um að gera ef menn geta smíðað svona að senda tilboð á mig og ég legg það fyirr kallinn.
KV
Unnar
14.09.2007 at 18:46 #200794Er einhver sem veit hvar er hægt að fá smíðað svona gamaldags grjótgring framan á bíl?
Tengdó er með nýjan ford transit og hann er að spænast i sundur að framan og myndi hann þvi vilja fá eitthvað á hann til að hlifa hann.
27.03.2007 at 17:10 #200012Erum að spá i að kikja á fjöll á næstu dögum og vorum að spá i hvort einhver hafi verið nýlega á línuveginum hjá skjaldbeið eða kjalveg og gæti frætt okkur um krapa stöðu á þessum slóðum?
27.03.2007 at 11:31 #586162Ég myndi skjóta á að hurðin hafi klemmt hjá þér snúruna i sundur og það þarf að skipta um hana.
Ég tók fótinn af loftnetinu og boraði gat sem var nógu stórt til að snúran passaði i gengum það og setti svo slatta af Wurth límkitti undir loftnetið og klíndi þvi niður og það svínvirkar engar óþarfar festingar og bara eitt litið gat.
Kv
Unnar
26.03.2007 at 15:46 #586056Við hjónin erum buin að henda smá in á þetta.
kv
Unnar
15.02.2007 at 12:08 #580340Ég hef lent i þessu og var það þá þannig háttað að það er vacuum slanga sem liggur frá fram enda bíls in i bíl sem lak en hún liggur nefnilega frá greinini að hvalbak og splittast þar og fer einn endin in i bíl og sá endi var heill en hinn lá fram undir rafgeymirin og tengdist þar i relay eða einhverskonar stýribox.
Slangan var nudduð i sundur undir rafgeymi og fékk þvi miðstöðin ekki það vacuum sem hún þarf til að breyta sér.Kiktu á slöngurnar sem koma frá soggrein að hvalbak og svo frá hvalbak að framenda og prófaðu að gelda eina i einu með vise grip töng og sjáðu hvort miðstöð hreyfist ef svo er þá er gat á slönguni hinu megin við töngina
08.02.2007 at 13:22 #579728Er þetta ekki blessaður upphafsstaður allra ferða?
Select á höfðanum.
Annar sé ég hann semN64 07.434 W21 48.206
01.02.2007 at 08:34 #578294Ég get mælt með honum Ara og USH.
Ég hef farið með tvo ganga til þeirra og báðir komu þeir vel út.
Reyndar lét ég þá bara blása fyrri gangin og sprautaði hann sjálfur en var svo snöggur að sjá eftir þvi.
Það er miklu betra að láta þá kítta ,sprauta og allt gera á staðnum og svo sækja og skrúfa undir bara.kv
Unnar
29.11.2006 at 14:41 #569740Verslaði i Ág motorsport mjög flott ljós með krómhring og 3 díodum.
22.01.2006 at 21:29 #539702Ég á 80 modelið af econoline með 351M vél og er hann á 38".
þetta er að ég held sá besti ferðabill sem ég hef átt,hann fer alveg hrikalega mikið i snjó og hef ég dregið patrol upp og niður brekkur.
reyndar er minn 150 bill sem er alstysta gerðin og er hann með 9" ford að aftan og dana 44 að framan.
eyðslan er meira svona smiles per gallon en miles per gallon.
Og sumar útleigur er æðslegar þar sem ég get lagt bilnum og farið aftur i að sofa og þegar að útileigan er buinn þá set ég i gang og ek i burtu á meðan að allir hinir eru að pakka saman og fella tjöld og fellyhýsi.Einn mjög sáttur.
21.09.2004 at 11:49 #506164Hann að eyða 18-20 á hundraði ef keyrt er varlega en getur farið alveg uppi 30 á hundraði ef keyrt er á seinni hólfi (4 hólfa holley)
Vélin er ekkert slitin sem ég hef séð.
Þetta er 4×4 35" innréttaður húsbill.kveðja
unnar
21.09.2004 at 09:15 #194667Hvernig er með econoline 6.9 dísel?
Hvað er slikur að eyða ?
er mikið mál að setja vél niður?
er með 250 bil með 351w og get fengið 6,9 vél með skiptingu og millikassa úr öðrum econoline og er að velta fyrir mér hvort það taki þvi að skipta?
er einhver sem tekur svona að sér eða veit einhver um góða leið til að gera þetta?
endilega látið vita
kveðja
Unnar
-
AuthorReplies