Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
01.04.2005 at 08:55 #520184
Mér sýnist á myndum af bílnum hjá þér að þetta sé bíll sem félagi minn átti fyrir einhverju síðan. Sá smíðaði þetta kerfi í hann sem var sosem ekki flókið. Undir olíugjöfinni hafði hann rofa til að virkja þetta þegar hún var stigin í botn. Í mælaborðinu hafði hann svo annan rofa til að slökkva á kerfinu. Í húddinu var svo segulloki sem hleypti gasinu inn á vél þegar kveikt var á og stigið í botn. Þetta virkaði ansi vel og ég hef aldrei fyrr né síðar séð patrol með annað eins afl. Ég man ekki til þess að hann hafi átt við nein hitavandamál að stríða, en óneitanlega styttir það eitthvað líftíma vélar að taka út úr henni meira afl.
KV
Tyrfingur
10.01.2005 at 21:57 #513122Nú er ég búinn að athuga sitthvað fleira, t.d leita að sliti á öllum stöðum sem mér dettur í hug, hjólalegur stýrisendar, maskína, herti upp á spindlum og allt virðist vera fast. Ég prufaði að tjakka bílinn upp að framan inni á gólfi, aftengja afturskaftið og láta framhjólin snúast á skjálftahraðanum, þ.e á milli 50 og 100. Þá sá maður að þetta gekk allt til og djöflaðist og hásingin gekk upp og niður sitthvorumegin á víxl, en ekki hægt að átta sig samt á upptökunum.
Stýrisdemparinn er í lagi en mætti eflaust vera stífari.
Spindilhallann hef ég ekki mælt en hann jókst þegar ég breytti bílnum. Ef ég beygi honum í botn og sleppi stýrinu þá réttir hann sig strax af, sem ég tel vera til marks um nægan stýrishalla.
Hitt er annað mál að ég veit ekki hvort hann getur orðið of mikill sem getur verið möguleiki. Ég þekki ekki hvernig það lýsir sér í akstri??Kv TS
09.01.2005 at 19:55 #195202Góðann daginn
Þannig er að ég er með landcruiser 60 týpuna og er nýbúinn að skipta fjöðrunum út fyrir loftpúða, og setja undir hann 38″ dekk. Bíllinn er náttúrulega allt annar í fjöðrun á eftir en sá hængur er á að hann skelfur svo mikið í stýri að hann er ókeyrandi milli 50 og 100 km hraða. Ég er búinn að gera ýmsar tilraunir með hann, t.d prufa önnur dekk og setja stífari fóðringar í þverstífu en allt kemur fyrir ekki, hann skelfur jafn mikið. Ég var að velta fyrir mér hvort einhver hafi lent í svipuðu og þá hvernig þessu hafi verið reddað.
Allar ábendingar vel þegnar.Kv. TS
-
AuthorReplies