Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
29.01.2004 at 23:19 #486268
Ég veit að 12V spennanir í IBM tölvunar kosta á bilinu 16-17þús, þanning það er solldið mikill peningur fyrir spennubreytir. Svo með 12-220V invertinum geturu notað í margt annað líka.
Kveðja
Helgi
29.01.2004 at 12:25 #486258Sælir
Fartölvunar eru að taka um 60 – 100W fer eftir líka hvað þær eru orðnar öflugar og með stóran skjá. Hleðslutæki fyrir myndavélar taka sára lítið, ég giska um mesta lagi 20w eða svo. Á http://www.rsh.is er hann að selja inverter 300W á 9980 kr en r.sigmund er hann á 10900 svo ofaná þetta kemur okkar ástkærri 4×4 afsláttur 😉 Ég keypti mér frá RSH og er mjög sáttur, hann var reyndar 500W þeir áttu ekki 300W þegar ég keypti munaði 4000 kr á þeim minnir mig. Ég er ennþá að sansa tölvuborðið hjá mér í bílinn. Sett kannski mynd af því þegar það er komið.
Kveðja
Helgi
13.01.2004 at 23:57 #193450Sælir félagar
Mig langaði að athuga hvort þið vitið um ódýri intercoolera. Ath með reyndar bara einn stað þar kostaði hann 50 þús án tengingar og ísetningu. Er þetta kannski bara gangverðið á þeim?
Kveðja
Helgi
09.01.2004 at 18:21 #483710Hún dettur strax til baka um leið og ég sleppi….
En seg mér hverning er reynslan þín á svona bílum í snjó… Ég hef bara farið á honum tvisvar í snjó og það uppá langjökull um hvítasunnuhelgina.
Læt vita þegar ég finn út úr þessu, en það verður einhver tími þanngað til ég kem jeppanum inní skúr… allt fullt af drasli.
Kveðja
Helgi
09.01.2004 at 16:48 #483706En ég held það sé samt ekki málið. Ég er að tala um leið og ég sleppi stönginni smellur hann til baka. Ég kemst ekki á stað nema halda stönginni og leið og ég sleppi dettur hann til baka.
Takk samt fyrir ábendinguna…
Kveðja
Helgi
09.01.2004 at 08:44 #483702Sæll
Hann var bara hækkaður á grind um 6 cm.
Kveðja
Helgi
09.01.2004 at 01:33 #193412Sælir
Ég er í smá bakelsi með millikassan hjá mér. Hann tók upp á því um daginn að vilja ekki haldast í láa drifinu hjá mér. Sem sagt þegar ég fer með stöngina niður og poppar hún strax til baka í N, nær því ekki að haldast í láa drifinu. Það er reyndar í seinustu 2-3 ferðum mínum í ófæru þá hefur hann tekið uppá því 2-3 sinnum að detta út úr láa á ferðinni, en samt ekkert tannburstað með látum, bara small úr.
En í háa 4×4 er ekkert mál, þar er reyndar sett á með rofa.
Kannast einhver við þetta eða vitiði nokkuð hvað þetta gæti verið.
Ég ætlaði forvitnast hjá ykkur fyrst áður en ég ræðst í það að rífa undan millikassan.
Svo menn vita hverning jeppa ég er á, þá er ég á Landcruiser LX stuttur árgerð 1987 (Disel 2.4 2L-T)
Kveðja
Helgi Þór
12.12.2003 at 12:53 #482602herr herr
Kveðja
Helgi
11.12.2003 at 19:06 #482544Sælir
Ég borgaði mína í ágúst og sendinguna líka og ég er ekki ennþá búinn að fá hana innum lúgunna… Ég bíð alveg hirkalega spenntur eftir henni. Ég missti reyndar af jólafundinum hérna á Akranesi á mánudaginn s.l
Kveðja
Helgi Þór
14.11.2003 at 12:50 #480554ég var búinn að gleyma að ég væri búinn að kaupa þessa bók og því sendi ég email og athugaði hverning gengur…
Hún kemur um mánaðarmótinn, með látum og lúðraþyt.
Kveðja
Helgi
15.09.2003 at 10:12 #476410Ég á þetta gula, ódýrasta Etrex tækið og það er ekki með útiloftnet. Ég er bara með það í við framrúðunua og ég næ alveg fullu signali þar. Best er þá næ ég frávik um 5 metra. Og það er hægt að tengja við tölvu og 12 volt.
Eini gallinn við það er að skjárinn er ekkert voða stór.
Kveðja
Helgi
13.08.2003 at 00:13 #475444Nú spyr ég eins og bjáni 😉
Hvað mælir þessi mælir? Þrýsting eða hita?
Kveðja
Helgi
12.08.2003 at 17:01 #475454Sæll
Ég fann einn breytir á computer.is handa þér.
[url=http://www.computer.is/vorur/2661:wt2hhq2u]BREYTIR – Úr serial í USB, tengdu GPS tækið þitt í fartölvuna![/url:wt2hhq2u]
Kveðja
Helgip.s en ég hef ekki sjálfur prufað þetta.
24.07.2003 at 20:56 #475040ég skoða þessa síðu hátt og lágt og ég held þetta sé helviti sniðugt dæmi. Spurning hvort þetta virkar eitthvað á gamla jeppa eins og minn
Annars er ég heitur fyrir því að prufa þetta, bætta nokkrum hestum í þessa fáu hesta sem ég hef fyrir…og spara ólíu!
Kv
Helgi Þór
02.07.2003 at 20:00 #474608Það er hægt að importa sömu möp og Nobletec er að nota í OziExplorer. Hægt er að ná í Trial sem virkar 100% nema það er ekki hægt að nota GPS tæki á það forrit, svo líka er hægt að ná í demo, en það virkar bara í klst í einu og þú getur minnir mig ekki trackað í því og eitthvað meira. En GPSinn á að virka minnir mig í Demo útgáfunni.
Ég er ekki búinn að prufa Ozi nógu vel, en í fljótubragði finnst mér solldið flóknara en Nobletecið, alvegna meiri fídusar í Ozi.
Kveðja
Helgi
24.06.2003 at 17:15 #474426Ég var að skoða heimasíðu framleiðandans sem gerir þessa LCD/TFT skjái og rakst á PC tölvu sem er jafnstórt og útvarpið þitt í bílnum…
[url=http://www.xenarc.com/product/cp1000.html:78ulw1k2]XENARC CP-1000[/url:78ulw1k2]
Þessi vél kemur út í þessum mánuði og ég leitaði eftir verði og fann á einu stað að hún kostar $1119 og hún er með innbyggðu GPS tæki.
Það væri nú draumur að fá sér svona PC og 10" TFT snertiskjá í jeppan 😉
Kveðja
Helgi
20.06.2003 at 15:40 #192670Daginn félagar
Ég var að fá mér gamlan NMT síma og ég er í vandræðum með hann. Ég næ að hringja í hann og hringja úr honum, reyndar eina sem hann á að gera, en þegar það er hringt í hann þá þá heyrist ekkert í honum. Blikkar bara kassi á skjánum sem er solldið erfitt að taka eftir ef maður er að aka 😉
Þetta er
Type : Ericsson NMT B-4
Code : 6F KGF555-XXXX R5A
Ser.No. 635105ef einhver kannast við þennan síma eða veit um einhvern sem kannast við hann endilega hafið samband.
Kveðja
Helgip.s þeir kannast ekkert við hann á verkstæðinu hjá Símanum
26.05.2003 at 18:02 #473770Það er örugglega best að tala við R. Sigmunds um það. Þeir eru með umboð fyrir Garmin á Íslandi.
Kveðja
Helgi
22.05.2003 at 21:36 #473722það væri nú gaman að vita urlið svo maður getur kíkt á þessa síðu…
Kveðja
Helgi
E-1803
02.05.2003 at 00:04 #473012Sælir
Ég er með 14" breyðar felgur undir mínum 36" dekkjum (Mudder), er reyndar nýbúinn að fá hann og ekkert búinn að fara í snjó á honum ennþá. En ég var að skoða dekkinn og tók eftir því að það er komnar fínar sprungur (grunnar) þar sem dekkið belgist út á hliðunum. Dekkinn eru orðinn um það bil hálfslitinn. Er það slæmt mál?
Kveðja
Helgi
-
AuthorReplies